Man Utd gæti misst Fernandes - Napoli vill Mainoo - Barcelona og Liverpool berjast um Upamecano
Besta-deild karla - Efri hluti
Valur
89' 3
2
Stjarnan
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
FHL
LL 2
3
Þór/KA
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Fram
LL 3
3
Tindastóll
Fram
3
3
Tindastóll
0-1 Birgitta Rún Finnbogadóttir '20
Mackenzie Elyze Smith '36 1-1
Ólína Sif Hilmarsdóttir '38 2-1
Eyrún Vala Harðardóttir '52 3-1
3-2 Nicola Hauk '65
3-3 Makala Woods '84
04.10.2025  -  16:15
Lambhagavöllurinn
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Dómari: Róbert Þór Guðmundsson
Maður leiksins: Birgitta Rún Finnbogadóttir
Byrjunarlið:
1. Ashley Brown Orkus (m)
4. Emma Kate Young
6. Katrín Erla Clausen ('80)
8. Karítas María Arnardóttir
9. Murielle Tiernan
10. Una Rós Unnarsdóttir ('63)
13. Mackenzie Elyze Smith (f) ('57)
20. Freyja Dís Hreinsdóttir ('63)
22. Ólína Sif Hilmarsdóttir
30. Kamila Elise Pickett
77. Eyrún Vala Harðardóttir ('57)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
3. Olga Ingibjörg Einarsdóttir
5. Dominiqe Evangeline Bond-Flasza ('80)
7. Alda Ólafsdóttir ('63)
11. Lily Anna Farkas ('57)
14. Hildur María Jónasdóttir ('57)
18. Eyrún Björg Benediktsdóttir
25. Karen Dögg Hallgrímsdóttir
29. Sylvía Birgisdóttir ('63)
35. María Kristín Magnúsdóttir
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Óskar Smári Haraldsson (Þ)
Pálmi Þór Jónasson
Þóra Rún Óladóttir
Ólína Ágústa Valdimarsdóttir
Kirian Elvira Acosta
Sara Dögg Ásþórsdóttir
Viktor Freyr Sigurðsson
Thelma Björk Theodórsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
3-3 jafntefli endar þessi leikur hér í dag!

Sterkt fyrir Tindastólskonur að koma til baka úr 3-1 stöðu en þær eru væntanlega svekktar að hafa ekki fengið víti.

Fram konur hins vegar glundra niður 3-1 forystu, mikið rót á liðinu með skiptingum sem kannski hafði sitt að segja?

Annars bara takk fyrir samfylgdina, skýrsla og viðtöl koma inn seinna í dag
93. mín
Alda Ólafs á hér síðasta skot leiksins sem Crenshaw ver
91. mín
a.m.k. 3 mínútum bætt við venjulegan leiktíma
91. mín
Lily Farkas í sórhættulegri stöðu, kemur boltanum inn á Dom sem er alein en hins vegar kolrangstæð og flaggið á loft
89. mín
Elísa fær sendingu upp Karítas tæklar boltann útaf en virðist hafa meitt sig eitthvað í leiðinni
88. mín
Allt í einu er leikurinn orðinn galopinn! Við hljótum að fá sigurmark hér öðru hvoru megin
87. mín
Birgitt reynir fyrirgjöf á Elísu sem er í góðri stöðu en sendingin ekki nógu nákvæm
84. mín MARK!
Makala Woods (Tindastóll )
Tindastóll að jafna! Makala ekkert eðlilega grimm hérna, pressar á Karítas, nær boltanum af henni fer síðan inn á völlin leggur boltan fyrir sig á vinstri og setur hann svo örugglega í fjærhornið
80. mín
Inn:Dominiqe Evangeline Bond-Flasza (Fram) Út:Katrín Erla Clausen (Fram)
80. mín
Farkas aftur með skot inn í teig en í fjærstöngina og út
78. mín
Farkas reynir skot en fer í marknetið
76. mín
Birgitta tekur boltann með sér inn í teig, reynir skotið en það í varnarmann
74. mín
HVAÐ ER AÐ GERAST HÉRNA?!?! Róbert dómari er að eiga hörmulegan leik... Pjúra víti sem hann sleppir því að dæma hérna... Karítas með glæfralega tæklingu fellir Makölu inn í teig langt eftir að boltinn er farinn
73. mín
Inn:Aldís María Jóhannsdóttir (Tindastóll ) Út:Bryndís Rut Haraldsdóttir (Tindastóll )
Pjúra sóknarbreyting hér, sóknarmaður í stað varnarmanns
70. mín
Það er eitthvað í gangi hérna?!?! Hrafnhildur aftur rifin niður bara eins og góð rugby tækling, aftur dæmir dómarinn ekkert? Ekki fyrr en línuvörðurinn flaggar, ekkert spjald á loft hér heldur... Þetta er mjög skrítin lína sem Róbert er að setja hérna...
68. mín Gult spjald: Hrafnhildur Salka Pálmadóttir (Tindastóll )
Þetta er eiginlega galið... Framkonur brjóta mjög sjáanlega á Hranfhildi en ekkert dæmt, hún fer svo til maka með nákvæmlega eins brot en þá er dæmt og hún fær spjald....
65. mín MARK!
Nicola Hauk (Tindastóll )
Stoðsending: Laufey Harpa Halldórsdóttir
horn sem Laufey tekur fyrir gestina, Nicola ræðst á boltan, boltinn lekur inn í gegnum varnarmenn Fram og í netið
63. mín
Inn:Sylvía Birgisdóttir (Fram) Út:Una Rós Unnarsdóttir (Fram)
63. mín
Inn:Alda Ólafsdóttir (Fram) Út:Freyja Dís Hreinsdóttir (Fram)
62. mín
Farkas reynir skot en Nicola Hauk kemst fyrir það
59. mín
Murielle með hörkuskot en Crenshaw ver vel
58. mín
Inn:Guðrún Þórarinsdóttir (Tindastóll ) Út:Lara Margrét Jónsdóttir (Tindastóll )
57. mín
Inn:Hildur María Jónasdóttir (Fram) Út:Mackenzie Elyze Smith (Fram)
57. mín
Inn:Lily Anna Farkas (Fram) Út:Eyrún Vala Harðardóttir (Fram)
56. mín
Enn er Fram að ógna... Murielle nálægt því að skora
54. mín
María reynir skot á miðjum vallarhelmingnum en það er laus og Ashley grípur boltann vandkvæðalaust
52. mín MARK!
Eyrún Vala Harðardóttir (Fram)
Úfffffff Bombar boltanum fyrst í stöngina, fær hann til sín aftur og þá leggur hún boltann örugglega í markið
Fyrir leik, í hálfleik og á meðan leik stendur

Pepsi Max - fyrir þorstann í meira!
50. mín
Ólína Sif reynir fyrirgjöf en skýtur í Bryndísi og útfyrir endalínu, horn sem Una Rós tekur, darraðardans í teignum en þær koma boltanum loks frá
49. mín
María með góða stungu upp á Birgittu sem setur hann fyrir en Emma Kate kemur honum fram, boltinn berst svo til Laufeyjar sem á skot í þverslánna, Ashley snertir hann samt á leiðinni útaf, Elísa Bríet tekur hornið en setur hann útaf
46. mín
Katrín Erla sparkar seinni hálfleik af stað fyrir Fram
45. mín
Hálfleikur
Fram leiði hér í hálfleik 2-1

Tindastóll var betri aðilinn í 36 mínútur, áttu 3-4 dauðafæri en Fram átti varla færi.
Hins vegar það sem er svo skemmtilegt við fótboltan er að þú þarft bara 2 góð færi og þú ert kominn yfir!

Algjörlega það sem Fram tókst að gera og komust þá miklu betur inn í leikinn og Tindastóls konur líta út fyrir að hafa brotnað aðeins...
45. mín
Þetta var skrítin ákvörðun hjá dómaranum, Eyrún Vala vel pirruð rífur og heldur í Pettet í góðar 5-6 sekúndur, ég hefði viljað sjá spjald hérna! Þetta var algjört pirringsbrot en hún sleppur við skrekkinn eftir tiltal.
43. mín
Pickett á fyrirgjöf á Eyrúnu Völu en skallinn laus og beint í fangið á Crenshaw
39. mín
Þvílíkar sviptingar hérna á 2 mínútum! Tindastóll búinn að vera miklu sterkar aðilinn með urmull dauðafæra, þær hljóta að naga sig í handabökin að hafa ekki sett að minnsta kosti 2 mörk úr þessum færum
38. mín MARK!
Ólína Sif Hilmarsdóttir (Fram)
Una tekur hornspyrnu, fer í varnarmenn Tindastóls og berst til Ólínu sem setur hann auðveldlega í markið bara,
36. mín MARK!
Mackenzie Elyze Smith (Fram)
Stoðsending: Murielle Tiernan
Þetta var ekkert eðlilega auðvelt mark! Þríhyrningaspil inn í teig hjá Mackenzie og Murielle sem endar með föstu skoti frá Mackenzie í fjær hornið
35. mín
Makala pressar boltann, Ashley kemur úr markinu og setur hann útaf
33. mín
Emma Kate brýtur á Makölu, Laufey tekur þetta stutt á Pettet
32. mín
Ólína Sif reynir skot fyrir fram fyrir utan teiginn en Crenshaw á ekki í vandræðium með það
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Enn og aftur er gott samspil á milli Makölu og Elísu, Elísa fær boltann í dauuuuuðafæri en setur hann utanfótar beint á Ashley, hefði átt að gera miklu betur þarna
29. mín
Makala grimm, nær að koma boltanum fyrir en Elísa nær ekki til boltans, hún fær þó annan séns en boltinn framhjá
27. mín
Makala með fyrirgjöf á Elísu sem tekur hann í fyrsta en boltinn örfínt framhjá
26. mín
Makala með skot útaf kanntinum sem endar í þverslánni, Ashley virðist snerta hann, horn sem Laufey tekur, barátta á milli Karítasar og Bryndísar boltinn út fyrir endalínu og markspyrna dæmd
24. mín
Fram að komast í ágætis sókn, Pickett með boltan og ætlar að koma honum fyrir en María er þar mætt og sparkar boltanum útaf
20. mín MARK!
Birgitta Rún Finnbogadóttir (Tindastóll )
VÁÁÁÁÁÁ! ÞETTTTTTA VAR ROSALEGT! Birgitta pressar á sendingu til Karítasar, er mun grimmari og hreinlega hrifsar af henni boltann, kemst þar með ein í gegn og leggur hann svo bara auðveldlega framhjá Ashley
18. mín
Hornspyrna frá Unu Rós, Eyrún Vala setur hann svo fyrir og þar er Ólína Sif sem hamrar boltanum í þverslánna
18. mín
Una Rós tekur aukaspyrnu fyrir Fram, á barasta skot á markið, og á einhvern óskiljanlegan hátt þá klobbar hún Crenshaw? Þetta var mjög skrítið, boltinn út fyrir endalínu.
16. mín
Eyrún Vala tekur Hrafnhildi niður, Crenshaw tekur spyrnuna við miðjulínuna, boltinn inn í teig og spýtist í grasinu, Ashley þarf eiginlega bara að hafa sig alla við að verja frá markmanni stólanna
14. mín
Hrafnhildur er tekin niður, leikurinn heldur áfram en endar þó ekki betur en svo að Hrafnhildur fær boltann í sig af fullum krafti meðan hún liggur. Virðist við það missa andan
12. mín
Góð sókn hjá Fram, fyrst reynir Murielle skot sem fer í varnarmann en berst þó inn á teiginn þar sem Eyrún Vala reynir skot en það fer einnig í varnarmann og loks útaf, Una tekur hornið en ekkert kemur úr því
11. mín
Tindastólskonur hafa verið mun hættulegri aðilinn það sem af er leiknum en hann er þó ennþá frekar lokaður og ekki mikið um opin færi
8. mín
Ágætis tilraun hjá Tindastól, Makala fær boltann inn í teig, reynir að setja hann fyrir á Birgittu en hún nær ekki að hitta hann alveg nógu vel og skallinn hennar fer út fyrir endalínu
7. mín
Hrafnhildur með stungu upp í horn á Elísu sem er í kapphlaupi við Karítas Maríu, þær falla báðar við endalínuna en boltinn helst enn inn á
5. mín
Katrín Erla brýtur á Hrafnhildi, Elísa Bríet tekur aukaspyrnu inn á teig, þar er Nicola í góðu hlaupi en Ashley Brown vel vakandi og hirðir boltann
3. mín
Murielle og Una eiga gott samspil hérna og ná innkasti á góðum stað en ekkert kemur þó úr því
Fyrir leik
Leikur hafinn
Elísa Bríet sparkar leiknum af stað fyrir gestina
Fyrir leik
Tindastóll Tindastóls konur féllu úr Bestu deildinni eftir 3 ára veru, þegar þær töpuðu síðasta leik sínum gegn Þór/KA 0-3 á Akureyri. Þær þurftu þar með að treysta á að Fram tapaði sínum leik.

Fram hins vegar sigraði lið FHL 4-0 í síðasta leik og komst þar með 7 stigum fyrir ofan Tindastól, tryggðu sitt sæti og felldu Tindastól.

Þjálfari Tindastóls Halldór Jón, Jafnan kallaður Donni gaf það út á dögunum að hann myndi hætta með lið Tindastól eftir tímabilið.

Það verður gaman að sjá hvernig Tindastóll spilar þar sem engin pressa er á þeim núna og áhugavert hvort ungir og óreyndir leikmenn fái fleiri mínútur.

Annars er þá spurning hvort Brautaholts systkinið vinnur hér í dag, Óskar þjálfari Fram eða Bryndís fyrirliði Tindastóls.

Mynd: Sigurður Ingi Pálsson

Fyrir leik
Fram Fram konur voru nýliðar í deildinni í ár og tryggðu sæti sitt í deild þeirra bestu í síðasta leik þegar þær unnu lið FHL 4-0.
Þar með felldu þær lið Tindastóls sem þær mæta í dag.

Leikir Fram og Tindastóls hafa í sumar verið mjög jafnir, Fram sigraði fyrri leik liðana 1-0 með marki frá Murielle Tiernan, fyrrum leikmanni Tindastóls, í uppbótartíma. Seinni leikurinn sem fram fór á Sauðárkróki fór einnig 1-0 en þá fyrir Tindastól, þegar Makala skoraði.

Fram og Þór/KA hafa jafn mörg stig, 24 stig í 1. og 2. sæti en Fram hefur lélegri markatölu. Mesta spennan í neðri hlutanum er þar af leiðandi um hvort liðið endar í 1. sæti af neðri hluta liðunum.

En liðin mætast á Akureyri á fimmtud. í næstu viku.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarar dagsins Á flautunni í dag verður Róbert Þór Guðmundsson og honum til halds og traust verða Óliver Thanh Tung Vú og Kári Mímisson aðstoðardómarar.

Eftirlitsmaður er Kristján Halldórsson og varadómari í kvöld er Breki Sigurðsson


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin á Lambhagavöll Góðan daginn, verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá Lambhagavelli þar sem Fram tekur á móti Tindastól í næst síðustu umferð í neðri hluta Bestu deildarinnar.

Leikurinn hefst á slaginu 16:15!


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Genevieve Jae Crenshaw (m)
3. Bryndís Rut Haraldsdóttir (f) ('73)
4. Nicola Hauk
6. Laufey Harpa Halldórsdóttir
9. María Dögg Jóhannesdóttir
10. Elísa Bríet Björnsdóttir
13. Birgitta Rún Finnbogadóttir
14. Lara Margrét Jónsdóttir ('58)
25. Makala Woods
26. Katherine Grace Pettet
30. Hrafnhildur Salka Pálmadóttir
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
12. Sigríður H. Stefánsdóttir (m)
2. Guðrún Þórarinsdóttir ('58)
11. Aldís María Jóhannsdóttir ('73)
15. Emelía Björk Elefsen
16. Harpa Sif Hreiðarsdóttir
17. Hrafney Lea Árnadóttir
18. Sunneva Dís Halldórsdóttir
23. Magnea Petra Rúnarsdóttir
- Meðalaldur 18 ár

Liðsstjórn:
Konráð Freyr Sigurðsson (Þ)
Halldór Jón Sigurðsson (Þ)
Margrét Ársælsdóttir
Nikola Stoisavljevic

Gul spjöld:
Hrafnhildur Salka Pálmadóttir ('68)

Rauð spjöld: