Fotbolti.net
Sigurður Bibbi
Lengjudeild karla
Boginn
Þór
Þór
2 - 0
Leiknir R.
Leiknir R.
Aron Ingi Magnússon 11'1 - 0Juan Guardia Hermida 28'2 - 0
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson

SKÝRSLAN: Heimasigur í Boganum.

Hvað réði úrslitum?

Þórsarar voru ákveðnari í öllum aðgerðum í fyrri hálfleik og pressuðu gestina stíft. Þeir náðu að snúa vörn í sókn trekk í trekk og tvær hraðar sóknir skiluðu því sem þurfti til að koma sér í umspilssæti.

Bestu leikmenn

1. Ásbjörn Líndal

Ási var gríðarlega sterkur í vörn Þórs, bjargaði stórkostlega á línu og kom þannig í veg fyrir að Leiknir kæmist inn í leikinn. Einnig stóð hann vörnina vel og átti Róbert Quental ekki roð í unga piltinn sem pakkaði honum saman í hvert skipti sem Róbert reyndi að komast framhjá honum.

2. Einar Freyr

Einar sem er 2008 eins og Ási var gríðarlega öflugur á miðjunni, vann hvern boltann á fætur öðrum og kom honum vel frá sér. Það ætti eiginlega að gefa 2008 árganginum bestir.. því Sverrir kom sterkur inn af bekknum. Þessi árgangur Þórs á eftir að skila sér í enn meiri mæli í meistaraflokk.

Atvikið

Ragnar Óli gat ekki ákveðið sig hvort hann ætlaði að vera í liði eða úr liði, það endaði með því að hann var úr liði og settist á bekkinn.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Þórsarar hafa stimplað sig ákveðið inn í baráttuna um þessi fjögur umspilssæti en með sama áframhaldi gætu þeir hugsanlega dregið á efstu tvö liðin. Fyrir Breiðhyltinga þýðir þetta að botninn er enn þeirra og þaðan þurfa þeir að spyrna sér fyrr en seinna. Gústa bíður ærið verkefni en seinni hálfleikur hlýtur að gefa þeim von. Þá héldu þeir skipulagi betur og voru grimmari

Vondur dagur

Þetta var vondur fyrri hálfleikur hjá vörn Leiknis. Í báðum mörkum Þórs voru varnarmenn Leiknis skildir eftir í reyk og vissu þeir varla í hvorn fótinn þeir áttu að stíga. Einnig var þetta eðlilega vondur dagur fyrir Róbert Quental sem lét krakkann í bakverðinum rúlla sér upp.

Dómarinn - 8

Mjög vel dæmdur leikur. Lét leikinn fljóta vel og steig varla feilspor.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.