Tilboðum í Maguire hafnað - Sesko velur Old Trafford - Villa búið að ná samkomulagi um Guessand
Zrinjski Mostar
0
0
Breiðablik
07.08.2025  -  18:00
Stadium of HSK Zrinjski
Forkeppni Evrópudeildarinnar
Dómari: Enea Jorgji (Albanía)
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Liðin hafa mæst áður Liðin þekkjast ágætlega en þau hafa mæst tvisvar áður.

Viðureignir liðanna
17. ágúst 2023: Breiðablik 1 - 0 Zrinjski Mostar
10. ágúst 2023: Zrinjski Mostar 6 - 2 Breiðablik
Fyrir leik
Lykilmenn Nemanja Bilbija er lykilmaður í liði Zrinjski Mostar en hann er upp á topp í liði þeirra. Hann er mikill markahrókur og mun varnarlína Blika þurfa að hafa gætur á honum. Karlo Abramovic er lykilmaður á kantinum í liði Mostar en hann hefur verið að glíma við meiðsli og ólíklegt að hann taki þátt í leiknum.

Hins vegar gæti Aron Bjarnason verið frá vegna meiðsla í liði Blika en hann er lykilmaður í liði þeirra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Geta þessir Bosníumenn eitthvað? Þetta er spurning sem margir spyrja sig og ætla ég að gera mitt besta í að svara henni. Zrinjski Mostar hefur átta sinnum orðið meistari í heimalandinu og unnu t.a.m. deildina í fyrra. Þeir eru erfiðir heim að sækja og tapa ekki oft á sínum heimavelli.

Þeir voru eins og Blikar í forkeppni Meistaradeildarinnar en þeir mættu Virtus frá San Marínó og gerðu sér lítið fyrir og unnu einvígið 4-1. Því næst mættu þeir grönnum sínum frá Slovan Bratislava en þeir töpuðu þeir fyrri leiknum 4-0 en gerðu jafntefli við þá á sínum heimavelli. Zrinjski Mostar er sterkt lið og munu Blikar þurfa á öllum sínum hestum að halda gegn þeim.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Gengi Breiðabliks í Evrópu á þessu tímabili Breiðablik spilaði í forkeppni Meistaradeildarinnar en eru nú komnir niður í forkeppni Evrópudeildarinnar. Þeir spiluðu tvö einvígi gegn Egnatia og Lech Poznan.

Leikir Breiðabliks í forkeppni Meistaradeildarinnar
Egnatia 1 - 0 Breiðablik
Breiðablik 5 - 0 Egnatia

Lech Poznan 7 - 1 Breiðablik
Breiðablik 0 - 1 Lech Poznan
Fyrir leik
Evrópudeildin heilsar!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Verið hjartanlega velkomin í textalýsingu frá forkeppni Evrópudeildarinnar en Zrinjski Mostar frá Bosníu og Hersegóvínu mun taka á móti Breiðabliki á heimavelli sínum.
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: