Fotbolti.net
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Lengjudeild karla
AutoCenter-völlurinn
ÍR
ÍR
1 - 2
Fylkir
Fylkir
0 - 110' Eyþór Aron Wöhler0 - 218' Orri Sveinn SegattaBirkir Eyþórsson (sjm) 29'1 - 2

SKÝRSLAN: Tímabilið búið hjá ÍR

Hvað réði úrslitum?

Þetta var end to end leikur en Fylkir kláruðu tækifærin sín, ÍR fékk góð tækifæri en voru ekki að testa Ólaf sem var í marki Fylkis mikið. Vantaði mikið upp á síðustu sendinguna eða oft á tíðum var engin þarna til þess að pota honum inn. Fylkir klára tækifærin sín vel eftir einbeitingarleysi frá ÍR í 20 mínútur.

Bestu leikmenn

1. Orri Sveinn Segatta (Fylkir)

Sigurmarkið í dag en varnarlína Fylkis var solid og átti ÍR stundum erfitt með það að brjóta þá niður. Gef shoutout á Ásgeir Eyþórsson líka.

2. Pablo Aguilera Simon (Fylkir)

Hann var svakalegur á kantinum og kom með geggjaða stoðsendingu, gat verið með fleiri stoðsendingar en það kom ekki. ÍRingar áttu erfitt með hann sérstaklega í fyrri hálfleik.

Atvikið

ÍR virtust alveg ráðalausir eftir seinna mark Fylkis og tekur Fylkir alveg yfir leikinn en þeir ná einu til baka og þá virðist komast eitthvað líf í þá en það var ekki nóg.

Hvað þýða úrslitin?

ÍRingar sem voru á toppinum á deildinni í langan tíma enda í 6. sæti og fara þá ekki í umspilsæti, tímabilið er búið. Fylkir falla ekki og enda í 8. sæti.

Vondur dagur

ÍR skapaði sér tækifæri í dag en það var oftast þar sem það var enginn á endanum til þess að skjóta eða léleg fyrirgjöf. Stundum tóku þeir skot af löngu færi en það fór aldrei neitt. Ólafur í marki Fylkis var alveg pollrólegur í dag. Bergvin Fannar stundum alveg einn og hefði kannski viljað meiri hjálp, bæði lið fóru mikið í langa bolta sem hjálpaði ekki neinum. Það má líka gefa Eyþór Wöhler samt smá þar sem hann var nokkrum sinnum rangstæður í seinni hálfleiknum, óheppilegt þar sem Fylkir hefði viljað klárað leikinn af.

Dómarinn - 6

Alveg viss um það að Wöhler var ekki rangstæður þá hefði hann verið 1v1 á móti markmanni, hefði alveg getað séð Emil og Kristján Atla fá seinna gula í dag. Nokkur atriði þar sem bekkir beggja liða voru óánægðir með en það var örugglega bara hitinn.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.