Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetFannar Bjarki Pétursson
FHL
FHL
Besta-deild kvenna
Fjarðabyggðarhöllin
3 - 2
Fram
Fram
Calliste Brookshire 14'1 - 0Alexia Marin Czerwien 86'2 - 02 - 193' Alda ÓlafsdóttirTaylor Marie Hamlett 98'3 - 13 - 299' Alda Ólafsdóttir
Dómari: Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson

SKÝRSLAN: Fyrsti sigur FHL í sumar!

Hvað réði úrslitum?

Bara ákefðin og baráttan í FHL liðinu, Hrikalega vel skipulagðar lengst af í leiknum, Voru aðeins farnar að þreytast í lokin og þá gengu Fram konur á lagið. FHL klaufar að skora ekki nokkur mörk í fyrrihálfleiknum.

Bestu leikmenn

1. Embla Fönn Jónsdóttir

Geggjuð í markinu í dag, Örugg í sínum aðgerðum, Greip vel inní og átti nokkrar stórar og mikilvægar vörslur í seinni hálfleiknum. Mjög góður leikur hjá þessum unga og efnilega markmanni.

2. Alexia Marin Czerwien

Vinnan sem hún skilaði inná miðjunni í dag var ótruleg, Hljóp úr sér lungun og var sífellt í baráttu sem hún oftast vann, Skorar einnig mark og það var dólgur í henni og læti sem smitaði út frá sér til annarra leikmanna, Flottur leikur hjá henni. Calliste var einnig mjög góð.

Atvikið

Fyrsta mark leiksins gaf FHL liðinu blóð á tennurnar og maður sá hvað það skipti þær máli og eftir það voru þær allar á sama máli að klára fyrsta leikinn sinn í sumar.

Hvað þýða úrslitin?

Fyrsti sigur FHL í sumar en þær eru ennþá lang neðstar á botninum með 3 stig, Þetta hlýtur samt að gefa þeim hellings kraft og gleði fyrir restina af mótinu. Fram liðið situr í 7.sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Enginn, Bæði lið spiluðu ágætis leik en ég gef bara Fram liðinu þetta að þurfa ferðast aftur heim með 0 stig í pokanum.

Dómarinn - 8

Flottur í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.