Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
Fótbolti.net bikarinn
Haukar
19:15 0
0
Ægir
Fótbolti.net bikarinn
KFG
19:15 0
0
Víðir
Fótbolti.net bikarinn
Magni
19:15 0
0
Kormákur/Hvöt
Fótbolti.net bikarinn
Grótta
46' 1
0
Dalvík/Reynir
Njarðvík
0
0
Keflavík
26.06.2025  -  19:15
JBÓ völlurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Innbyrðis viðureignir - Brjóta Njarðvíkingar blað í sinni sögu? Þessi félög eiga sér ríka sögu á körfuboltavellinum þar sem harðar baráttur um Íslandsmeistaratitla hafa átt sér stað og slagur liðana öllu jafna kallaður "El Clasico".

Í fótbolta er þó ekki jafn rík hefð á að þessi lið mætist. Baráttan um bæinn á sér aðeins sex viðreignir í deildarkeppni á vegum KSÍ samkv. vef KSÍ.

Þetta er aðeins í fjórða skipti í sögunni sem þessi lið eru saman í deild. Fyrsta skiptið var árið 2003 þar sem Keflavík hafði betur í báðum leikjunum það sumarið 5-2 annarsvegar og 2-0.

2019 mættust þessi lið aftur í þá Inkasso deildinni. Fyrri leikur liðana endaði með markalausu jafntefli áður en Frans Elvarsson braut hjörtu Njarðvíkinga með marki á 90. mínútu í seinni leik liðana sem endaði 1-0.

Á síðasta keppnistímabili var jafntefli niðurstaðan í báðum þessum leikjum. Fyrri leikurinn fór 1-1 þar sem Ásgeir Páll Magnússon skoraði fyrsta mark leiksins en Arnar Helgi Magnússon jafnaði metin í síðari hálfleiknum og þar við sat. Markalaust var svo í seinni leik liðana.

Njarðvík hefur aldrei unnið Keflavík í deildarkeppni í sinni sögu en verður breyting þar á í kvöld eða mun tak Keflavíkur halda?

Þess má þó til gamans geta að þessi lið hafa þrívegis mæst í Bikarkeppni KSÍ. Fyrsta viðreign liðana var 1985 þar sem Keflavík hafði betur með þremur mörkum gegn engu en síðustu tvö skipti sem þessi lið hafa mæst í Bikarkeppni hafa Njarðvíkingar hrósað sigri og í bæði skiptin hefur það verið í Keflavík. Fyrst 0-1 sigur 2019 og svo eftirminnilegur 1-4 sigur 2022.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leiðin úr lengjunni Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.

Fyrir leik
Boð og bönn Bæði lið verða án lykilmanna hér í kvöld sem taka út leikbönn.
Heimamenn í Njarðvík verða án Amin Cosic, Joao Ananias og Tómas Bjarka Jónsson sem allir taka út leikbann fyrir fjórar áminningar í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Keflavík verða án Nacho Heras sem fékk rautt spjald í síðusta leik gegn ÍR, sitt annað rauða spjald á tímabilinu svo hann fór í tveggja leikja bann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Njarðvík Njarðvíkingar sóttu stig á Domusnovavellinum í síðustu umferð þegar þeir gerðu 1-1 jafntefli við Leikni R.
Njarðvík eru áfram taplausir og sitja í öðru sæti deildarinnar eftir níu umferðir með fjóra sigra og fimm jafntefli.

Njarðvíkignar hafa skorað 21 mark í sumar og fengið á sig níu. Mörk Njarðvíkur hafa raðast niður á:

Oumar Diocuk - 6 mörk
Amin Cosic - 4 mörk
Dominik Radic - 3 mörk
Tómas Bjarki Jónsson - 2 mörk
Valdimar Jóhannsson - 2 mörk
*Aðrir minna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Keflavík Keflavík hefur aðeins hökktað síðustu umferðir eftir að hafa byrjað tímabilið þokkalega. Keflvíkingar hafa ekki sótt sigur í síðustu fjórum leikjum sínum í deild en þeir hafa tapað fyrir HK og gert svo jafntefli við Fylki, Völsung og ÍR. Þeir vonast til þess að komast aftur á sigurbraut í kvöld.
Keflavík sitja fyrir þessa umferð í 7.sæti deildarinnar með 12 stig.

Keflavík hefur skorað 15 mörk og fengið á sig 9. Mörk Keflavíkur hafa raðast niður á:

Gabríel Aron Sævarsson - 4 mörk
Kári Sigfússon - 3 mörk
Muhamed Alghoul - 2 mörk
Nacho Heras - 1 mark
Stefan Ljubicic - 1 mark
Sindri Snær Magnússon - 1 mark
Ernir Bjarnason - 1 mark
Ari Steinn Gunnarsson - 1 mark


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið Ívar Orri Kristjánsson heldur utan um flautuna í kvöld og honum til aðstoðar verða Guðni Freyr Ingvason og Kristofer Bergmann.
Eftirlitsmaður KSÍ er Ingvar Örn Gíslason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin á JBÓ Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá JBÓ vellinum í Njarðvík þar sem baráttan um bæinn fer fram milli Njarðvíkur og Keflavíkur í 10.umferð Lengjudeildarinnar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: