Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetTryggvi Guðmundsson
ÍBV
ÍBV
Besta-deild karla
Þórsvöllur Vey
1 - 2
Afturelding
Afturelding
Vicente Rafael Valor Martínez 12'1 - 01 - 153' Benjamin Stokke1 - 255' Aron Jóhannsson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: Fyrsti útisigur Aftureldingar í efstu deild kom í Eyjum

Hvað réði úrslitum?

ÍBV mættu ekki til leiks fyrstu 20 mínúturnar í seinni hálfleik, sem er óskiljanlegt því þeir voru búnir aðð heilla mig og aðra með mjög góðum fyrri hálfleik. Stemning og leikgleði Aftureldingar var algjörlega til fyrirmyndar í seinni hálfleik. Gera tvö frábær mörk í byrjun hálfleiksins og halda út allan leikinn.

Bestu leikmenn

1. Aron Jóhannsson

Aron kom inná á 13. mínútu leiksins. Byrjaði svo seinni hálfleikinn með f?abærri fyrirgjöf í fyrsta marki Aftureldingar og stuttu seinna er hann búinn gera úrslitamarkið. Mjög góð innkoma hjá honum.

2. Jökull Andrésson

Var með margar góðar vörslur í fyrri hálfleik og einnig í lok leiks. Á stóran þátt í að tryggja liðinu stigin þrjú. Öruggur og góður á milli stanganna og virkilega skemmtilegur karakter.

Atvikið

Það held ég að verði að vera fyrra mark Aftureldingar. Stórbrotin fyrirgjöf frá Aroni Jóhannsson og virkilega flottur skalli hjá Benjamin Stokke. Þetta kveikti í liðinu.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að ÍBV dregst nær botninum og eru áfram með 14. stig á meðan Afturelding kemur sér upp í sjötta sætið með 17. stig. Þess ber þó að geta að deildin er afar jöfn.

Vondur dagur

ÍBV liðið í heild sinni. Erfitt að taka einn út. Þetta segi ég vegna þess að þeir áttu að vera búnir að gera fleiri mörk í fyrri hálfleik og koma svo inn í seinni hálfleik eins og kjánar.

Dómarinn - 7

Í heildina vel dæmdur leikur. Það var mikil harka í leiknum og mikið um pústra en hann var ekkert að sveifla spjöldum hægri vinstri. Hefði þó mögulega átt að dæma víti þegar Arnór Ingi Kristinsson er að munda skotfótinn inn í teig þegar það virðist vera sparkað aftan í hann og hann lá eftir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.