Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
Besta-deild karla
Valur
46' 3
1
KR
Besta-deild karla
Breiðablik
45' 0
0
Fram
Besta-deild karla
ÍBV
LL 1
2
Afturelding
Breiðablik
0
0
Fram
23.06.2025  -  19:15
Kópavogsvöllur
Besta-deild karla
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
6. Arnór Gauti Jónsson
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson
9. Óli Valur Ómarsson
13. Anton Logi Lúðvíksson
15. Ágúst Orri Þorsteinsson
17. Valgeir Valgeirsson
21. Viktor Örn Margeirsson
30. Andri Rafn Yeoman
77. Tobias Thomsen
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Brynjar Atli Bragason (m)
2. Daniel Obbekjær
4. Ásgeir Helgi Orrason
10. Kristinn Steindórsson
19. Kristinn Jónsson
24. Viktor Elmar Gautason
28. Birkir Þorsteinsson
29. Gabríel Snær Hallsson
39. Breki Freyr Ágústsson
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Halldór Árnason (Þ)
Arnór Sveinn Aðalsteinsson
Særún Jónsdóttir
Haraldur Björnsson
Eiður Benedikt Eiríksson
Helgi Jónas Guðfinnsson
Brynjar Dagur Sighvatsson
Dagur Elís Gíslason

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
45. mín
Seinni byrjaður Heimamenn koma okkur af stað
45. mín
Hálfleikur
Ekki flókið engin uppbót Skemmtilegur hálfleikur að baki, mikill hraði bæði lið fengu færi.

Vantar bara mark í þennan leik
44. mín
Dauðafæri hjá Kennie!! Þarna varði Anton frábærlega skallan hans Kennie út við stöng.

Frábær fyrirgjöf hjá Simon sem leit upp og sá Kennie
42. mín
Flottur sprettur hjá Höskuldi Platar þarna tvo Frammara með einni hreyfingu og gefur á Tobias á hægri sem uppsker horn

Hornið stutt og lélegt og ekkert úr því að hafa.
39. mín
Arnór Gauti með dauðafæri Fékk frían skalla eftir hornspyrnu á nærstöng en því miður fyrir heimamenn þá fer skallinn hátt yfir.

Fín spyrna hjá fyrirliðanum
36. mín
Heimamenn að sækja í sig veðrið Eru að sækja hratt en vantar aðeins betri gæði í síðustu sendingu til að skapa sér hættuleg færi
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Gestirnir að spila vel Framarar eru að fá nokkur færi, allt frá hálfærum og upp í dauðafæri þessa stundina.

Sækja hratt og vel þessa stundina
27. mín
Dauðafæri hjá Frey Þarna hefði Fram átt að komast yfir

Komast í skyndisókn þrír á móti tveimur sem endar með því að Vuk gefur út á Frey sem er galopinn af 18 metra færi en skotið hans hátt yfir vel yfir.
25. mín
Haraldur Einar að eiga erfiðan leik Óli Valur er að fara illa með Harald í þessum leik.

Þarna fær hann boltann á hægrin og hreinlega labbar framhjá Haraldi, snýr sér inn á völlinn og á skot með vinstri en það fer beint á Viktor
22. mín
Góð pressa hjá Fram Flott pressa hjá gestunum þessa stundina og endar með því að Kennie fær boltann aftur á hægri kantinum en er ekkert á því að gefa fyrir og þrumar í knöttinn.

Hann fer hins vegar vel framhjá
20. mín
Vuk með góðan sprett Vinnur boltann rétt fyrir ofan miðju og brunar upp vinstra megin en er kominn í þröngt færi og skotið hans hátt yfir.

Viktor Örn með flotta varnarvinnu þarna og lokar svæðið sem Vuk hafði til umráða
14. mín
Fred með fínt færi Fékk frítt skot eftir hreinsun af 20 metra færi en skotið laust og beint á Anton.

Hafði nægjan tíma til að vanda skotið betur.

Aftur var það Kennie með fyrirgjöfina sem Höskuldur hreinsar beint á Fred
13. mín
Misskilningur á milli Kyle og Viktors Fyrirgjöf hættulítil frá hægri og Kyle skallar í horn, hefði hann heyrt í Viktori þá var hann beint fyrir aftan og hefði getað handsamað boltann örugglega
11. mín
Gestirnir að bíta frá sér Framarar er að sækja í sig veðrið og fara sóknirnar í gegnum Kennie þessa stundina.

Hann á fína fyrirgjöf en Anton hreinsar í horn

Fram gerir ekker við hornspyrnuna
9. mín
Höskuldur og Simon Það er ljóst að Höskuldur fær það hlutverk að dekka Simon á miðjunni.

Þetta verður geggjað einvígi
7. mín
Rosaleg pressa heimamanna Heimamenn eru svo sannarlega mættir til leks og pressa hátt.

Leikurinn er spilaður á vallarhelmingi Fram þess stundina
5. mín
Haraldur Einar með mistök Hittir hreinlega ekki boltann og hleypir Óla fram hjá sér á hægri kantinum og hann á fastan bolta inn í teig en Ágúst Orri nær ekki til hans.

Þarna voru Framarar heppnir
3. mín
Tobias með hálffæri Fær boltann inn í teig og nær að snúa sér en skotið kraflaust og beint á Viktor

Sigurjón gerði vel í að loka á hann
2. mín
Rosalegur hraði í byrjun leiks Bæði lið á milljón hér í upphafi

Og það heyrist svakalega hátt í stuðningsfólki heimamanna
Fyrir leik
Leikur hafinn
Ballið er byrjað Gestirnir byrja með boltann
Fyrir leik
Höskuldur Gunnlaugsson að spila leik númer 350 Fær hér sérstaka viðurkenningu fyrir leik nr. 350 með Blikunum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Allt að verða klárt fyrir leikinn Það er verið að úða völlinn og bleyta hann almennilega fyrir leik.

Fá smá hraða í þetta.

Mynd: Fjallabyggð - Facebook

Fyrir leik
Veðrið í kvöld Það er 12 stiga hiti, skýjað og logn eða á íslensku nokkuð góðar aðstæður til knattspyrnuiðkunar.
Fyrir leik
1975 lið Breiðabliks á vellinum Það er verið að heiðra 1975 lið Breiðabliks karla og kvenna á vellinum

Skemmtileg athöfn og vel gert hjá Breiðablik

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Breiðablik sigurstranglegir Höfum þetta einfalt, Breiðablik vinnur yfirleitt sína leiki á heimavelli og Epic ansi kaldir að bjóða upp á stuðulinn 1,70 á sigur heimamenna.
Fyrir þá áhættusæknu þá er Breiðablik -2,5 mörk 4,74
Fyrir þá sem hafa áhuga á því að setja á markaskorara þá er stuðullinn á Tobias Thomsen 2,20
Fyrir leik
Byrjunarliðin Það er ein breyting á liðið Breiðabliks sem vann ÍBV 2-0 í síðustu umferð. Óli Valur Ólafsson kemur inn í liðið fyrir Kristinn Steindórsson sem fær sér sæti á bekknum.

Þorri Stefán Þorbjörnsson og Freyr Sigurðsson koma inn í lið Fram frá 1-0 sigri gegn Aftureldingu í 8-liða úrslitum bikarsins. Israel Garcia og Már Ægisson setjast á bekkinn.
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fyrir leik
Gengi Breiðabliks Breiðablik hefur eins og Fram unnið þrjá af síðustu fimm deildarleikjum og í síðustu umferð gerði liðið góða fer til eyja og unnu 2-0 á Hásteinsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tobias Thomsen hefur verið öflugur í sumar og er kominn með 8 mörk og er næst markahæstur í deildinni á eftir Patrick Pedersen
Fyrir leik
Gengi Framliðsins Gengið liðsins hefur verið þokkalegt í deildinni að undanförnu og sigraði liðið síðast FH 2-0 á heimavelli með mörkum frá Vuk Oskari og Sigurjóni Rúnarssyni

Liðið hefur unnið þrjá af síðustu 5 leikjum og gaman að segja frá því að Fram hefur ekki enn gert jafntefli í sumar. Það er allt eða ekkert, sigur eða tap.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vuk Oskar er markahæstur í liðinu með 6 mörk það sem af er sumri
Fyrir leik
Spáin fyrir tímabilið Breiðablik Íslandsmeistararnir eru í 2. sæti eins og stendur og geta minnkað muninn í eitt stig með sigri hér í kvöld á heimavelli. Víkingur er sem stendur í 1. sæti og fjórum stigum yfir en Breiðablik á leik til góða.

Það má segja að liðið sé nokkurn veginn á þeim stað sem spár gerðu ráð fyrir.

Fyrir leik
Spáin fyrir tímabilið Fram Það er alltaf gaman að líta til baka þegar deildin er hálfnuð og sjá hvernig liðunum gengur miðað við spár.

Fram er eins og stendur í 6. sæti og er jafnvel að gera aðeins betra mót en spár gerðu ráð fyrir.

Að því sögðu þá eru ekki nema eitt stig sem skilur að liðin frá 6. og niður í 9. sæti.

Fyrir leik
Fram áfram í bikarnum Fram vann 0-1 útisigur á Aftureldingu á fimmtudag í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Freyr Sigurðsson skoraði eina mark leiksins, skallaði Framara í undanúrslitin. Þar mun Fram mæta Vestra en Vestri sló einmitt út Breiðablik í 16-liða úrslitunum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Spáir heimasigri og marki frá bróður sínum Breiðablik er í 2. sæti deildarinnar með 22 stig eftir ellefu leiki. Fram er með 15 stig. Fram er með +1 í markatölu og Breiðablik +3. Blikar geta minnkað forskot Víkings á toppnum niður í eitt stig með sigri.

Ef Fram vinnur fer liðið upp í átján stig en mikið þarf að gerast svo liðið fari upp um sæti.

Bæði lið unnu tveggja marka sigra í síðustu umferð. Breiðablik vann 0-2 í Vestmannayejum og Fram vann 2-0 heimasigur gegn FH.

Andre Rut Bjarnadóttir, leikmaður kvennaliðs Breiðabliks, spáir heimasigri.

Breiðablik 2 - 0 Fram (mán, 19:15)
Mínir menn í Blix vinna þennan leik örugglega 2-0 á heimavelli, Tobias og Aron Bjarna með mörkin.

Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Fram vann endurkomusigur í Dal Draumanna Liðin mættust í 2. ufmerð deildarinnar og þá vann Fram sigur á heimavelli.


Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Þriðja liðið í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Aðstoðardómarar: Gylfi Már Sigurðsson og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage
Fjórði dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Eftirlitsmaður: Ingi Jónsson
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Velkomin á Kópavogsvöll 12. umferð Bestu deildarinnar lýkur í kvöld með þremur leikjum. Hér á Kópavogsvelli mæta Íslandsmeistararnir liði Framara.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


mánudagur 23. júní
18:00 ÍBV-Afturelding (Þórsvöllur Vey)
19:15 Valur-KR (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Breiðablik-Fram (Kópavogsvöllur)
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
5. Kyle McLagan
8. Haraldur Einar Ásgrímsson
9. Róbert Hauksson
10. Fred Saraiva
12. Simon Tibbling
19. Kennie Chopart (f)
25. Freyr Sigurðsson
26. Sigurjón Rúnarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Bjarki Arnaldarson (m)
4. Arnar Daníel Aðalsteinsson
7. Guðmundur Magnússon
11. Magnús Þórðarson
15. Jakob Byström
16. Israel Garcia
23. Már Ægisson
32. Hlynur Örn Andrason
33. Kajus Pauzuolis
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ)
Helgi Sigurðsson
Magnús Þorsteinsson
Einar Haraldsson
Gareth Thomas Owen
Friðgeir Bergsteinsson
Kirian Elvira Acosta

Gul spjöld:

Rauð spjöld: