SKÝRSLAN: Auðveldur sigur FH
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í dag var einfaldlega hvað FH mættu ótrúlega grimmar og tilbúnar frá fyrstu mínútu. Þær óðu í færum allan leikinn og hefðu auðveldlega geta sett fleiri. Lítil grimmd í sóknarleik Þróttar og í raun mjög lítið ógnandi fram á við.
Bestu leikmenn
1. Thelma Lóa Hermannsdóttir
Var flott í kvöld, skoraði fyrsta markið og átti bæði góðar fyrirgjafir og ágætis tilraunir sjálf. Annars gæti ég nánast bara talið upp allt FH liðið þær voru allar ótrúlega góðar.
2. Mollee Swift
Hjá Þrótturum var Mollee klárlega best í dag, þrátt fyrir að hafa fengið á sig 3 mörk. Hún átti rosalegar vörslur í fyrri hálfleik og hélt Þrótturum inn í leiknum lengst af.
Atvikið
Set þetta á fyrsta mark FH. Arna fyrirliði, með stoðsendingu úr vörn FH annan leikinn í röð, boltinn dettur fyrir Thelmu Lóu sem á skemmtilega snertingu utanfótar og yfir Mollee í marki Þróttar á lokamínútum fyrri hálfleiks. Ísinn loksins brotinn og hefði getað reynst FH-ingum dýrkeypt að fara markalausar inn í hálfleik.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða einfaldlega að FH taka stigin þrjú! og eru komnar með 6 stiga forskot á Þrótt og ekki nema 5 stigum á eftir toppliði Breiðabliks. Þróttarar hins vegar að tapa mikilvægum stigum í toppbaráttunni þriðja leikinn í röð.
Vondur dagur
Sóknarleikur Þróttara var ekki upp á marga fiska og í raun var lítil sem engin ógn af honum...
Dómarinn - 7
Hreinn og félagar áttu ágætis leik í dag, spurning með vítaspyrnudóm í stað aukaspyrnu en það kom svo sem ekki að sök. Annars leyfðu þeir leiknum að fljóta nokkuð vel



