SKÝRSLAN: Landsbyggðin á Laugardalsvöll
Hvað réði úrslitum?
Vítin réðu þessum úrslitum í lok dags en það voru milljón hlutir sem réði þessum úrslitum ef maður fer aftur yfir leikinn. Ólsarar voru mikið heilt yfir fyrstu 90 mínúturnar að mínu mati en síðan tóku Gróttumenn yfir í framlengingunni og hreint ótrúlegt að Grímur hafi t.a.m. ekki skorað allaveganna eitt mark með færunum sínum undir lok leiks.
Bestu leikmenn
1. Luis Alberto Diez Ocerin (Víkingur Ó.)
Ég er fáranlega hrifinn af Luis og hann heillaði mig enn og aftur í dag. Ekkert mikið tempó í honum sérstaklega þegar það leið á leikinn en hann er með fáranlega góðan leikskilning. Góðar snertingar, góðar sendingar og teknískt mjög góður að mínu mati.
2. Ingólfur Sigurðsson (Víkingur Ó.)
Erfitt að velja tvo bestu menn vallarins finnst mér. Vel Ingó. Spilaði allan leikinn og gerði sitt vel. Kom Víkingum oft úr erfiðum stöðum og leysti þær vel. Skoraði í dag og tók besta vítið í vítaspyrnukeppninni. Það var smá þreyta komin í kallinn í framlengingunni en annars frábær.
Atvikið
Ég myndi segja seinna færið hans Gríms í framlengingunni. Hann var nýbúinn að klúðra einu dauðafæri þegar hann gerir ekkert eðlilega vel að labba framhjá vörn Víkings en setur boltann einhvernveginn í stöngina. Þarna var leikurinn undir.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingur Ólafsvík spilar á Laugardalsvelli í úrslitaleik í Fótbolti.net bikarnum gegn Tindastól. Landsbyggðastemning næsta föstudag í Laugardalnum.
Vondur dagur
Grímur Ingi Jakobsson, fyrirliði Gróttu, fékk tvö dauðafæri undir lok framlengingarinnar sem hann nýtti ekki. Dauðafæri. Rándýr klúður og svo klúðraði hann líka einni vítaspyrnu í vítaspyrnukeppninni. Ekki dagurinn hans Gríms í dag.
Dómarinn - 9
Mér fannst þetta hreint út sagt frábær leikur hjá Ella og hans mönnum í dag. Erfiður leikur að dæma. Mikið undir og fáranlega opinn og skemmtilegur leikur. Elli var með góð tök á leiknum og mér fannst teymið negla stóru ákvarðanirnar.



