Arsenal hefur áhuga á Rogers - Elliott færist nær Leipzig - Forest hefur áhuga á Carmona og Cash
Keflavík
0
0
Völsungur
23.08.2025  -  17:00
HS Orku völlurinn
Lengjudeild karla
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Keflavík Keflvíkingar misstigu sig í síðustu umferð gegn Fylki og máttu þola 4-0 tap á útivelli. Keflavík eru í hörku baráttu um að ná umspilsæti og sitja þremur stigum á eftir HK fyrir þessa umferð þegar tólf stig eru eftir í pottinum.

Keflavík verður því að vinna hér í dag til þess að halda í möguleikann á umspilsæti.

Keflavík hefur skorað 38 mörk í sumar og hafa þessi mörk raðast niður á:

Kári Sigfússon - 8 mörk
Muhamed Alghoul - 4 mörk
Marin Mudrazija - 4 mörk
Ásgeir Páll Magnússon - 2 mörk
Frans Elvarsson - 2 mörk
Eiður Orri Ragnarsson - 2 mörk
Ari Steinn Guðmundsson - 2 mörk
*Aðrir minna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Völsungur Völlarar hafa tapað síðustu tveimur leikjum sínum í deild gegn Þór Ak og Leikni R. Þeir vonast til þess að komast aftur á sigurbraut hér í Keflavík.

Völsungur getur með sigri farið langleiðina með að segja skilið við fallsvæðið en þeir eru fyrir þessa umferð fjórum stigum frá rauðu línunni.

Völsungur hafa skorað 30 mörk í sumar og hafa þessi mörk raðast niður á:

Jakob Héðinn Róbertsson - 8 mörk
Elfar Árni Aðalsteinsson - 6 mörk
Arnar Pálmi Kristjánsson - 4 mörk
Ismael Salmi Yagoub - 3 mörk
Sergio Parla Garcia - 2 mörk
Rafnar Máni Gunnarsson 2 mörk
*Aðrir minna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið! x
Fyrir leik
Velkomin á HS Orkuvöllinn! Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Keflavíkur og Völsungs í nítjándu umferð Lengjudeild karla sem fram fer á HS Orku vellinum í Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: