Fotbolti.net
Sverrir Örn Einarsson
Lengjudeild karla - Umspil
JBÓ völlurinn
Njarðvík
Njarðvík
0 - 3
Keflavík
Keflavík
Samtals 2 - 4
0 - 148' Marin Mudrazija0 - 262' Stefan Alexander Ljubicic 0 - 393' Stefan Alexander Ljubicic
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Myndir: Helgi Þór Gunnarsson
Leik lokið!
Keflavík fer í úrslit.
Annað árið í röð fá þeir séns á Bestu á Laugardalsvelli.

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
Keflavík
93. mín
Keflavík er að klára þetta!

Stefan Alexander Ljubicic


Njarðvík með allt sitt frammi og Keflavík fær skyndisókn. Þurfa tvær tilraunir til að koma boltanum fyrir markið en það tekst og Stefán klárar af stuttu færi í netið.

Grunsamlega einn og spurning um rangstöðu.
Keflavík
92. mín
Gult spjald

Stefan Alexander Ljubicic

Almennt tuð
90. mín
Fimm mínútur í uppbótartíma
Keflavík
88. mín
InnStefán Jón Friðriksson
ÚtMarin Mudrazija
87. mín
Aftur Viggó
Sama scenario og sama niðurstaða vantaði kraft í skotið.
Njarðvík
87. mín
InnSímon Logi Thasaphong
ÚtValdimar Jóhannsson
86. mín
Sindri Kristinn!
Viggó gerir vel í að koma sér í færi en Sindri sér við honum!
Keflavík
84. mín
Gult spjald

Sindri Kristinn Ólafsson

Fyrir hvað hef ég ekki græna glóru.
Keflavík
80. mín
InnErnir Bjarnason
ÚtFrans Elvarsson
Keflavík
80. mín
InnKári Sigfússon
ÚtMuhamed Alghoul
79. mín
Þaðþer allt á suðupunkti hérna. Njarðvík fær aukaspyrnu á vítateigslínu úti til vinstri.

Boltinn fyrir markið en skallinn frá Valdimar beint á Sindra.
Njarðvík
76. mín
Gult spjald

Viggó Valgeirsson

74. mín
Njarðvík fær hornspyrnu. Það er að hitna verulega í kolunum hér.
73. mín
Njarðvík reynir.
Joao með skot af 20 metrum en beint í fang Sindra.
Njarðvík
72. mín
InnViggó Valgeirsson
ÚtKenneth Hogg
71. mín
Radic!
Fær boltann i teignum eftir fínan sprett Ali en skallar boltann framhjá úr góðu færi.
70. mín
Keflavík fær horn.
68. mín
Njarðvík í færi
Vinstra megin í teignum með skot að marki sem fer augljóslega í hönd Eiðs í vörn Keflavíkur. ÞÞÞ dæmir horn
Njarðvík
66. mín
InnAli Basem Almosawe
ÚtFreysteinn Ingi Guðnason
65. mín
Keflavík skorar!

Sindri Snær kemur boltanum í netið en flaggið erma lofti.
Keflavík
64. mín
Gult spjald

Sindri Snær Magnússon

Keflavík
62. mín
Keflavík leiðir einvígið!

Stefan Alexander Ljubicic

Stefán skorar úr spyrnunni frá vinstra markteigshorni.

Um þetta verður rifist.
61. mín
Óbein í teig Njarðvíkur
Boltinn sendur til baka að mati ÞÞÞ og óbein dæmd af markteignum. Ekki algengur dómur það

Vafasamt? Úff ég veit það ekki
58. mín
Aron bjargar Njarðvík!
Eiður með.drauma bolta inn á teiginn frá hægri sem Marin kemst í. Af markteig setur hann boltann að marki en Aron ver á einhvern ótrúlegan hátt.
55. mín
Keflavík fær hornspyrnu.
52. mín
Orrahríð að marki Njarðvíkur!
Tvö skot með skömmu millibili frá Viktori og Stefan sem Aron þarf að.hafa sig allan við að verja.

Það er skjálfti í heimamönnum.
Keflavík
48. mín
Litla markið!

Marin Mudrazija

Njarðvík með innkast sem Keflvíkingar komast inní. Boltinn á teiginn á Marin sem tekur boltann á lofti og neglir boltanum í skeytin óverjandi fyrir Aron.

Hér er allt jafnt!
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn.
Heimamenn sparka okkur af stað á ný.
45. mín
Stál í stál og liðin gefa fá færi á sér. Stutt pása uns
við snúum aftur.
45. mín
Aftur Stefán
Kemst í færi hægra megin í teignum en Aron ver í horn.
44. mín
Stefán Ljubicic að koma sér í gott færi en Boekye stigur hann frábærlega út.
Keflavík
42. mín
Gult spjald

Eiður Orri Ragnarsson

Hendir sér niður við teig Njarðvíkur við litla hrifningu ÞÞÞ.
39. mín
Freysteinn keyrir inn á reig Keflavíkur. Viktor Elmar hleypur hann niður en ÞÞÞ veifar leik áfram.
35. mín
Keflvíkingar að ná upp smá pressu. Boltinn fyrir markið frá hægri en Aron kýlir frá.
30. mín
Leikurinn farið fram á miðjum vellinum síðustu mínútur og baráttan í fyrirrúmi.
22. mín
Valdimar í dauðafæri!
Sleppur einn í gegn. Nægur tími gegn Sindra en neglir boltanum yfir.
Njarðvík
21. mín
Gult spjald

Dominik Radic

Hoppar af miklum krafti á Sindra Kristinn eftir að Sindri grípur boltann.
20. mín
Það er alvöru hiti á vellinum. Menn að fleygja sér í tæklingu um allan völl.

Njarðvíkingar vinna horn.
15. mín
Darraðardans í teignum hjá Keflavík. En gestirnir hreinsa frá.
12. mín
Nacho brotlegur úti á kantinum. Alltof seinn og stálheppinn að sleppa við spjaldið.
8. mín
Aftur fær Keflavík horn. Byrjað þennan leik betur.
5. mín
Stefán með lúmskt skot frá vinstra vítateigshorni. Boltinn af varnarmanni í fang Arons
4. mín
Muhamed með fyrsta skotið. Leikur inn völlinn og lætur vaða en Aron Snær ver
3. mín
Keflavík sækir fyrsta hornið.
1. mín
Þetta er farið af stað hér í Njarðvík. Það eru gestirnir handan Flugvallarvegar sem hefja hér leik. Og eins og eftir klukku byrjar að rigna.

Þetta verður eitthvað.
Fyrir leik
Það er nánast óhjákvæmilegt að leikurinn opnist ekki á eftir og sérstaklega ef Njarðvíkingar skora fyrsta mark leiksins, Yfir 3,5 mörk er á á stuðlinum 2,15 à Epic.
Fyrir leik
Livey sýnir beint


Fyrir leik
Dómarinn
Þórður Þorsteinn Þórðarson dæmir leikinn á JBÓ vellinum í dag. Keflvíkingar vonast sennilega til þess að hann hafi farið á spænskunámskeið í sumar en hann rak Nacho Heras leikmann Keflavíkur af velli fyrr í sumar á eftirminnilegan hátt eftir að Nacho hafði látið nokkur vel valin spænsk orð falla. Þórði til aðstoðar eru Guðni Freyr Ingvason og Arnþór Helgi Gíslason. Brynjar Þór Elvarsson er titlaður varadómari og eftirliti á vegum KSÍ sinnir Jón Magnús Guðjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Dramað var þó ekki búið

Annað árið í röð fengum við mjög sérkennilega atburðarrás í kringum spjöld og leikbönn í þessu umspili. Oumar Diouck fékk að líta gula spjaldið í fyrri hálfleik fyrir að hindra Sindra í marki Keflavíkur. Spjaldið var hans sjöunda á tímabilinu og samkvæmt reglum KSÍ var hann þar með á leiðinni í leikbann. Hann myndi hins vegar ekki taka það út fyrr en í úrslitaleiknum sjálfum þar sem aganefnd KSÍ sem þarf að staðfesta leikbönn vegna gulra spjalda fundar eingöngu á þriðjudögum. Áhorfendur voru vel flestir minnugir þess er Elmar Cogic leikmaður Aftureldingar var í sömu stöðu í fyrra og sótti sér rautt spjald í leikslok í leik Aftureldingar og Fjölnis í fyrri leik liðanna til þess að taka leikbannið út í síðari leik þeirra.

Það kom því engum á óvart þegar Oumar Diouck lék sama leik gegn Keflavík og sótti sér annað gult og þar með rautt fyrir það að hlaupa þokklega vegalengd til þess eins og sparka boltanum í burtu eftir að Njarðvíkingar höfðu verið dæmdir brotlegir. Hann er því í leikbanni í dag.

Umræðan hefur svo vaknað á ný hvort dæma eigi Oumar í tveggja leikja bann fyrir athæfið en reglur FIFA segja að leikmaður sem viljandi sækir sér spjald til þess að hafa t.d áhrif á leikbönn skuli dæmdur til aukaleiks í bann. Sönnunarbyrðin hvílir þó alfarið á aganefnd í slíku máli og verður að teljast ólíklegt að hún aðhafist nokkuð í málinu.

   18.09.2025 11:46
Oumar Diouck á hættusvæði - Reglur FIFA kveða á um aukaleik í banni


   17.09.2025 20:11
Gunnar Heiðar um rauða spjald Diouck: Leiðinlegt að þurfa að fara í einhvern svona leik


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Njarðvík leiðir eftir fyrri leikinn.

Njarðvík heldur heim á JBÓ völlinn með eins marks forystu eftir 2-1 sigur á HS Orkuvellinum síðastliðin miðvikudag. Oumar Diouck kom Narðvík yfir eftir 20 mínútna leik áður en að Tómas Bjarki Jónsson tvöfaldaði forystu grænklæddra með marki úr vítaspyrnu. Vítaspyrnudómurinn var mjög áhugaverður svo ekki sé meira sagt og í ofanálag voru Keflvíkingar afar ósáttir við framkvæmd spyrnunar þegar Tómas Bjarki hætti við í miðju tilhlaupi. Það var svo Stefan Ljubicic sem minnkaði munin fyrir Keflvík um miðbik síðari hálfleiks og hélt eivíginu galopnu.

   17.09.2025 20:49
Njarðvík hálfu skrefi nær Laugardalsvelli


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leiðin á Laugardalsvöll seinni hluti

Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá síðari leik Njarðvíkur og Keflavíkur i undanúrslitum umspils um sæti í Bestu deildinni.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.