Fotbolti.net
Besta deildin
Sölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Besta-deild karla
Malbikstöðin að Varmá
Afturelding
Afturelding
1 - 2
FH
FH
0 - 129' Björn Daníel SverrissonHrannar Snær Magnússon (víti) 34'1 - 11 - 257' Sigurður Bjartur Hallsson
Dómari: Pétur Guðmundsson
Myndir: Helgi Þór Gunnarsson
Leik lokið!
FH vinnur þennan mikilvæga leik
Aron Jóh tekur spyrnuna inn á teiginn sem Mosfellingar skalla framhjá og Pétur flautar síðan leikinn af.

Takk fyrir samfylgdina í dag.
96. mín
Afturelding að fá horn!
Einn séns í viðbót!
94. mín
Aron Elí tekur spyrnuna inn á teiginn, það myndast smá klafs inni á teignum áður en boltinn fer af Mosfelling og aftur fyrir í markspyrnu.
94. mín
Afturelding að fá horn!
91. mín
Fáum við dramatík í þetta?
90. mín
+6 mínútur í uppbótartíma
87. mín
Aron Jóh tekur spyrnuna inn á teiginn sem FH-ingar standa af sér en sóknarpressa Mosfellinga heldur áfram.

86. mín
Afturelding að fá hornspyrnu!
FH
85. mín
InnJóhann Ægir Arnarsson
ÚtBjörn Daníel Sverrisson
FH
85. mín
InnDagur Örn Fjeldsted
ÚtKjartan Kári Halldórsson
83. mín
Aron Elí tekur spyrnuna inn á teiginn sem Rosenörn nær að kýla frá. Það myndast smá klafs inni á teignum áður en Pétur dæmir brot á Aftureldingu.
83. mín
Afturelding að fá horn!
Goggi Bjarna fær boltann við vítateigslínuna og reynir skotið sem fer í varnarmann og aftur fyrir í hornspyrnu.
79. mín
Afturelding í alvöru færi!
Aron Jóh fær boltann inni á teignum í sinni draumastöðu og reynir skotið á markið áður en hann leikur á varnarmann FH. Hann tekur síðan skotið á markið en Ahmed Faqa nær að koma löppinni fyrir skotið.
FH
78. mín
InnEinar Karl Ingvarsson
ÚtGrétar Snær Gunnarsson
Lenti í einhverju hnjaski og þurfti aðhlynningu. Hann fer af velli og það er Einar Karl sem kemur inn í hans stað.
72. mín
Aftureldinga spilar sig vel upp völlinn. Það kemur bolti inn á teiginn sem dettur skemmtilega fyrir Aroni Elí fyrir utan vítateiginn. Hann reynir skotið sem fer rétt framhjá.
FH
70. mín
InnBragi Karl Bjarkason
ÚtKristján Flóki Finnbogason
69. mín
Afturelding að fá hornspyrnu!
66. mín
Leikurinn hefur róast aðeins eftir mark Sigurðar. Mosfellingar hafa skipt um gír og haldið ívið meira í boltann. Þeir eru að hóta jöfnunarmarki. Spurning hvort Arnór Gauti nái að blása einhverju líf í sóknarleik heimamanna.
Afturelding
65. mín
InnArnór Gauti Ragnarsson
ÚtÞórður Gunnar Hafþórsson
FH
57. mín
Vafasamur dómur!

Sigurður Bjartur Hallsson (stoðsending: Kjartan Kári Halldórsson)

Þetta verður eitthvað rætt á næstu dögum!

Kjartan Kári kemur með góðan bolta inn á teiginn sem Jökull og Sigurður Bjartur hoppa upp í. Jökull missir boltann í baráttunni við Sigga og Sigurður skorar.

Mosfellingar brjálaðir þarna og vildu fá brot. Skil þá afar vel en það er spurning hvort Jökull hafi verið kominn með fullt vald á boltann.
50. mín
Heimamenn í færi
Sævar Atli fær boltann inni á teignum einn á auðum sjó en setur boltann rétt framhjá.
47. mín
Böddi Löpp tekur spyrnuna inn á teiginn sem Mosfellingar hreinsa frá.
46. mín
FH að fá hornspyrnu!
46. mín
Seinni er hafinn!
FH-ingar byrja þetta fyrir okkur í þeim seinni.
Afturelding
46. mín
InnSævar Atli Hugason
ÚtAketchi Luc-Martin Kassi
Ein breyting í hálfleik hjá Magga
45. mín
Stúkuvaktin
Það eru nokkur þekkt andlit í stúkunni í dag. Sveppi Krull er meðal gesta, Kristján Óli eða nánar tiltekið Höfðinginn, Aron Pálmason goðsögn í FH og íslenskum handbolta, Hákon Örn Hjálmarsson leikmaður í Bónus deildinni í körfubolta er mættur, John Andrews fyrrum þjálfari kvennaliðs Víkinga R. er að horfa á leikinn, Twana Khalid Ahemd dómari og aðrir góðir gestir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Hálfleikur
Jafnt í hálfleik
Þá er Pétur Guðmundsson búinn að flauta til hálfleiks og staðan er 1-1. Tökum okkur korterspásu.
40. mín
Leikurinn hefur aðeins róast eftir jöfnunarmark Hrannars. Bæði lið skiptast á að halda í boltann en gera lítið við hann.
Afturelding
34. mín
Frábær vítaspyrna hjá Hrannari!

Hrannar Snær Magnússon

Rosenörn fer í rétt horn en þetta var bara það fast og öruggt víti að hann átti ekki séns.

Það verður áhugavert að sjá hvernig FH-ingar svara þessu en þeir hafa að mínu mati verið mikið sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum.
34. mín
Afturelding að fá vítaspyrnu!
Baldur Kári tæklar Bjart Bjarma niður í teignum og Pétur bendir á punktinn réttilega.
FH
29. mín
FH-INGAR LEIÐA!

Björn Daníel Sverrisson (stoðsending: Kjartan Kári Halldórsson)

Frábær sending hjá Kjartani Kára inn á vítateig Mosfellinga sem Björn Daníel stangar í netið. Frábærlega gert hjá Kjartani og Birni.

FH-ingar hafa tekið forystuna og það sanngjarnt að mínu mati.
24. mín
Svona sé ég þetta
Afturelding (4-2-3-1)
Jökull
Georg - Aron - Axel - Aron Elí
Bjartur - Aron Jóh
Þórður - Kassi - Hrannar
Stokke

FH (4-2-3-1)
Rosenörn
Birkir - Faqa - Ísak - Böðvar
Balur - Grétar
Kristján - Björn - Kjartan
Sigurður
23. mín
Jökull gerir vel í mjög erfiðri stöðu að blaka boltanum í burtu. Fáranlega góðar spyrnur hjá Bödda, þetta fer allt bara beint á markið, nánast skot.
22. mín
Enn og aftur blakar Jökull boltanum yfir í annað horn.
21. mín
Enn og aftur eru gestirnir að fá hornspyrnu
20. mín
Kjartan Kári kemur með bolta fyrir markið úr aukaspyrnu beint á pönnuna á Sigga Hall sem skallar á markið en Jökull ver örugglega.
18. mín
FH í góðu færi
Frábært spil hjá FH-ingum upp völlinn. Kristján Flóki sendir boltann fyrir markið á Björn Daníel sem er kominn í góða skotstöðu inn á teignum en neglir boltanum yfir markið.
13. mín
Afturelding spilar sig vel upp völlinn og það er Þórður Gunnar sem fær boltann inni á vítateignum. Hann reynir skotið sem fer rétt yfir.
12. mín
Þvílíkar hornspyrnur
Böddi tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer aftur á markið og Jökull er í brasi á marklínunni en nær alltaf að kýla boltann í burt með herkjum.

Svakalegar hornspyrnur hjá Bödda.
11. mín
FH að fá sína fimmtu hornspyrnu í þessum leik
8. mín
Mosfellingar verjast þessu og koma boltanum í burtu.
7. mín
FH að fá hornspyrnu
6. mín
Kjartan Kári tekur spyrnuna inn á teiginn en heimamenn ná að hreinsa þessu frá.
5. mín
Þriðja hornið
Böddi tekur aðra hornspyrnu sem fer af Mosfelling og í aðra hornspyrnu hinum meginn.
5. mín
Böddi Löpp tekur spyrnuna inn á teiginn sem Jökull þarf að blaka aftur fyrir í annað horn.
4. mín
FH-ingar að fá hornspyrnu
1. mín
Leikur hafinn
Það eru heimamenn, nánar tiltekið Benjamin Stokke, sem byrjar þetta fyrir okkur í dag.
Fyrir leik
Styttist
Þá ganga liðin til vallar og gera sig klár í slaginn.
Fyrir leik
Gervigras grýla FH-inga sigruð, eða hvað?
Þótt FH hafi unnið Blika á útivelli eru líkurnar ekki með þeim á gervigrasi. Bæjarhátíð í mosó og “gómurinn” segir alltaf að lið tapi ekki þegar það er bæjarhátið. Afturelding sigur er á stuðli 3 á epic.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, gerir eina breytingu frá 4-3 tapinu gegn Val.

Aron Jóhannsson kemur inn fyrir Bjarna Pál Linnet Runólfsson sem tekur sér sæti á bekknum.

Grétar Snær Gunnarsson, Sigurður Bjartur Hallsson og Kristján Flóki Finnbogason koma allir inn hjá FH-ingum, en þeir Dagur Örn Fjeldsted og Bjarni Guðjón Brynjólfsson koma á bekkinn og þá er Tómas Orri Róbertsson í leikbanni.
Fyrir leik
Staðan
Mynd: Fótbolti.net

Fyrir leik
Arnar Sveinn spáir í spilin
Afturelding 3 - 1 FH (14:00 í dag)
Afturelding gæti varla verið með bakið meira klesst við vegginn, nema auðvitað að þeir tapi þessum leik. FH hafa fengið 20 af sínum 26 stigum á grasinu sínu fagra í Hafnarfirði. Til að halda þessu faglegu að þá verður að taka þetta til greina, vegginn og gervigrasið, og þar af leiðandi vinnur Afturelding þennan leik 3-1, þó að Epic séu ósammála mér.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fyrsti Bestu deildar leikur ársins hjá Pétri
Pétur Guðmundsson dæmir þennan leik í dag en þetta verður hans fyrsti Bestu deildar leikur ársins sem hann dæmir í ár. Hann hefur verið að dæma nokkra leiki í Lengjudeildinni til þessa. Honum til aðstoðar verða þeir Þórður Arnar Árnason og Eðvar Eðvarsson. Skiltadómari dagsins er Gunnar Freyr Róbertsson og eftirlitsmaður KSÍ er Þórður Georg Lárusson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
FH-ingar ætla sér í Evrópu
FH hefur ekki tapað í fjórum leikjum en í seinustu umferð björguðu þeir stigi í dramatískum leik gegn ÍBV með jöfnunarmarki, flautumarki, frá Kjartani Kári beint úr aukaspyrnu, seinasta spyrna leiksins. Eins og staðan er núna eru þeir komnir upp í 5. sætið, 6 stigum frá Blikum í 4. sætinu og 8 stigum frá 3. sætinu sem er Evrópusæti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Mosfellingar ekki unnið lengi
Afturelding hefur ekki unnið núna í 8 leikjum, seinasti sigur Mosfellinga kom í Vestmannaeyjum 23. júní. Afturelding heimsótti Valsmenn á Hlíðarenda í seinustu umferð og töpuðu 4-3. Í hálfleik var staðan 2-0 fyrir Aftureldingu en þeir misstu leikinn alveg niður í þeim seinni.

Eins og staðan er núna er Afturelding í fallsæti, tveimur stigum frá öruggu sæti.

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Sú lang Besta!
Heilir og sælir ágætu hlustendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu úr leik Aftureldingar og FH í Mosfellsbænum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.