SKÝRSLAN: Markametið jafnað og Schram með leik lífs síns
Hvað réði úrslitum?
Valsarar byrjuðu betur og náðu marki snemma. Eftir það tók FH öll völd á vellinum en Frederik Schram hélt Völsurum inn í leiknum með fullt af frábærum vörslum. Valur bætti svo við fleiri mörkum með skyndisóknum og þegar þeir voru komnir í 3-0 var þetta aldrei spurning. Þótt að FH hafi náð einu sárabótarmarki.
Bestu leikmenn
1. Frederik Schram (Valur)
Schram var einfaldlega stórkostlegur í dag. Eitt skipti sem hann tók tvöfalda vörslu, og alveg 2-3 vörslur í viðbót sem voru á einhverjum öðrum klassa en við erum vön að sjá á Íslandi.
2. Patrick Pedersen (Valur)
Patrick var ekki næst besti maður vallarins en fær nafnbótinu eingöngu vegna þess að hann jafnaði markametið með fyrsta marki leiksins. 131 mark í efstu deild, alveg stórkostlegt. Þeir sem mega vera svekktir að ég skildi ekki hafa valið þá eru mögulega Lúkas Logi Heimisson og Adam Ægir Pálsson.
Atvikið
Tvöfalda varslan hjá Frederik Schram kemur á 56. mínútu, alveg frábærlega gert hjá honum. Staðan í leiknum var 1-0 á þeim tímapunkti en aðeins tveimur mínútum síðar kemst Valur í 2-0.
Hvað þýða úrslitin?
Valur er í toppsæti deildarinnar tveimur stigum á undan Breiðablik og Víking. FH er í 8. sæti en pakkinn fyrir neðan er gríðarlega þéttur. Tvö önnur lið eru með jafn mörg stig og FH, KR er einu stigi á eftir, og ÍA þremur stigum á eftir.
Vondur dagur
Erfitt að velja einhvern einn í varnarleik FH sem átti slæman dag. Þeir fá tvö mörk á sig úr skyndisóknum þar sem menn voru alveg sofandi, og Heimir Guðjóns var rosalega svekktur út í það.
Dómarinn - 8
Það var frekar mikið af spjöldum sem fóru á loft en í fljótu bragði get ég ekki sagt að ég hafi verið ósammála eitthvað af þeim. Heilt yfir vel dæmt hjá Jóhanni Inga og félögum.




