Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetAlexander Tonini
Alexander Tonini
Besta-deild karla
Lambhagavöllurinn
Fram
Fram
2 - 2
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 129' Nikolaj Andreas HansenJakob Byström 41'1 - 11 - 271' Atli Þór JónassonKennie Knak Chopart 95'2 - 2
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: Framarar stela stigi í dal draumanna - Víkingar svekktir

Hvað réði úrslitum?

Úrslitin réðust með flautumarki frá Kennie Chopart, en fram að því virtust heimamenn ekki líklegir til að jafna. Víkingar sofa eflaust illa í nótt eftir leik sem þeir voru betri aðilinn í og bjuggu til fleiri marktækifæri. Þeir fengu góð tækifæri til að komast tveimur mörkum yfir áður en Fram jafnaði metin – en svona er fótboltinn.

Bestu leikmenn

1. Valdimar Þór Ingimundarson

Það er auðvelt að skilja af hverju önnur lið í deildinni hafa áhuga á honum. Eins og Sölvi benti á, þá er hann einn af betri leikmönnum deildarinnar – og hann sannaði það svo sannarlega í dag. Undirbúningurinn að stoðsendingunni á Atla Þór var stórkostlegur; hann lék á þrjá leikmenn Fram, fór glæsilega milli Simons og Sigurjóns og átti svo hárnákvæma sendingu á Atla Þór, sem þurfti vart annað en að stýra boltanum í netið.

2. Viktor Freyr Sigurðsson

Framarar viðurkenndu sjálfir að þeir hefðu verið heppnir að labba héðan með eitt stig. Þeir geta fyrst og fremst þakkað markverði sínum fyrir það. Viktor Freyr átti stórleik, bjargaði liðinu ítrekað og gat lítið gert í þeim tveimur mörkum sem hann fékk á sig. Kennie Chopart gerði einnig tilkall, en heilt yfir var Viktor Freyr mikilvægari sínu liði

Atvikið

Atvikið sem stendur upp úr er klárlega flautumarkið – síðasta spyrna leiksins. Brotið er á Sigurjóni rétt fyrir utan teig á 95. mínútu og Fram fær aukaspyrnu, um 20 metra frá marki vinstra megin. Kennie Chopart sér glufu í varnarveggnum, nýtir sér hana og þrýstir boltanum í nærhornið niðri. Markið jafnar leikinn – og fagnaðarlátin sem fylgdu voru ekki síður eftirminnileg

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin gera í raun lítið fyrir bæði lið. Víkingum tekst ekki að jafna Val að stigum, og Framarar ná ekki að treysta stöðu sína í fjórða sæti. Þetta er stig sem, miðað við stöðuna núna, hentar hvorugu liðinu sérlega vel

Vondur dagur

Pablo Punyed átti erfitt uppdráttar í kvöld. Hann er nýkominn til baka eftir meiðsli og virtist enn ekki kominn í leikform – bæði hægur í förum og seinn í ákvarðanatöku. Hann var tekinn af velli á 57. mínútu og varamaður hans, Tarik Ibrahimagic, kom sterkur inn og minnti helst á Rodri í samanburði. Það má með sanni segja að Pablo hafi ekki verið líkur sjálfum sér í kvöld

Dómarinn - 6

Helgi Mikael og hans teymi stóðu sig ágætlega í dag. Þó er óskiljanlegt hvernig Kyle slapp við spjald á 32. mínútu eftir brot á Óskari – og fleiri atriði voru til umræðu sem ég var ósammála. Þrátt fyrir það hélt Helgi góðu flæði í leiknum og missti aldrei tökin, sem er kannski það sem mestu máli skiptir í stóru myndinni
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.