Fotbolti.net
Einar Már Þórólfsson
Lengjudeild karla
PCC völlurinn Húsavík
Skýjað, logn, 12 stiga hiti
Völsungur
Völsungur
1 - 1
Njarðvík
Njarðvík
0 - 128' Tómas Bjarki JónssonElvar Baldvinsson 75'1 - 1
Dómari: Sveinn Arnarsson

SKÝRSLAN: Jafntefli á Húsavík

Hvað réði úrslitum?

Gamla góða hársbreiddin. Eftir nokkra yfirburði Njarðvíkinga framan af hefði þetta getað fallið báðum megin í lokin en það vantaði hársbreidd upp á hjá báðum liðum til að ná að stela sigrinum. Bæði lið fá hrós fyrir að sætta sig ekki við jafntefli og virkilega reyna að vinna leikinn.

Bestu leikmenn

1. Amin Cosic

Hér ætla ég að horfa framhjá færunum sem hann klúðraði því fyrir utan þau var hann alveg frábær. Mark Njarðvíkur kom eftir magnaðan undirbúning hans.

2. Elvar Baldvinsson

Steig varla feilspor í vörn Völsungs í dag og skoraði jöfnunarmarkið með góðum skalla.

Atvikið

Það eru tvö ekki atvik sem standa uppúr. Markið sem Njarðvík fékk ekki á 68. mín og vítið sem Elfar Árni fékk ekki undir lok leiks. Verðum við ekki bara að treysta á að dómararnir hafi verið með þetta rétt.

Hvað þýða úrslitin?

Njarðvík mistókst að fara upp í toppsæti deildarinnar en er þess í stað í öðru sæti með 24 stig, sama stigafjölda og HK en stigi á eftir ÍR. Gríðarlega spennandi toppbarátta. Völsungur situr enn í 8. sæti en nú með 14 stig. Gott stig í pokann góða.

Vondur dagur

Amin Cosic. Þetta er sennilega í fyrsta skipti sem maður leiksins er einnig sagður eiga vondan dag. En eins frábær og Amin var þá bara verður hann að nýta færin sín betur. Frábær leikmaður sem Njarðvíkingar eiga eflaust eftir að sakna mikið þegar hann fer til KR.

Dómarinn - 7

Það er erfitt að dæma fótboltaleiki og það er alltaf hægt að finna eitthvað til að setja út á. En í heildina var þetta bara fínt hjá Sveini og félögum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.