Leik lokið!
Framarar sigla þessu heim eftir magnaðar lokamínútur
94. mín
Framarar virðast ætla að sigla þessu heim!
92. mín
InnBirkir Heimisson
ÚtSigurður Egill Lárusson
91. mín
Uppbótartíminn er 6 mínútur hið minnsta
91. mín
Eru Framarar að ganga frá þessu?!
Simon Tibbling
Frábært víti. Tibbling setur boltann í vinstra hornið og skorar af öryggi!90. mín
VÍTI!!
Freyr Sigurðsson neglir boltanum í hendina á Sigurði Agli og Gunnar Oddur dæmir á punktinn!
89. mín
InnMagnús Þórðarson
ÚtÞorri Stefán Þorbjörnsson
84. mín
Gult spjald
Aron Jóhannsson
84. mín
Gult spjald
Hólmar Örn Eyjólfsson
83. mín
Valsmenn sækja ansi hratt og í þetta skiptið á Lundemo skot en það fer yfir markið!
80. mín
Valsmenn þeytast nú upp og nú er það Tryggvi Hrafn en hann gefur boltann út í teiginn á Kristinn Frey sem nær góðu skoti en Viktor Freyr ver meistaralega!
79. mín
Þvílíkt færi!
Tibbling með frábæra fyrirgjöf inn á teiginn á Fred en hann ákveður að negla í fyrsta og yfir markið!
74. mín
InnLúkas Logi Heimisson
ÚtAlbin Skoglund
Tvöföld skipting.
74. mín
InnKristinn Freyr Sigurðsson
ÚtAdam Ægir Pálsson
72. mín
Leikurinn er farinn af stað aftur.
70. mín
Kennie Chopart liggur eftir í teig Framara en hann fær aðhlynningu.
67. mín
Israel Garcia vinnur boltann fyrir utan D-bogann og lætur vaða á markið. Stefan þurfti aðeins að hafa fyrir þessum.
63. mín
Skoglund neglir boltanum í andlitið á Haraldi Einari sem liggur eftir og fær aðhlynningu. Óviljaverk.
62. mín
Þá eru áhorfendatölur komnar í hús hér á Lambhagavellinum í kvöld en það eru 723 áhorfendur á vellinum.
59. mín
Þeir jafna!
Simon Tibbling (stoðsending: Freyr Sigurðsson)
Freyr Sigurðsson. Þvílíkur undirbúningur! Hann fær boltann í lappir, skilur Lundemo eftir í reyk, með því að lyfta boltanum snyrtilega yfir hann. Hann skilur svo boltann eftir fyrir Tibbling inn í teig sem klárar snyrtilega í hægra hornið.58. mín
Leikurinn er ansi rólegur þessa stundina.
52. mín
Haraldur Einar fellur við í teig Vals eftir samskipti við Orra Sigurð. Framarar kalla eftir víti. Gunnar Oddur gefur lítið fyrir það.
48. mín
Valsarar liggja á gestunum þessa stundina og sækja nú horn.
46. mín
Þá er þetta farið af stað aftur!
45. mín
Þá er nokkuð skemmtilegum fyrri hálfleik lokið. Gestirnir leiða!
45. mín
Uppbótartíminn er a.m.k. fjórar mínútur
43. mín
Hættuleg hornspyrna
Valsmenn með hættulega in-swing hornspyrnu á teiginn en Lundemo skallar rétt yfir!
39. mín
Tryggvi Hrafn sleppur nú einn í gegn á móti Viktori Frey og er eltur af Kennie en flaggið fer á loft. Í kjölfarið ýtir Kennie aðeins við Tryggva.
38. mín
Það er hiti í þessu. Nú sækir Fred aukaspyrnu og Hólmar Örn er allt annað en sáttur.
36. mín
Gult spjald
Israel Garcia Moreno
Nú fer Israel ansi hressilega í Albin Skoglund í skallaeinvígi og uppsker fyrir það spjald. Skoglund liggur eftir og fær aðhlynningu.35. mín
Adam Páls og Kennie Chopart lenda í stimpingum út á miðjum velli. Gunnar Oddur leyfir leiknum að halda áfram.
30. mín
Framarar eiga tvo skot inn í vítateig en Lundemo hendir sér fyrir þau bæði og setur hausinn í seinna skotið.
24. mín
Þrumufleygur!
Aron Jóhannsson (stoðsending: Adam Ægir Pálsson)
Adam Páls rúllar boltanum á Aron Jó sem er alveg einn og óvaldaður vel fyrir utan D-bogann og hann ákveður að negla boltanum í fjærhornið. Viktor átti ekki séns. Þvílíkt mark!20. mín
Valsmenn komast í hættulega stöðu
Tryggvi Hrafn gerir vel og keyrir upp hægri kantinn og gefur hann svo út í teiginn á Albin Skoglund en hann hittir ekki boltann. Verður að gera betur þarna.
16. mín
Framarar negla boltanum langt upp á völlinn, þar sem að Fred er í kapphlaupi við Hólmar Örn en það endar með Fred á jörðinni inn í vítateig. Þrátt fyrir köll úr stúkunni, fá heimamenn ekkert fyrir sinn snúð.
15. mín
Valsmenn sækja sér aukaspyrnu af svipuðu færi og Dominik Szoboszlai þegar hann skoraði áðan í leiknum gegn Arsenal.
13. mín
Þessi leikur hefur byrjað af nokkrum krafti og bæði lið að sækja hratt upp en Framarar hafa verið líklegri aðilinn.
9. mín
Fín tilraun
Simon Tibbling með góðan bolta inn á teiginn en boltinn rétt svífur yfir hausinn á Róberti Haukssyni. Þessi hefði að öllum líkindum endað í markinu.
7. mín
Fyrsta færið komið
Haraldur Einar teiknar góða hornspyrnu inn á teiginn beint á ennið á Kennie Chopart en hann skallar knöttinn rétt yfir markið!
5. mín
Leikurinn er farinn af stað á ný. Stefán heldur leik áfram.
3. mín
Stefán Þór liggur eftir og þarf aðhlynningu eftir samstuð. En eins og flestir vita, þá er Frederik Schram, aðalmarkvörður liðsins, meiddur.
1. mín
Leikur hafinn
Gunnar Oddur flautar þetta í gang! Það eru heimamenn sem byrja þetta.
Fyrir leik
Valtýr Björn eða Valtarinn eins og hann er oft kallaður er að kynna inn liðin.
Fyrir leik
Framarar eru bandbrjálaðir eftir slakt gengi upp á síðkastið og þeirra helstu “óvinir” eru Valsarar, kjörið tækifæri til að koma sér aftur í gang og enda í efri hlutanum fyrir skiptingu. Það er 3.60 á Epic á Fram á salatinu sem er skemmtilegt veðmál og gæti vel dottið.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin
Þorri Stefán kemur inn í byrjunarliðið hjá Fram en Jakob Byström dettur út frá síðasta leik. Gleðifréttir fyrir Fram eru einnig þær að Vuk Oskar er mættur aftur eftir meiðsli og situr á bekknum í kvöld.
Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals, gerir hins vegar engar breytingar frá síðasta leik.
Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals, gerir hins vegar engar breytingar frá síðasta leik.

Fyrir leik
Gengi Vals
Valur lagði Aftureldingu af velli í síðustu umferð í sannkölluðum endurkomusigri. Þeir eru á toppi deildarinnar en Víkingar fylgja fast á eftir og eru aðeins tvö stig sem skilja liðin að. Með sigri halda þeir forskotinu og kæmu sér upp í 43 stig.

Fyrir leik
Gengi Framara
Framarar hafa verið í miklu basli frá því að þeir duttu út fyrir bikarmeisturum Vestra þann 12. júlí en frá 17. júlí hafa þeir ekki unnið leik í deild. Þeir hafa tapað seinustu þremur leikjum og munu væntanlega mæta sterkari til leiks í kvöld!

Fyrir leik
Verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Lambhagavellinum, þar sem Framarar munu mæta Val.





Takk fyrir samfylgdina.