Fotbolti.net
Jakob Örn Heiðarsson
Mjólkurbikar karla
tekk VÖLLURINN
Fylkir
Fylkir
6 - 0
KV
KV
Benedikt Daríus Garðarsson 30'1 - 0Bjarki Steinsen Arnarsson 32'2 - 0Guðfinnur Þór Leósson 37'3 - 0Theodór Ingi Óskarsson 73'4 - 0Theodór Ingi Óskarsson 76'5 - 0Theodór Ingi Óskarsson 81'6 - 0
Dómari: ÞÞÞ

SKÝRSLAN: Þrenna á 8 mínútum á Tekk vellinum

Hvað réði úrslitum?

Fylkir með alla yfirhöndina í kvöld. Leikurinn byrjaði rólega, en um leið og fyrsta markið kom fór smá panik í gegn hjá KV, og Fylkir gerði út um leikinn í fyrri hálfleiknum.

Bestu leikmenn

1. Theodór Ingi Óskarsson

Kemur inn á 68. mínútu og skorar þrennu á aðeins 8 mínútum. Glæsileg innkoma hjá honum!

2. Nikulás Val Gunnarsson

Kom einnig inn á 68. mínútu og leggur upp tvö mörk fyrir Theodór Inga.

Atvikið

Skiptingin á 68. mínútu þar sem Theodór Ingi og Nikulás Val koma inn á. Þrettán mínútum síðar eru Theodór kominn með þrjú mörk, og Nikulás Val með tvær stoðsendingar.

Hvað þýða úrslitin?

Fylkir tryggir sér áfram í 32 liða úrslitunum og fær heimaleik! Nú verður spennandi að sjá hvort mótherjinn verður KFA eða Sindri.

Vondur dagur

Erfitt að setja á einn leikmann. Svolítið gæðamunur er á liðunum, en KV hefði átt að halda betri fókus eftir að hafa fengið fyrstu tvö mörkin á sig.

Dómarinn - 10

Ekkert út á dómarateymið að setja hér í kvöld. Leikurinn var í góðu jafnvægi og engin stór atriði sem höfðu áhrif á útkomuna.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.