SKÝRSLAN: Fram óheppið – Vitleysan réði för í Kópavogi
Hvað réði úrslitum?
Vítaspyrnan sem dæmd var virtist í fljótu bragði ekki standa undir nafni — líklegra að um vel útfærða dýfu Ágústs hafi verið að ræða sem fékk dómarann til að kaupa leikfléttuna. Höskuldur, fyrirliði liðsins, steig samt örugglega á punktinn og kláraði vítið af miklu öryggi. Það reyndist þó ekki endapunkturinn á kvöldinu, því skömmu síðar tók hann sig til og ruðningstæklaði Viktor, markvörð Framara, sem endaði í stimpingum og rauðu spjaldi fyrir fyrirliðann sem og Kyle McLagan.
Bestu leikmenn
1. Freyr Sigurðsson
Erfitt var að gera upp á milli Freys, Sigurjóns og Kennie – allir áttu góðan leik hér í kvöld. En það var Freyr sem skapaði mestan usla í sóknarleik gestanna og hlýtur því nafnbótina maður leiksins. Hann átti stóran þátt í marki Fram með kraftmiklum spretti upp völlinn sem leiddi til stoðsendingar Kennie á Vuk Oskar. Þá var hann óheppinn að bæta ekki sjálfur við marki þegar hann komst einn í gegn, en skot hans small í þverslánni
2. Sigurjón Rúnarsson
Það þarf ekki að segja neitt annað en að Tobias mun fá vondan dag titilinn enda sást hann ekki í leiknum. Sigurjón hreinlega pakkaði honum saman. Sigurjón átti fjölmargar glæsilegar hreinsanir og toppaði frammistöðuna með stórkostlegri tæklingu á Viktor á 75. mínútu – af fullorðinsgerðinni.
Atvikið
Vítaspyrnudómurinn var án nokkurs vafa stærsta atvik kvöldsins. Framarar virtust vera á góðri leið með að tryggja sér öll þrjú stigin og sigla sigrinum örugglega heim til Reykjavíkur – þar til dæmt var víti sem einfaldlega var ekki víti. Heimamenn jöfnuðu úr spyrnunni og í kjölfarið fylgdi svo öll hin vitleysan – atvik og uppákoma sem á frekar heima á Wrestle Mania en á fótboltavelli.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Blikarnir eru áfram í 2. sæti sem var svo sem alltaf að verða niðurstaðan fyrir leik en missa Víkinga aðeins á undan sér og nú munar þremur sigum á liðunum.
Fyrir Fram er fyrsta jafntefli sumarsins staðfest og dettur niður í 7. sæti í töflunni.
Vondur dagur
Tobias Thomsen fær titilinn vondur dagur í kvöld. Næst markahæsti maður Bestu deildar sást vart í 90 mínútur og virtist lengst af fastur í gjörgæslu – undir dyggri umsjá Sigurjóns Rúnarssonar og co. Tobias tók varla þátt í leiknum, að undanskildu einu slöppu skoti og einni uninni hornspyrnu – og það var bókstaflega allt og sumt frá markahróknum mikla í kvöld.
Dómarinn - 4
Léleg frammistaða hjá Arnari Þór hér í kvöld og ég skil alveg að Halldór þjálfari Blika hafi talað um að missa leikinn í vitleysu. Kennie og Kyle fengu ítrekað að haga sér eins og ruddar án afleiðinga. Á 64. mínútu hrinti Kennie Ágústi niður þegar sá síðarnefndi var kominn framhjá – ekkert dæmt. Þá nýtti Kyle sér ótrúlegt umburðarlyndi dómarans og skall harkalega á Höskuld á 87. mínútu, boltinn hvergi í augsýn. Erfitt er að líta framhjá því að dómari kvöldsins beri ríka ábyrgð á því hvernig atburðarásin þróaðist – og að vitleysan sem fylgdi með tveimur rauðum spjöldum undir lokin megi rekja til hans.




