Fotbolti.net
@fotboltinetViktor Ingi Valgarðsson
KR
KR
Lengjudeild kvenna
Meistaravellir
7 - 2
Haukar
Haukar
0 - 19' Ágústa María ValtýsdóttirKara Guðmundsdóttir 20'1 - 11 - 238' Elín Björg Norðfjörð SímonardóttirLina Berrah 46'2 - 2Lina Berrah 55'3 - 2Lina Berrah 58'4 - 2Katla Guðmundsdóttir 73'5 - 2Lina Berrah 79'6 - 2Makayla Soll 82'7 - 2
Dómari: Magnús Garðarsson

SKÝRSLAN: Ótrúlegur seinni hálfleikur hjá KR skilaði 3 punktum

Hvað réði úrslitum?

Ótrúlegur seinni hálfleikur hjá KR þar sem nánast allt gekk upp. Leikurinn var í fínu jafnvægi í fyrri hálfleik, en svo virtist sem KR-ingar einfaldlega vildu gefa áhorfendum í sólinni sýningu og 3 stig á heimavelli og niðurstaðan

Bestu leikmenn

1. Lina Berrah

Segir sig sjálft, 4 mörk skila henni Maður Leiksins

2. Rakel Grétarsdóttir

Var allt í öllu á kantinum, skapaði mikið og pressan hennar skilaði einu marki fyrir liðið

Atvikið

Seinni hálfleikurinn, ég get ekki endurtekið það nógu oft hversu góð innkoma KR-inga var í seinni hálfleik. Byrja með marki á fyrstu mín og héldu allan tímann áfram. Lina kominn með þrennu eftir 12mínútur í seinni!!

Hvað þýða úrslitin?

KR taka 3 stig í síðasta heimaleik sínum og komnar með 25 stig þæginlegar í 5.sæti. Haukar ennþá með 19 stig í 7.sæti en gætu dottið í 8. ef Keflavík vinnur á Laugardaginn

Vondur dagur

Hauka vörnin fær á sig 7 mörg í kvöld. Viktoría í markinu hjá þeim var fín í fyrri en einhvern veginn virtist allt fara inn hjá KR í seinni. Mikið af skotum sem vörnin tók í fyrri tók hún ekki seinni.

Dómarinn - 8

Flott dómgæsla í kvöld, ekkert hægt að sitja útá neitt. Gott flæði í leik og virtust hitta alla dóma rétt
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.