SKÝRSLAN: Slátrun á AVIS vellinum
Hvað réði úrslitum?
Ísland voru einfaldlega betri en Eistar, það var allt galopið sérstaklega í seinni hálfleik og það má vera svekkjandi að hafa ekki skorið fleiri mörk.
Bestu leikmenn
1. Viktor Bjarki Daðason
Tvö mörk og tvær stoðsendingar í dag, fyrir utan það þá var hann heilt yfir góður og spilið hans og Daníel Tristans var gott.
2. Daníel Tristan Guðjohnsen
Tvö mörk í dag en fyrir utan það þá var pressan hjá honum mjög góð og spilið aftur með Viktor var gott.
Atvikið
Seinni hálfleikurinn tók Ísland alveg yfir og slátraði Eistlandi. Fyrsta mark Viktors sló Eista alveg út úr laginu og þeir áttu ekki sjens eftir það.
Hvað þýða úrslitin?
Ísland er komið í annað sætið í riðlinum, en Færeyingar geta tekið sætið ef þeir vinna Svisslendinga á morgun. Frakkar eru næstir fyrir Íslendinga og getur sá leikur verið spennandi.
Vondur dagur
Eistar voru í stökust vandræðum í dag og áttu ekki breik í ísland, það var skrýtið hvernig Eistar byrjuðu sum kick offin sín þar sem sumir voru of fljótir á sér og þurfti dómarinn að stoppa leikinn og biðja þá um að byrja aftur. En svo má lasta vörn Íslands þegar Eistar skoruðu mörkin sín tvö þá voru allir sofandi, sérstaklega í fyrsta markinu.
Dómarinn - 7
Bara decent ekkert vafa atriði þannig séð



