Fotbolti.net
@fotboltinetEinar Már Þórólfsson
Völsungur
Völsungur
Lengjudeild karla
PCC völlurinn Húsavík
Logn, skýjað og 13 gráður.
2 - 3
ÍR
ÍR
0 - 113' Bergvin Fannar Helgason0 - 238' Emil Nói SigurhjartarsonArnar Pálmi Kristjánsson 43'1 - 21 - 345' Emil Nói SigurhjartarsonElmar Örn Guðmundsson 60'2 - 3
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason

SKÝRSLAN: Topplið ÍR með góðan sigur

Hvað réði úrslitum?

Virkilega góður fyrri hálfleikur hjá ÍR var lykillinn að sigrinum. Þeir gerðu svo vel að halda aftur af heimamönnum í þeim seinni.

Bestu leikmenn

1. Emil Nói Sigurhjartarson

Tvö mörk hjá Emil í dag og bæði þeirra virkilega snyrtileg.

2. Bergvin Fannar Helgason

Mark og stoðsending hjá framherja ÍR-inga, góður leikur hjá honum. Elmar Örn Guðmundsson leikmaður Völsungs gerði það sama fyrir heimamenn og hefði verið hér hefðu þeir jafnað.

Atvikið

Seinna mark Emils. Völsungar minnkuðu muninn á 43. mínútu og allt stefndi í að þeir færu inn í hálfleikinn bara marki undir og með höfuðið hátt en mark Emils undir lok fyrri hálfleiks barði heimamenn aftur niður á jörðina.

Hvað þýða úrslitin?

ÍR fer aftur upp fyrir Njarðvík og eru á toppnum. Breiðhyltingar eru ólseigir og gefa ekkert eftir. Völsungur er enn með 14 stig og eru þeir grænu farnir að færast nær botnbaráttunni. Gríðarlega mikilvægur Mærudagaleikur gegn Selfoss næstu helgi.

Vondur dagur

Völsungsliðið í fyrri hálfleik. Ekki gott.

Dómarinn - 7

Nenni ekki að spá of mikið í dómgæslunni.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.