SKÝRSLAN: Fara með 5 sigurleiki í röð inn í úrslitakeppnina
Hvað réði úrslitum?
Mér fannst Stjörnumenn heilt yfir betri og eiga sigurinn skilið. Valsmenn komust oft í ágætar stöður en þeir voru að fara fáranlega illa með þær í kvöld. Jónatan tók rangar ákvarðanir oft á tíðum og var að taka allt of margar snertingar að mínu mati líka. Það er ekkert auðvelt verkefni að skora á þetta Stjörnulið greinilega.
Bestu leikmenn
1. Benedikt Warén
Mér fannst enginn einn leikmaður standa beint upp úr í kvöld. Benedikt var mjög góður hins vegar. Leggur upp eitt og var að valda miklum usla fram á við, sérstaklega þegar leið á leikinn. Mjög góður leikur í dag hjá Benedikt.
2. Guðmundur Kristjánsson
Stendur alltaf fyrir sínu og er dýrkaður og dáður í Garðarbænum. Frábær í dag og er einn lykilþáttur í velgengni Stjörnumanna, hvað þá í varnarleiknum þeirra.
Atvikið
Það var ansi heitt á hliðarlínunni í dag í fyrri hálfleiknum. Jökull var ósáttur með eitthvað brot sem Stjörnumenn fengu á sig og lét fjórða dómarann vita. Túfa strunsaði þá í átt að Jökli og lét hann heyra það svo að Jökull svaraði. Eftir að fjórði dómarinn steig inn á milli fengu þeir báðir að líta gula spjaldið. Svona má þetta vera oftar, þjálfararnir að sýna hvað þetta skiptir máli, sérstaklega undir lok móts þegar hvert stig fer að vega þyngra.
Hvað þýða úrslitin?
Valsmenn detta niður í 2. sætið fyrir úrslitakeppnina og eru búnir að tapa sínum öðrum leik í röð núna. Þá hafa Stjörnumenn jafnað þá að stigum en eru áfram í 3. sætinu, tveimur stigum á eftir Víkingum sem eru á toppi deildarinnar.
Vondur dagur
Birki Heimisson brýtur af sér í byrjun leiks og gefur Stjörnunni aukaspyrnu sem þeir skora úr. Ekki nóg með það heldur er hann sá eini í veggnum sem hoppar ekki og boltinn fer í gegnum vegginn, þökk sé honum. Mér fannst Jónatan líka eiga vondan dag, hann var að klúðra nokkrum góðum færum í dag.
Dómarinn - 8
Mér fannst þetta bara afar vel dæmdur leikur hjá Sigga og co. í dag. Leyfðu leiknum að flæða ágætlega og nelgdu allar stóru ákvarðirnar að mínu mati.




