Fotbolti.net
Besta deildin
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Þróttur R.
Þróttur R.
Besta-deild kvenna - Efri hluti
AVIS völlurinn
3 - 2
Breiðablik
Breiðablik
Unnur Dóra Bergsdóttir 34'1 - 01 - 164' Berglind Björg ÞorvaldsdóttirKayla Marie Rollins 71'2 - 12 - 275' Berglind Björg ÞorvaldsdóttirSierra Marie Lelii 77'3 - 2
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Þróttur upp í annað sæti og Blikar bíða enn eftir titlinum

Hvað réði úrslitum?

Enn og aftur var Breiðablik sterkari aðilinn í tveim leikjum í röð, en það virðist vera meiri vilja hjá Þrótt að fá sigur í þessum leik, alveg eins og leikurinn gegn Stjörnuna í seinustu umferð. Varnaleik Þróttara var góður, sérstaklega í seinustu mínútum leiksins og þrátt fyrir að Breiðablik svaraði vel þegar þær lentu undir þá náði Þróttur að svara alltaf til baka.

Bestu leikmenn

1. Kayla Marie Rollins

Var ótrúlega spræk í leiknum og vann mjög mikið fyrir þennan sigur. Skoraði líka annað mark Þróttara

2. Berglind Björg Þorvaldsdóttir

Skoraði tvö mörk í dag, sem dugði þó ekki til sigurs. Var mjög flott frammi og átti mjög góðan leik.

Atvikið

Í byrjun leiksins var eins og leikmaður Þrótt var tekinn niður inn í teig og Jóhann dæmir auakspyrnu og ekkert spjald. Ég á eftir að sjá þetta aftur, en frá mínu sjónarhorni leit það þannig út. Að auki voru loka mínútur leiksins mjög spennandi og voru Blikar alveg upp á teig Þróttara seinustu 10 mínútur leiksins.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur kemst upp í 2. sæti, sem FH getur tekið af þeim með sigur á morgun. Breiðablik býður enn upp á toppnum eftir því að hafa tryggt Íslandsmeistara titilinn.

Vondur dagur

Þetta var góður leikur hjá Blikum í dag, en þær lentu allt of oft undir í leiknum sem er alls ekki staða sem maður hefur séð Blika oft í á þessu tímabili. Vörnin var ekki nógu góð í þeim mörkum sem Blikar fengu á sig. Þróttur fengu ekki mörg færi, en skoruðu samt 3 mörk.

Dómarinn - 6

Það var ekki mikið sem gerðist í þessum leik. Að mínu mati átti Þróttur að fá víti í byrjun leiksins, annað en það er ekki mikið hægt að segja um frammistöðuna hjá Jóhanni og teyminu hans.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.