Fotbolti.net
Besta deildin
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Breiðablik
Breiðablik
Besta-deild kvenna
Kópavogsvöllur
5 - 0
Tindastóll
Tindastóll
Berglind Björg Þorvaldsdóttir 2'1 - 0Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir 11'2 - 0Agla María Albertsdóttir 12'3 - 0Berglind Björg Þorvaldsdóttir 21'4 - 0Agla María Albertsdóttir 29'5 - 0
Dómari: Jovan Subic

SKÝRSLAN: Markamikill sigur á heimvelli hjá Breiðablik

Hvað réði úrslitum?

Blikar voru með mikla yfirburði allan leikinn og Tindastóll átti ekkert í þær. Tindastóll stóð sig vel að verjast og hægja leikinn í seinni hálfleik, en það var orðið allt of seint þar sem Blikar skoruðu fimm eftir 30 mínútur.

Bestu leikmenn

1. Agla María Albertsdóttir

Skapaði mikið og skoraði tvö mörk í þessu leik. Mjög flottur leikur hjá Öglu.

2. Berglind Björg Þorvaldsdóttir

Berglind líka með tvö mörk og var mjög flott í þessum leik. Bætir í markafjöldann hennar sem markahæðst í deildinni í ár.

Atvikið

Það var lítið sem gerðist í þessum leik annað en þessi 5 mörk frá Blikum í fyrstu 30 mínútum leiksins.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik halda fast í fyrsta sætið og hafa sigrað núna 6 leiki í röð. Tindastóll eru enn í 8. sæti.

Vondur dagur

Tindastóll í heild sinni átti lélegan leik í dag og fengu allt of mörk mörk á sig. Það var búist vel við því að Tindastóll myndi eiga erfiðan leik í Kópavogi, en að fá fimm mörk er ekki fallegt. Genevieve Jae Crenshaw átti alls ekki góðan leik í dag í markinu og gerði alls ekki vel í svona tvö til þrjú mörk leiksins. Framherjar Tindastól sömu leiðis gerðu lítið í dag og skapaði Tindastól aðeins nokkur færi í leiknum.

Dómarinn - 8

Lítið að stórum ákvörðum í dag. Ég hefði viljað sjá spjaldið fara upp á loft í einu eða tveim brotum þar sem það koma ekki. En annars var línan flott.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.