SKÝRSLAN: Dramatík á Ísafirði
Hvað réði úrslitum?
Vestra menn voru grimmari þegar þeir lentu undir og svo gerði Fatai bara mjög vel í lokinn og bjó til þetta úrslitamark.
Bestu leikmenn
1. Fatai Gbadamosi
Hann var frábær í dag aftastur að vinna alla bolta og svo líka sem fremsti maður í hápressu, vinnur boltann í lok leiks hleypur upp kanntinn og býr til sigurmark fyrir Vestra!
2. Guy Smit
Hann fékk á sig 2 mörk í dag en lítið sem hann gat gert í því hann bjargaði Vestra meistaralega í 3 skipti a.m.k þess vegna gef ég honum næst bestur en fleiri komu til greina.
Atvikið
Úrslitamarkið á 91 mínútu Fatai vinnur boltann hátt upp á vellinum og rennir honum á Gunnar sem vinnur leikinn fyrir Vestra. Ætla líka gefa shout á upphafsspyrnu þessa leiks sem Fram sparkaði bara beint í innkast fyrir Vestra eins og PSG gerði gegn Inter í úrslitum Meistaradeildarinnar
Hvað þýða úrslitin?
Fyrsta tap Fram síðan 2. júní og þeir fara niður í 5.sæti en gætu endað þessa umferð i 6.sæti.
Vestri fara upp í 4.sæti með 26 stig en Stjarnan á leik til góða og gætu farið upp fyrir þá
Vondur dagur
Diego Montiel hefur átt betri daga, fannst hann bara mjög slakur í dag missti boltann oft útaf og skapaði voðalega lítið.
En vörnin hjá Fram var ekkert sérstök í dag heldur.
Dómarinn - 6
Það er spurning um eitt víti en ég sá það ekki nógu vel hvort Guy hafi tekið boltann fyrst eða hvort hann hafi tekið Fred niður en annars var dómarinn bara fínn í dag



