Fotbolti.net
@fotboltinetEinar Már Þórólfsson
Völsungur
Völsungur
Lengjudeild karla
PCC völlurinn Húsavík
Skýjað, logn, 12 gráður.
4 - 0
Selfoss
Selfoss
Jakob Héðinn Róbertsson 9'1 - 0Jakob Héðinn Róbertsson 33'2 - 0Jakob Héðinn Róbertsson 81'3 - 0Ismael Salmi Yagoub 83'4 - 0
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Öruggur sigur Völsungs á Mærudögum

Hvað réði úrslitum?

Jakob Héðinn Róbertsson. Þvílíkur leikur hjá bárðdælingnum. Skoraði þrennu og ógnaði sífellt með hraða sínum og krafti.

Bestu leikmenn

1. Jakob Héðinn Róbertsson

Alveg magnaður í dag. Þrenna og var alltaf að ógna. Þvílíkur leikmaður úr bárðardalnum! Óstimplaða lambakjötið gefur auka kraft.

2. Arnar Pálmi Kristjánsson

Fyrirliðinn var frábær eins og alltaf. Áreiðanleiki er orð til að lýsa honum.

Atvikið

Þriðja mark Jakobs. Gekk algjörlega frá leiknum.

Hvað þýða úrslitin?

Völsungar ná að skilja sig aðeins frá fallpakkanum í bili. Selfoss eru í bullandi fallbaráttu og geta eflaust ekki beðið eftir að húsvíkingurinn Jón Daði mætir til leiks.

Vondur dagur

Alfredo Ivan Sanabria. Sá litli möguleiki sem að Selfoss átti dó alveg með rauða spjaldinu sem Alfredo fékk.

Dómarinn - 7

Handboltadómarinn var bara ágætur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.