Fotbolti.net
Gunnar Bjartur Huginsson
Lengjudeild karla
AVIS völlurinn
Þróttur R.
Þróttur R.
1 - 2
Þór
Þór
0 - 125' Sigfús Fannar Gunnarsson0 - 271' Ingimar Arnar KristjánssonViktor Andri Hafþórsson 95'1 - 2
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Leik lokið!
ÞÓRSARAR FARA UPP Í BESTU DEILD KARLA!!!!
Til hamingju Þór!!

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
Þór
97. mín
Gult spjald

Christian Jakobsen

Þróttur R.
95. mín
Er þetta ekki búið??

Viktor Andri Hafþórsson (stoðsending: Kolbeinn Nói Guðbergsson)

Kolbeinn með frábæra sendingu í gegn á Viktor sem klárar þetta snyrtilega. Geta þeir jafnað?!
94. mín
Hrafn Tómasson á ágætis skot utan af velli en Aron Birkir ver vel frá honum! Aron Birkir staðið sig frábærlega í dag.
94. mín
Þórsarar eru búnir að kveikja á rauðum blysum og byrjaðir að fagna af krafti!
Þór
91. mín
Gult spjald

Juan Guardia Hermida

90. mín
Uppbótartíminn er 6 mínútur hið minnsta
90. mín
Enn og aftur á Kári skot en nú fór það yfir!
Þór
90. mín
InnFannar Daði Malmquist Gíslason
ÚtRafael Alexandre Romao Victor
88. mín
Þetta sleikti stöngina!!
Kári Kristjánsson nær flottu skoti rétt fyrir utan teig en það fer rétt framhjá. Óheppnir Þróttarar.
86. mín
Þetta virðist vera að fjara út.
Þróttur R.
83. mín
Gult spjald

Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson

Þór
83. mín
Gult spjald

Orri Sigurjónsson

Þróttur R.
82. mín
InnViktor Steinarsson
ÚtUnnar Steinn Ingvarsson
80. mín
Leikurinn var stopp en er farinn af stað aftur. Held það hafi verið Aron Birkir sem þurfti aðhlynningu.
76. mín
Dauðafæri!
Vilhjálmur Kaldal þræðir boltann í gegn á Hlyn Þórhalls en hann setur boltann rétt framhjá markinu!
75. mín
Þór er 15 mínútum frá því að fara upp í deild þeirra bestu en þar voru þeir síðast árið 2014.
Þór
71. mín
ERU ÞEIR AÐ TRYGGJA SIG UPP Í BESTU DEILD KARLA??!!

Ingimar Arnar Kristjánsson

Það kemur fín hornspyrna inn á teiginn og upp úr því myndast mikill darraðardans sem endar einfaldlega með því að varamaðurinn Ingimar Arnar nær að koma boltanum í netið!!
70. mín
Gestirnir sækja hornspyrnu.
Þróttur R.
68. mín
InnViktor Andri Hafþórsson
ÚtAron Snær Ingason
Aron Snær meiddist eitthvað.
67. mín
Aron Snær Ingason liggur eftir og fær aðhlynningu.
66. mín
Christian Greko sleppur framhjá Kolbeini í vörninni en Kolbeinn er ekki fljótur að ná honum aftur og hirða af honum boltann. Virkilega flottur varnarleikur.
Þór
65. mín
InnOrri Sigurjónsson
ÚtAron Ingi Magnússon
Þór
65. mín
InnIngimar Arnar Kristjánsson
ÚtAron Ingi Magnússon
61. mín
Nú falla Þróttarar við í teignum og enn og aftur er það Yann Emmanuel sem á í hlut. Þeir eru brjálaðir að fá ekki víti!
Þór
60. mín
InnJuan Guardia Hermida
ÚtÝmir Már Geirsson
Þróttur R.
60. mín
InnVilhjálmur Kaldal Sigurðsson
ÚtLiam Daði Jeffs
Þór
59. mín
Gult spjald

Aron Ingi Magnússon

57. mín
DAUÐAFÆRI!
Aron Snær með teikningu úr efstu hillu á Liam Daða en hann skallar rétt framhjá markinu. Þarna munaði ansi litlu!
55. mín
Þróttarar sækja hornspyrnu.
52. mín
Þórsarar skora en rangstaða!!
Clement Bayiha með frábæra fyrirgjöf á Balde sem setur boltann í netið en rangstaða dæmd!
Þróttur R.
49. mín
Gult spjald

Kári Kristjánsson

Brýtur á Sigfúsi sem þarf aðhlynningu.
Þróttur R.
46. mín
InnKolbeinn Nói Guðbergsson
ÚtNjörður Þórhallsson
Hálfleiksskipting. Njörður var á gulu.
46. mín
Þróttarar sparka þessu af stað aftur!
45. mín
Hálfleikur
Staðan ekki flókin. Þór er á leið í Bestu sem stendur
Mynd: worldfootball.net

45. mín
Hálfleikur
Ívar Orri flautar til hálfleiks. Fyrri hálfleikurinn hefur verið ansi fjörugur og eins og staðan er núna, þá eru Þórsarar frá Akureyri að fara upp í Bestu deild karla!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Klukkan slær 45 en ekki vitað með uppbótartíma
43. mín
Leikurinn hefur róast töluvert eftir svakalegar mínútur í kjölfarið af marki gestanna.
40. mín
Skemmtilegt fagn frá Sigfúsi eftir markið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

38. mín
Okkar maður Hafliði Breiðfjörð er á staðnum vopnaður myndavélinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


38. mín
Það er rosaleg mæting í Laugardalinn í dag og stemningin eftir því hjá báðum liðum.
37. mín
Aron Snær Ingason gerir vel og skýtur rétt fyrir utan teig en boltinn svífur framhjá markinu.
31. mín
Leikurinn er búinn að færast upp á allt annað stig þessar seinustu mínútur. Mikil líkamleg barátta og Þróttarar eru sífellt að ógna.
29. mín
Tíðindi úr Njarðvík
Njarðvíkingar eru komnir í forystuna gegn Grindavík og þýðir það að annað lið hérna verði að vinna svo það fari upp um deild.
28. mín
Liam Jeffs og Kári með frábært samspil sín á milli og eru komnir í ágætis stöðu inn á markteig en Ragnar Óli gerir frábærlega þarna og kemur hættunni frá!
25. mín
Það má geta þess að rétt fyrir þetta vildu Þróttarar fá víti en Hlynur Þórhallsson féll við í teignum eftir baráttu við Affi.
Þór
25. mín
Þórsarar eru komnir yfir!!!

Sigfús Fannar Gunnarsson (stoðsending: Ýmir Már Geirsson)

Þórsarar sækja hratt upp vinstri vænginn og Sigfús Fannar stingur sér inn og Ýmir Már ekki lengi að finna hann. Sigfús afgreiðir þetta svo snyrtilega framhjá Þórhalli!

Þórsarar eru að fara upp í deild þeirra bestu, eins og staðan er núna.
23. mín
Ragnar Óli skallar boltann rétt yfir markið eftir hornspyrnu!
23. mín
Nú sækir Clement Bayiha fyrstu hornspyrnu leiksins.
20. mín
Það er hiti!
Nú brýtur Njörður aftur á Rafael Victor við mikil mótmæli gestanna og Yann Emmanuel Affi þar fremstur í flokki en Ívar Orri messar yfir honum.
16. mín
Leikurinn er í góðu jafnvægi þessa stundina og bæði lið að ógna.
Þróttur R.
12. mín
Gult spjald

Njörður Þórhallsson

Njörður brýtur nokkuð hressilega á Rafael Victor ef marka má viðbrögðin en sá síðarnefndi rúllaði sér í nokkra hringi í kjölfarið.
10. mín
Fyrsta marktilraun leiksins!
Rafael Victor fær boltann í lappir rétt fyrir utan teig og rennir honum á Balde sem á fínt skot en Þórhallur sér við honum.
8. mín
Fyrsta tilraun leiksins
Hrafn Tómasson á frábæra skiptingu út á kant á Eirík sem gefur boltann fyrir en Kári Kristjánsson skallar rétt framhjá markinu!
4. mín
Sigfús Fannar fellur við í teig Þróttara og þá kalla stuðningsmenn Þórs eftir víti. Ívar Orri segir nei!
3. mín
Það er alveg ljóst frá fyrstu mínútu að þetta verður mikil líkamleg barátta.
1. mín
Leikur hafinn
Úrslitaleikur settur! Það eru gestirnir frá Akureyri sem hefja leik.
Fyrir leik
Þetta er að bresta á!
Liðin eru komin inn á völlinn og eru að gera sig klár.
Fyrir leik
Frábær stemning á AVIS-vellinum
Það er virkilega þétt setið í Laugardalnum og stuðningsmenn beggja liða löngu byrjaðir að syngja og tralla. Allt eins og það á að vera.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Mynd: Fótbolti.net

Fyrir leik
Byrjunarliðin lent!
Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, gerir enga breytingu frá síðasta leik.

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, gerir eina breytingu frá seinasta leik en Aron Ingi Magnússon kemur inn fyrir Juan Guardia eftir að hafa glímt við meiðsli.
Fyrir leik
Fyrri viðureign liðanna
Liðin hafa mæst einu sinni á þessu tímabili en það var þann 3. júlí í Boganum á Akureyri. Þar enduðu leikar 1-2 fyrir Þrótt en mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Staðan í deildinni
Hér fyrir neðan má sjá stöðuna í deildinni. Þórsarar eru með eins stigs forystu á toppnum en Þróttarar aðeins stigi á eftir. Jafntefli mun líklega ekki duga fyrir Þór, þar sem að Njarðvík er aðeins tveimur stigum á eftir þeim og eiga leik gegn Grindavík í lokaumferðinni. Það eru því þrjú lið sem eiga möguleika á því að hreppa sæti í Bestu deild karla.

Mynd: Fótbolti.net

Fyrir leik
Kíkt í kristalskúluna
Sigurður Bjartur Hallsson, sóknarmaður FH, hefur farið á kostum innan sem utan vallar undanfarið en hann átti nýlega leiksigur í dýrri auglýsingu Bestu deildarinnar. Því fékk hann það erfiða hlutverk að spá fyrir um leikinn. Þetta sagði hann um leikinn:

Þróttur R. 3 - 2 Þór (14:00 á morgun)
Auga flestra verða á þessum leik, jafntefli gerir lítið fyrir bæði lið. Úrslitaleikurinn um það hver hreppir fyrsta sætið og fær sæti í Bestu Deildinni. Venni hefur leyft Laugardalnum að dreyma undanfarið og mun gera drauminn að veruleika. Hrafn Tómasson mun að öllum líkindum eiga stórleik, bóka tvær stoðsendingar á hann í það minnsta

Fyrir leik
Það er komið að þessu!
Verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá AVIS-vellinum en um er að ræða leik milli toppliðanna í lokaumferð Lengjudeildarinnar fyrir úrslitakeppni og mun það ráðast endanlega í dag hvaða lið munu fara upp í deild þeirra bestu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.