SKÝRSLAN: Breiðablik enn á toppnum eftir útisigur
Hvað réði úrslitum?
Sókn Blika var alveg fullkominn í dag og það gekk mjög vel að komast í gegnum vörn Víkings, hornin hennar Öglu voru líka að ganga vel. Blikar missti smá fókus á kafla eftir þriðja markið og náði Víkingur að skora tvö mörk en Nik gerir 3 leikmanna skiptingu og þá taka Blikar aftur yfir leikinn.
Bestu leikmenn
1. Agla María Albertsdóttir
Átti flottan leik í dag og byrjaði leikinn með flottu marki, hornin hennar og aukaspyrnur voru stórhættulegar og Víkingar áttu í erfiðleikum gegn þeim.
2. Berglind Björg Þorvaldsdóttir
Tvö mörk í dag og vörn Víkinga átti í erfiðleikum með að höndla hana, alvöru striker mörk þar sem staðsetning hennar var alveg fullkomin.
Atvikið
Leikurinn var mjög jafn upp að fyrsta marki Breiðabliks og þá taka Blikar alveg yfir leikinn, Víkingur ná tveimur mörkum til baka á góðum kafla en Blikar tóku svo strax aftur yfir leikinn eftir 3 leikmanna skiptingu og sigldu sigrinum heim.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik er enn á toppnum með 6 stiga forskoti, Víkingur er enn í níunda sæti en Tindastóll á eftir að spila og sá leikur getur verið mikilvægur fyrir Víkinga.
Vondur dagur
Enginn sérstakur leikmaður en Gígja og Áslaug í hjarta vörn Víkinga voru í erfiðleikum og voru Blikar oft að sleppa í gegn og að komast í góðar stöður. Það má líka segja að vörn Víkinga í hornunum var slæm og þarf að styrkja þar.
Dómarinn - 7
Ágætur og engin vafaatriði í dag, ekki hægt að gefa honum 10 þar sem þetta var ekki erfiður leikur að dæma.




