Man Utd gæti misst Fernandes - Napoli vill Mainoo - Barcelona og Liverpool berjast um Upamecano
Besta-deild karla - Efri hluti
Valur
LL 3
2
Stjarnan
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
FHL
LL 2
3
Þór/KA
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Fram
LL 3
3
Tindastóll
Valur
3
2
Stjarnan
0-1 Andri Rúnar Bjarnason '5 , víti
Hólmar Örn Eyjólfsson '42 1-1
Jónatan Ingi Jónsson '50 2-1
2-2 Guðmundur Baldvin Nökkvason '62
Jónatan Ingi Jónsson '73 3-2
04.10.2025  -  20:00
N1-völlurinn Hlíðarenda
Besta-deild karla - Efri hluti
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Byrjunarlið:
25. Stefán Þór Ágústsson (m)
4. Markus Lund Nakkim
5. Birkir Heimisson
8. Jónatan Ingi Jónsson ('93)
11. Sigurður Egill Lárusson ('77)
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
14. Albin Skoglund ('77)
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
21. Jakob Franz Pálsson ('82)
22. Marius Lundemo
23. Adam Ægir Pálsson ('82)
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
1. Ögmundur Kristinsson (m)
3. Hörður Ingi Gunnarsson ('77)
6. Bjarni Mark Duffield ('82)
13. Kristján Oddur Kristjánsson
16. Stefán Gísli Stefánsson
17. Lúkas Logi Heimisson ('77)
20. Orri Sigurður Ómarsson ('82)
33. Andi Hoti ('93)
97. Birkir Jakob Jónsson
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Srdjan Tufegdzic (Þ)
Haukur Páll Sigurðsson
Kjartan Sturluson
Patrick Pedersen
Halldór Eyþórsson
Jóhann Emil Elíasson
Aron Óskar Þorleifsson
Örn Erlingsson
Chris Brazell

Gul spjöld:
Markus Lund Nakkim ('12)
Sigurður Egill Lárusson ('30)
Tryggvi Hrafn Haraldsson ('36)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Valur sigrar! Valsarar með góðan sigur hér í kvöld og stimpla sig vel í annað sæti
95. mín
Warén nærri búin að ná stjórn á rosalegri sendingu frá miðjum velli en ein hornspyrnan niðurstaðan
94. mín
Stefán vel grimmur og er að grípa fyrirgjafirnar vel, þetta skipti frá Alpha Conteh
93. mín
Inn:Andi Hoti (Valur) Út:Jónatan Ingi Jónsson (Valur)
Fær gott klapp frá stúkuni enda flottur í kvöld og tvö geggjuð mörk
93. mín
Guðmundur Baldvin með skot í vörnina og fær horn
90. mín
6mínútur í uppbót
89. mín
Inn:Adolf Daði Birgisson (Stjarnan) Út:Sindri Þór Ingimarsson (Stjarnan)
89. mín
Ekkert varð úr tveim hornspyrnum Stjörnumanna en Örvar fékk skalla sem fór yfir
87. mín
ÞETTA VAR HÆTTULEGT! Warén sem kom með fínan bolta milli markvarðs og varnar

Örvar sem kom á fleygi ferð en aðeins of seinn og Stefán sem handsamaði boltan vel
86. mín
Enginn stórhætta hér síðustu mínútur, en gestirnir þó líklegri

Valur virðist ætla setja allt í að sigla þessum stigum í land
82. mín
Inn:Bjarni Mark Duffield (Valur) Út:Jakob Franz Pálsson (Valur)
82. mín
Inn:Orri Sigurður Ómarsson (Valur) Út:Adam Ægir Pálsson (Valur)
82. mín
Inn:Jóhann Árni Gunnarsson (Stjarnan) Út:Alex Þór Hauksson (Stjarnan)
81. mín
Jakob Franz sem lá aðeins eftir en heldur áfram eins og er
77. mín
Inn:Lúkas Logi Heimisson (Valur) Út:Albin Skoglund (Valur)
77. mín
Inn:Hörður Ingi Gunnarsson (Valur) Út:Sigurður Egill Lárusson (Valur)
73. mín MARK!
Jónatan Ingi Jónsson (Valur)
Jónatan Ingi aftur!!! Hann er ískaldur hér í kvöld!

Fær boltan rétt inn í teignum og stýrir honum ótrúlega vel gegnum pakkan og í fjær hornið.
Sturlað mark og heimamenn komnir yfir í annað sinn
71. mín
Adam Ægir og Tryggvi fór í góð hlaup eftir hornspyrnu gestanna og Guðmundur keyrði síðan Adam niður en flautan hans Helga Mikael hefur kólnað

Túfa og stúkan ekki sátt með þetta
69. mín
Alpha Conteh sem vermir hérna hægri kantinn hjá gestunum og Örvar mættur uppá topp með Benedikt hinu meginn við sig
66. mín
Adam Ægir er óhræddur að skjóta og tók annað fínt skot en aðeins of þæginlegt fyrir Árna í markinu
62. mín
Inn:Alpha Conteh (Stjarnan) Út:Andri Rúnar Bjarnason (Stjarnan)
Gerðu skiptingu strax eftir markið
62. mín MARK!
Guðmundur Baldvin Nökkvason (Stjarnan)
Stoðsending: Örvar Logi Örvarsson
Örvar gerði vel og fann einhvern vegin Guðmund lausan í teignum og hann negldi honum frábærlega í fjær hornið

Aftur jafnt hér á Hlíðarenda!!!
61. mín
Allt annað að sjá þennan seinni hálfleik.

Kraftur í bæði liðum og rétt í þessu tók Adam Ægir fínt skot langt utan teigs sem Árni Snær þurfti að hafa vel fyrir
58. mín Gult spjald: Alex Þór Hauksson (Stjarnan)
Fór í hörku tæklingu og missir rétt af boltanum, verðskuldað spjald og það fimmta í kvöld
56. mín
Heimamenn fljótir tilbaka, Stjarnan þeyttist upp völlinn eftir horn heimamanna.

Birkir Heimis þurfti að setja í fimmta gír gegn snöggum Örvar og hann gerði vel að koma boltanum útaf.
55. mín
Örvar Eggerts með tilraunar skot rétt utan hægra horn teigs og síðan tók Jónatan Ingi skot utan teigs sem flaug yfir
Fyrir leik, í hálfleik og á meðan leik stendur

Pepsi Max - fyrir þorstann í meira!
50. mín MARK!
Jónatan Ingi Jónsson (Valur)
GÓÐA KVÖLDIÐ! Það hefur farið lítið fyrir Jónatan upp á síðkastið en þarna sýndi hann gæðin sín!

Fær boltann hægra megin við teiginn og leikur á vörn Stjörnunnar áður en hann smyr hann framhjá Árna Snær
49. mín
Warén með skot Hann gerði vel að snúa sig lausan í teignum og náði flotti skoti en Stefán Þór gerði einnig vel með vörslunni sinni
47. mín
Bæði lið verða að sækja til sigurs til að komast i kjörstöðu í baráttunni um evrópusæti, yfir 4 mörk á Epic er 2.05
46. mín
Seinni hálfleikur í gang Örvar mætti snemma út í eitthvað hlaup með þjálfarateyminu.

Engar breytingar og seinni kominn af stað
45. mín
Hálfleikur
Virtist ætla vera bragðdaufur fyrri hálfleikur en jöfnunarmarkið kom í lokinn og maður er þakklátur fyrir tvo mörk og margir leikmenn á hættu svæði fyrir vonandi ennþá meiri skemmtun næstu 45 mín.
45. mín
2mín í uppbót Stjarnan með aukaspyrnu frá miðju sem fór beinustu leið á Caulkerinn sem náði fínum skalla en Stefán með öruggt grip á þessum
42. mín MARK!
Hólmar Örn Eyjólfsson (Valur)
Stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson
ALLT JAFNT!!!!! Þarna kom gull sendingin!

Tryggvi sem lætur hann svífa í teiginn þar sem Hólmar rís manna hæst og stangar hann smekklega í netið
40. mín
Fín sókn hjá Val Adam Ægir finnur geggjað hlaup inn fyrir og lagði hann fyrir Jónatan Inga í miðjum teignum en vörn Stjörnunnar kemur þessu í horn
36. mín Gult spjald: Örvar Logi Örvarsson (Stjarnan)
Það eru ekki þung spjöldin í kvöld Líkt og síðustu tvö gulu í leiknum er verið að stoppa upphlaup mann.
36. mín Gult spjald: Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
Enn eitt gula spjaldið á Val
33. mín
Adam Ægir sendir boltann í ævintýri

Reyndi skota lengst í burtu sem flaug lengst framhjá og yfir
31. mín
Horn hjá Völsurum, Adam Ægir að dansa með boltann og út á Sigurð Egill sem sótti horn

Spyrnan í þéttan pakk og virðist skölluð yfir markið af Stjörnumanni, annað horn hinu meginn
30. mín Gult spjald: Sigurður Egill Lárusson (Valur)
Sýndist hann stoppa Örvar í hlaupi á miðjum vellinum
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Rólegt fyrsta hálftíman Tryggvi Hrafn fór í skottilraun rétt áðan en boltinn yfir markið.

Stjarnan mögulega meira "solid"
28. mín
Stefán með fínt inngrip í fyrirgjöf og þeir reyna að drífa sig upp en Guðmundur Kristjáns fær boltann þægilega í lappirnar.
23. mín
Tvær fínar fyrirgjafir hjá gestunum Örvar og Guðmundur nærri búnir að finna lausan samherja í teignum en hornspyrna núna hja Stjörnunni
20. mín
Sókn Valsara endar með skoti yfir.

Búnir að komast ofar á völlinn en gestirnir í engu stressi að díla við þetta.
16. mín
Caulker sópurinn Hann er öruggur í öftustu línu og fer þæginlega í að hreinsa lögnu bolta Valsara
13. mín
Stefán Þór Ágústsson í markinu Fínt að bæta því inn að það er Stefán Þór sem stendur í markinu hjá Val.
Held að Ögmundur Kristins hafi meiðst í upphitun.
12. mín Gult spjald: Markus Lund Nakkim (Valur)
Það virtist að Helgi Mikael spjaldið Nakkim en það var Hólmar sem braut á Örvar í teignum og vítaspyrnudómurinn einfaldlega réttur.

Fyrsta ferð Stjörnunnar fram og þeir eru yfir
5. mín Mark úr víti!
Andri Rúnar Bjarnason (Stjarnan)
Fín byrjun fyrir gestina! Andri Rúnar öruggur á punktinum. Stjarnan komnir yfir eftir að mér sýndist vesen í teig heimamann.
5. mín
Víti!
2. mín
Jónatan Ingi með fyrsta færi leiksins í kvöld. Boltinn datt vel fyrir hann á fjærstönginni en hann steig illa niður á boltann og datt.
1. mín
AF STAÐ!
Fyrir leik
Byrjunarlið staðfest Enginn leikmannabönn, en meiðsli hafa verið að stríða báðum liðum. Bæði lið þó ekki í neinum stór breytingum eftir síðustu umferð.
Fyrir leik
Spámaðurinn Brynjar Kristmunds spáir fullu húsi stiga Stjörnunnar gegn Val þetta tímabilið í Bestu Deild Karla.

Valur 1-2 Stjarnan
Stjarnan tekur sigur á Hlíðarenda og kemur sér aftur inn í toppbaráttuna. Örvar mun nýta hraða sinn og kraft og skora og leggja upp fyrir Andra Rúnar. Tryggvi Hrafn setur eitt beint úr aukaspyrnu en það dugar ekki til og Valsmenn stimpla sig endanlegs úr kapphlaupinu um titilinn.

Fyrir leik
Einvígi liða kvöldsins Valur og Stjarnan hafa spilað þrisvar móti hvor öðrum á þessu tímabili, tvisvar í deild og þau mættust síðan í undanúrslita leik Mjólkurbikarins.

Undanúrslitaleikurinn fór 3-1 fyrir Val en aðra sögu er að segja um leiki liðanna í Bestu Deildinni.

Fyrri leikurinn var fjörugur, Jóhann Árni, Emil Atla og Guðmundur Baldvin skoruðu mörk Stjörnunnar og því dugði tvenna Patrick Pedersen ekki til, Bjarni Mark fékk síðan að líta beint rautt í leiknum.



Seinni leikurinn skilaði Stjörnunni aftur þrjú stigin en þar voru Andri Rúnar og Örvar Eggerts í markaskónum. Lúkas Logi skoraði eina mark Vals. Samúel Kári fékk annað gula spjaldið sitt í leiknum á 90.mínútu en gestirnir þraukuðu uppbótina af manni færri.
Fyrir leik
Stjarnan Eins mikið og gleðin ríkti í Garðabæ var fljót að slokkna undan henni. Tap í síðustu umferð gegn Víking í hörkuleikur sem endaði með marki frá gestunum á 90+6 mín leiks.
Liðið hafði ekki tapað leik síðan 14.júlí og þá 1-0 tap fyrir ÍBV í Eyjum. Tapið gegn Víking hefur þó að öllum líkindum slökkt á titilvonum liðsins og þjálfari Stjörnunnar, Jökull Elísabetarson óskaði Víking einfaldlega til hamingju með titilinn eftir leikinn.
Það er samt Evrópusæti sem þarf að klára og sigur í kvöld getur farið langt með það.



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Valur Það er ekki bjart yfir Völsurum um þessar mundir, þreytandi úrslit og stigasöfnunin ekki verið góð. Vantar hefur upp á markaskorar og köll frá allskonar áttum um hvort menn ætli ekki að stíga upp eftir meiðsli Patricks Pedersen. Einnig hefur verið rætt uim Túfa þjálfara Vals og spurningar um framtíð hans hjá félaginu eftir tímabilið kastað í kosmósið.



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Staða liðanna Bæði lið eru á mjög svipuðu róli í töflunni og eftir skiptingu hafa leikirnir hjá Val og Stjörnunni farið svipað.

Fyrstu umferðinni gerðu liðin jafntefli, Valur 1-1 við Breiðablik og Stjarnan 0-0 við FH-inga.
Önnur umferðin varð ekki skárri, 2-0 tap Vals gegn Fram og Stjarnan tapaði dýrmætum leik gegn Víking R. 3-2.

Valur er fyrir ofan Stjörnuna á markatölu en liðin eru með 41 stig.
Bæði með 12 sigra, 5 jafntefli og 7 töp.
Markatala Vals er +16 gegn +7 hjá Stjörnunni.

Þó að titilvonir beggja liða eru daufar þá vilja eflaust bæði lið klára sín Evrópusæti, þau eru með Breiðablik á eftir sér fjórum stigum eftir og Víkingar eru nokkuð þæginlega á toppnum eins og er. Sjö stigum frá liðum kvöldsins fyrir þessa umferð.
Fyrir leik
Dómarateymið Á flautunni í kvöld er Helgi Mikael Jónasson.
Aðstoðardómarar eru Egill Guðvarður Guðlaugsson og Eysteinn Hrafnkelsson.
Viðar Helgason er eftirlitsmaður og Pétur Guðmundsson varadómari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Heilsum frá Hlíðarenda Góða kvöldið, það er textalýsingin í kvöld og ætlum við að fylgjast með leik Vals og Stjörnunnar.
Leikurinn fer af stað 20:00
Annað og þriðja sætið að mætast í þriðju síðustu umferð Bestu Deildar Karla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
5. Guðmundur Kristjánsson (f)
6. Sindri Þór Ingimarsson ('89)
7. Örvar Eggertsson
10. Samúel Kári Friðjónsson
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
23. Benedikt V. Warén
29. Alex Þór Hauksson ('82)
32. Örvar Logi Örvarsson
44. Steven Caulker
99. Andri Rúnar Bjarnason ('62)
- Meðalaldur 29 ár

Varamenn:
1. Aron Dagur Birnuson (m)
8. Jóhann Árni Gunnarsson ('82)
11. Adolf Daði Birgisson ('89)
20. Alpha Conteh ('62)
21. Ibrahim Turay
24. Sigurður Gunnar Jónsson
28. Baldur Logi Guðlaugsson
45. Guðlaugur Breki Sigurgeirsson
78. Bjarki Hauksson
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Jökull I Elísabetarson (Þ)
Emil Atlason
Rajko Stanisic
Þór Sigurðsson
Egill Atlason
Hákon Ernir Haraldsson
Garpur I Elísabetarson
Aleksandar Cvetic

Gul spjöld:
Örvar Logi Örvarsson ('36)
Alex Þór Hauksson ('58)

Rauð spjöld: