Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetElíza Gígja Ómarsdóttir
Breiðablik
Breiðablik
Besta-deild karla
Kópavogsvöllur
1 - 0
Vestri
Vestri
Viktor Karl Einarsson 10'1 - 0
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Blikar unnu bitlausa Vestramenn

Hvað réði úrslitum?

Blikarnir voru bara betri í leiknum heilt yfir. Voru miklu meira með boltann, komu sér oft í góðar stöður og voru í raun bara klaufar að hafa ekki unnið leikinn stærra. Vestramenn voru bitlausir fram á við og ógnuðu lítið á móti.

Bestu leikmenn

1. Anton Logi Lúðvíksson (Breiðablik)

Var valinn maður leiksins á vellinum og ég verð að taka undir það. Gríðarlega öruggur í öllu sínu og skilar boltanum vel frá sér. Var oft að koma samherjum í góðar stöður inn á vellinum og var líka áreiðanlegur í varnarvinnu og varðist með kjafti og klóm.

2. Viktor Karl Einarsson (Breiðablik)

Sömu sögu að segja af Viktori Karli og Antoni. Kemur liðsfélögum sínum oft í góðar stöður inn á vellinum og sýndi gæðin sem hann hefur í dag. Skoraði auðvitað eina mark leiksins sem var vissulega ákveðin gjöf en það þarf að skora úr þeim líka.

Atvikið

Í leik þar sem lítið var um stór atvik verður sigurmarkið að vera atvik leiksins. Morten Ohlsen, sem er nú oftast áreiðanlegur í sínum aðgerðum, gerðist sekur um vond mistök þegar hann hitti ekki boltann, sem rann undir hann og Viktor Karl komst einn í gegn og kláraði færi af yfirvegun.

Hvað þýða úrslitin?

Blikarnir fara upp að hlið Víkinga á toppnum en þó bara upp í annað sætið vegna lakari markatölu. Vestramenn sitja enn þá í 6. sætinu en samt ekki nema fjórum stigum frá fallsæti, svo þéttur er pakkinn.

Vondur dagur

Vestramenn hafa verið í vandræðum með að skora mörk undanfarið og hafa aðeins skorað tvö mörk í síðustu fimm í deildinni. Það var mikið rætt hversu mikið þeir voru að skora ef miðað var við vænt mörk hjá þeim í upphafi móts og mögulega er sú tölfræði farin að narta í hælana á þeim í dag. Þeir voru ekki nægilega klínískir til að fá eitthvað út úr þessum leik í dag og varla að Anton Ari hafi þurft að hafa sig allan við einu sinni í leiknum.

Dómarinn - 7

Mér fannst Sigurður Hjörtur dæma leikinn heilt yfir vel. Ansi mörg gul spjöld sem litu dagsins ljós en þau voru langflest réttlætanleg að mér fannst. Davíð Smári var ósáttur við dómarateymið eftir leik vegna þess hvernig var talað í garð hans og hans þjálfarateymis, sagði að það hefði verið gargað á þá eins og um börn væri að ræða, en þar sem ég varð nú ekki vitni af því látum við það liggja á milli hluta.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.