Fotbolti.net
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kjarnafæðimótið Úrslit
Boginn
Alltaf jafn sniðugt að segja að það sé logn
Þór
Þór
8 - 7
KA
KA
Bjarni Guðjón Brynjólfsson 57'1 - 01 - 188' Jakob Héðinn RóbertssonSigfús Fannar Gunnarsson (víti) 91'2 - 1Christian Jakobsen (víti) 91'3 - 1Hermann Helgi Rúnarsson (víti) 91'4 - 1Ágúst Eðvald Hlynsson (víti) 91'5 - 1Aron Ingi Magnússon (víti) 91'6 - 1Kristófer Kristjánsson (víti) 91'7 - 1Yann Emmanuel Affi (víti) 91'8 - 18 - 291' Hallgrímur Mar Steingrímsson (víti)8 - 391' Valdimar Logi Sævarsson (víti)8 - 491' Steinþór Már Auðunsson (víti)8 - 591' Diego Montiel (víti)8 - 691' Jakob Héðinn Róbertsson (víti)8 - 791' Bjarki Fannar Helgason (víti)
Dómari: Bergvin Fannar Gunnarsson
Leik lokið!
Þór vinnur Kjarnafæðimótið annað árið í röð!
Þór
91. mín
MAAAARK!

Yann Emmanuel Affi

Varnarmaðurinn skorar af öryggi og tryggir Þór sigurinn.
91. mín
Yfir
Setur boltann yfir markið. Affi getur tryggt Þór sigur.
Þór
91. mín
MAAAARK!

Kristófer Kristjánsson

Mjög gott víti! 6-6 eftir sjö umferðir. Mikael Breki tekur áttundu spyrnu KA.
KA
91. mín
MAAAARK!

Bjarki Fannar Helgason

Bjarki Fannar kemur KA aftur yfir! Krostófer tekur sjöundu spyrnu Þórs, þarf að skora.
Þór
91. mín
MAAAARK!

Aron Ingi Magnússon

5-5! Aron Ingi jafnar, ekki besta vítið en Steinþór fór í hitt hornið.
KA
91. mín
MAAAARK!

Jakob Héðinn Róbertsson

Jakob gerir vel, Aron Birkir fór aðeins á undan af stað. KA leiðir. Aron Ingi á punktinn.
Þór
91. mín
MAAAARK!

Ágúst Eðvald Hlynsson

Ágúst öruggur, Steinþór í rangt horn. Allt jafnt, Jakob Héðinn byrjar bráðabanann.
91. mín
Annað klikk!
Alvöru varsla hjá Aroni Birki! Fast skot sem Aron ver. Ágúst Eðvald getur jafnað.
91. mín
Klikk!
Steinþór Már fer í rétt horn og ver. Hans Viktor getur klárað þetta!
KA
91. mín
MAAAARK!

Diego Montiel

Smá hik í lok aðhlaupsins og vítaspyrnan mjög örugg. 3-4 fyrir KA í vító. Ingimar Arnar er næstur.
Þór
91. mín
MAAAARK!

Hermann Helgi Rúnarsson

Tekur sér góðan tíma og sendir svo Steinþór í rangt horn. 3-3 í vító. Diego Montiel er næstur.
KA
91. mín
MAAAARK!

Steinþór Már Auðunsson

Röltir að boltanum og rúllar honum í hornið. Þetta var ískalt. 2-3 fyrir KA í vító. Hermann Helgi næstur.
Þór
91. mín
MAAAARK!

Christian Jakobsen

Tvö skref, setur boltann uppi og Steinþór nær ekki til boltans. 2-2 í vító. Steinþór á punktinn!
KA
91. mín
MAAAARK!

Valdimar Logi Sævarsson

Mjög svo öruggt víti, Aron Birkir í rétt horn. 1-2 í vító. Greko tekur næsta víti fyrir Þór.
Þór
91. mín
MAAAARK!

Sigfús Fannar Gunnarsson

Alls ekki jafn öruggt víti, fer undir Stubb, en inn fór boltinn. 1-1 í vító.
KA
91. mín
MAAAARK!

Hallgrímur Mar Steingrímsson

Mjög öruggt víti hjá Grímsa, Aron Birkir skutlar sér í rangt horn. 0-1 KA í vító.
90. mín
Við förum í vítaspyrnukeppni!
90. mín
Ágúst Eðvald á sprettinum eftir sendingu frá Greko, skallar boltann niður, fer framhjá Hans Viktori og á skot með vinstri sem hittir ekki markið.
90. mín
Þórsarar fá hornspyrnu. Þrjár mínútur eftir.
90. mín
Hermann Helgi í séns fyrir Þór en hittir ekki markið.
90. mín
Fimm mínútum bætt við
KA
90. mín
Gult spjald

Mikael Breki Þórðarson

Þór
90. mín
InnHermann Helgi Rúnarsson
ÚtBjarni Guðjón Brynjólfsson
Hallgrímur Mar leikur sér að skjóta úr hornspyrnunni, skorar, en þá var búið að flauta skiptingu. Vel skotið.
90. mín
KA fær horn sem Þórsarar eru allt annað en sáttir með.
KA
88. mín
KA JAFNAR!

Jakob Héðinn Róbertsson

Þung sókn hjá KA, skot frá Valdimar sem fer af varnarmanni og fellur vel fyrir Jakob inn á teignum og hann gerir allt rétt - setur boltann framhjá Aroni í marki Þórs. Við erum á leið í vító!
Þór
87. mín
Gult spjald

Ágúst Eðvald Hlynsson

Braut á Kára Gautasyni úti við hliðarlínu.
86. mín
Grímsi reynir skot á lofti með vinstri en hittir ekki mark Þórsara. Ragnar Óli með skalla út í teiginn sem féll nokkuð vel fyrir Grímsa en honum brást bogalistin.
84. mín
Hiti á báðum bekkjum síðustu mínútur sem er bara gaman, það verður að vera aðeins líf í þessu!
KA
84. mín
InnMikael Breki Þórðarson
ÚtDanijel Dejan Djuric
KA
84. mín
InnJakob Héðinn Róbertsson
ÚtJeppe Pedersen
83. mín
Sigfús Fannar snýr einhvern veginn á hlið en reynir samt að skjóta. Skotið er laust og Steinþór er með þetta allt í teskeið.
Þór
81. mín
Gult spjald

Christian Jakobsen

80. mín
Grímsi með skot fyrir utan teig sem fer rétt framhjá nærstönginni. Besti leikmaður KA er farinn að komast í betri og betri stöður.
78. mín
Diego Montiel með mjög fína fyrirgjöf en boltinn fer í gegnum teiginn og framhjá fjærstönginni, þarna vantaði að samherjarnir létu sig vaða á boltann.
Þór
77. mín
InnElvar Baldvinsson
ÚtBirgir Ómar Hlynsson
Birgir átti mjög fínan leik, hefur haldið Danijel Djuric nokkuð mikið niðri.
75. mín
Hans Viktor reynir að stýra boltanum í netið með hælspyrnu en hittir ekki markið, skot frá Grímsa sem var á leið framhjá.
75. mín
Aron Birkir!
Hallgrímur Mar með þrumuskot fyrir utan teig eftir hornið og Aron Birkir þarf að taka á honum stóra sínum. Vel gert hjá báðum!
74. mín
Danijel Djuric með sendingu ætlaða Bjarka Fannari, sendingin fer af varnarmanni og verður eiginlega betri. Bjarki Fannar gerir vel í þröngu færi og Aron Birkir gerir vel að verja í horn.
Þór
73. mín
InnAron Ingi Magnússon
ÚtIsaac Atanga
Aron Ingi spilar sínar fyrstu mínútur í vetur. Mættur aftur eftir nárameiðsli.
73. mín
Hallgrímur Mar með flotta aukaspyrnu en skotið fer í utanvert hliðarnetið! Einhver fagnaðarlæti í Boganum, kannski var það í kaldhæðni.
Þór
72. mín
Gult spjald

Bjarni Guðjón Brynjólfsson

Bjarni Guðjón fullákafur og gefur aukaspyrnu nálægt vítagteig Þórs.
69. mín
Birgir Ómar reynir langskot eftir skrítinn sprett hjá Isaac Atanga í kjölfar hornspyrnunnar - bauð hættunni heim þegar Þórsarar voru fáliðaðir til baka. Skotið fer framhjá.
68. mín
Þórsarar í færi, Kristófer með fínan bolta en Ingimar kemst ekki almennilega í boltann við markteiginn. Þórsarar vinna svo hornspyrnu í kjölfarið.
KA
67. mín
InnBjarki Fannar Helgason
ÚtJakob Snær Árnason
Jakob byrjaður að stífna upp eftir hlaupin í fremstu línu.
Þór
63. mín
InnIngimar Arnar Kristjánsson
ÚtFannar Daði Malmquist Gíslason
Sigfús Fannar færist út á vinstri kantinn. Ingimar fer í stöðu fremsta manns.
Þór
62. mín
Gult spjald

Ragnar Óli Ragnarsson

Brýtur á Jakobi Snæ og fær verðskuldað spjald. Fyrsta gula spjaldið í kvöld.
KA
60. mín
InnValdimar Logi Sævarsson
ÚtRodrigo Gomes Mateo
KA
60. mín
InnDiego Montiel
ÚtSamuel Kroon
Kroon komst ekki mikið í boltann í þessum leik.
58. mín
Bjarni Guðjón með flotta tæklingu gegn Danijel Djuric en KA fær horn. Þórsarar ná svo að hreinsa boltann upp völlinn eftir hornið. Ég er eiginlega enn að meðtaka þetta mark, þvílíka neglingin.
Þór
57. mín
JAHÁ!!!!! Alvöru þrusa!

Bjarni Guðjón Brynjólfsson

Isaac Atanga með skottilraun í varnarmann, boltinn kemur skoppandi í átt að Bjarna fyrir utan vítateiginn og hann gjörsamlega smellhittir hann - þrumar boltanum í stöngina og inn. Gullfallegt skot! 1-0 fyrir Þór!
56. mín
Sigfús Fannar fljótur að taka innkast, kastar inn á vítateig KA, þar er Atanga fyrstur í boltann, nær snertingu en Guðjón Ernir er vel á verði og hreinsar í horn.
52. mín
Fannar Daði liggur eftir í kjölfar hornspyrnu KA. Eitthvað hnjask en hann er nú nokkuð fljótur að standa upp og heldur leik áfram.
51. mín
Ekki nógu gott skot
KA í hraðri sókn eftir hornspyrnu Þórsara Guðjón Ernir er í mjög góðu færi hægra megin í teignum en hann nær einhvern veginn ekki að hlaða í gott skot og Aron Birkir getur barara staðið og ver til hliðar. Ágúst Hlyns skallar svo lausa boltann aftur fyrir.
50. mín
Dauðafæri!
Kristófer finnur Sigfús inn á miðjum teignum, hann teygir sig eitthvað skringilega í boltann og hittir ekki mark KA manna í mjööög góðu færi. Fyrsta góða sókn hálfleiksins eftir erfiðar fjórar fyrstu mínútur.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Atanga og Fannar skipta um kant hjá Þór. Fannar er núna kominn á vinstri og Atanga hægri.
KA
46. mín
InnKári Gautason
ÚtBreki Hólm Baldursson
Kári fer í vinstri bakvörðinn.
45. mín
Held það sé sanngjarnt að segja að KA hafi fengið þrjú bestu færi hálfleiksins en það er markalaust í leikhléi.
45. mín
ANNAÐ DAUÐAFÆRI
Guðjón Ernir leggur boltann út á vítapunkt og þar er Grímsi í dauðafæri en hann hittir ekki markið heldur þrumar boltanum yfir! Vörn Þórs mjög tæp síðustu mínútur hálfleiksins.
44. mín
DAUÐAFÆRI
Mikill vandræðagangur hjá Þórsurum, Grímsi er fyrstur á lausan bolta og leggur boltann út í teiginn. Danijel Djuric fær botlann og er í algjörri dauðafæri en á skot sem Aron Birkir nær að setja löppina fyrir. Annað færið sem Danijel klikkar á.
42. mín
Upp úr aukaspyrnunni berst boltinn á Samuel Kroon vinstra megin við D-bogann á vítateig Þórs, hann lætur vaða en skotið fer talsvert framhjá fjærstönginni.
41. mín
Rodri öskrar vel þegar Greko fer í hann í návígi og nær að fá auaspyrnu. KA sækir svo upp völlinn og vinnur aukaspyrnu á vinstri kantinum.
38. mín
Bjarni Guðjón reynir skot úr aukaspyrnunni en það fer vel yfir mark KA.
37. mín
Bergvin klippir Ágúst úr snörunni. Rodri vinnur boltann af honum þegar spretturinn hjá honum er að renna út í sandinn en Bergvin dæmir ótrúlega ódýra aukaspyrnu nokkrum metrum fyrir utan D-bogann á vítateig KA. Ágúst hefði átt að vera búinn að losa sig við boltann áður en hann lenti á Rodri.
34. mín
Isaac Atanga fær boltann frá Fannari Daða, Þórsarar mjög fljótir að koma boltanum upp völinn, Atanga leikur sér aðeins með boltann og reynir svo skot úr þröngri stöðu en KA menn komast fyrir. Ekkert kom svo upp úr hornspyrnunni.
31. mín
Snörp sókn hjá KA, flott skipting yfir til hægri úr vinstri bakverðinum hjá Breka. Kroon reynir fyrirgjöf og Ragnar Óli skallar aftur fyrir. Ekkert kom upp úr hornspyrnunni. Rétt á undan átti Birgir Ómar álitlegan sprett upp völlinn, skildi nokkra KA menn eftir, þar á meðal Grímsa sem gafst nokkurn veginn upp, en það var kannski af því að Hans Viktor kom á ferðinni og mokaði upp lausa boltann.
27. mín
Danijel með fína fyrirgjöf inn á vítateig Þórs, finnur Jakob Snæ en skalli hans er laus og til hliðar. Aron Birkir labbar til hliðar og handsamar boltann.
26. mín
Vel spilað hjá Þórurum, Atanga finnur Kristófer inn á teignum við endalínu og hann kemur með boltann fyrir. Hann finnur ekki samherja og Breki kemst í hann. Sóknin rennur út í sandinn.
21. mín
Birgir Ómar með slaka sendingu ætlaða Ragnari Óla held ég, Hallgrímur Mar er vel á tánum, er fyrstur á boltann rétt fyrir framan miðlínu og lætur vaða. Sem betur fer fyrir Þórsara hittir Grímsi ekki markið.
19. mín
Færi
Vel spilað hjá Þórsurum úti hægra megin, Ágúst Eðvald á svo fyrirgjöfina sem ætluð er Greko en boltinn fer af varnarmanni KA inni á markteignum og yfir mark KA. Ragnar Óli á svo skalla eftir hornspyrnuna en hittir ekki markið.
16. mín
Sigfús að gera sig líklegan við vítateig KA en Markús gerir vel í því að stíga hann út og KA á markspyrnu.
15. mín
Nú vilja Þórsarar víti
Tækling inn á vítateig KA og Fannar Daði fer niður, held að Markús hafi átt tæklinguna. Ekkert dæmt. Það er allavega líf í þessu.
14. mín
Jakob fer niður eftir smá snertingu frá Affi og Affi er alls ekki kátur með það og hrindir Jakob inn á teignum. Ekkert dæmt, einhverjir KA menn vilja víti en ekkert flautað.
12. mín
Fín sókn hjá KA, Jakob Snær vill fá eitthvað meira en bara horn en hann fór niður í vítatieg Þórsara. Affi skallar hornspyrnu Danijels í burtu og brotið er á honum. Aron Birkir er ekki hrifinn af þessu broti og vill sjá Bergvin dómara taka á þessu. Aukaspyrna og ekkert spjald niðurstaðan.
11. mín
Hans verst vel, Fannar laumar boltanum í hlaupið fyrir Greko inn á vítateig KA en Hans Viktor gerir vel að mæta í bakið á honum og vinnur svo boltann.
11. mín
Fannar Daði með skot við D-bogann en þægileg varsla fyrir Steinþór. KA menn í brasi með hápressu Þorsara þessar mínúturnar.
8. mín
Gústi Hlyns í góðu færi
Góð pressa hjá Þórsurum, boltinn unninn, Sigfús Fannar finnur Ágúst hægra megin á teignum en Steinþór ver vel frá honum og heldur boltanum.
5. mín
Uppstilling KA
Steinþór Guðjón - Markús - Hans - Breki Rodri - Jeppe Samuel - Hallgrímur - Danijel Jakob
4. mín
Uppstilling Þórs
Aron Birkir Birgir - Ragnar - Affi - Kristóer Bjarni - Greko Fannar - Ágúst - Atanga Sigfús
3. mín
KA fær sitt þriðja horn. Ragnar Óli skallar í burtu fyrirgjöf Danijels og svo í kjölfarið er dæmd aukaspyrna á KA. Þórsarar byggja upp sókn.
2. mín
Dauðafæri!
Danijel Dejan Djuric fær boltann frá Jeppe, flott fyrirgjöf og Danijel á að gera betur. Aron Birkir gerir mjög vel að verja!
1. mín
Breki vinnur hornspyrnu fyrir KA strax á 1. mínútu.
1. mín
KA byrjar með boltann
Hallgrímur Mar (Grímsi) sparkar þessu af stað.
0. mín
Þetta fer að hefjast
Þórsarar eru í hvítum treyjum og rauðum stuttbuxum. KA er í gulum treyjum og bláum stuttbuxum. Aron Birkir Stefánsson er fyrirliði Þórs í leiknum og Hans Viktor Guðmundsson ber fyrirliðabandið hjá KA.
0. mín
Dómarateymið
Dómari: Bergvin Fannar Gunnarsson AD1: Patrik Freyr Guðmundsson AD2: Eðvarð Þór Eðvarðsson VD: Aðalsteinn Tryggvason
0. mín
Í beinni útsendingu á spiideo
Í beinni á spiideo. Held að það kosti sex evrur inn á streymið og það munu tveir öflugir lýsa leiknum.
0. mín
Breytingarnar á hópunum í vetur
Þór Komnir Ágúst Eðvald Hlynsson frá Vestra Atli Sigurjónsson frá KR Isaac Antanga frá Svíþjóð Sebastian Haugland frá Noregi Bjarni Guðjón Brynjólfsson frá FH á láni Kristófer Máni Sigurðsson frá Hetti Elvar Baldvinsson frá Völsungi Birgir Ómar Hlynsson frá ÍBV (var á láni) Farnir Ibrahima Balde í Vestra Orri Sigurjónsson hættur Clement Bayiha til Kanada Rafael Victor í Grindavík Juan Guardia í Völsung Dagbjartur Búi Davíðsson í KA (var á láni) KA Komnir Danijel Dejan Djuric frá Króatíu Diego Montiel frá Vestra Jeppe Pedersen frá Vestra Samuel Kroon frá Svíþjóð Sveinn Margeir Hauksson frá Víkingi á láni Jakob Héðinn Róbertsson frá Völsungi Breki Hólm Baldursson frá ÍR (var á láni) Ívar Arnbro Þórhallsson frá Völsungi (var á láni) Kári Gautason frá HK (var á láni) Ívar Logi Jóhannesson frá Hetti Þórhallur Ási Aðalsteinsson frá Hetti Dagbjartur Búi Davíðsson frá Þór (var á láni) Bjarki Fannar Helgason frá Hetti/Hugin (var á láni) Árni Veigar Árnason frá Hetti/Hugin (var á láni) Farnir Ívar Örn Árnason í Breiðablik Birnir Snær Ingason í Stjörnuna Bjarni Aðalsteinsson til Danmerkur Marcel Römer til Danmerkur Ingimar Torbjörnsson Stöle til Vals Jonathan Rasheed til Gautaborgar Viðar Örn Kjartansson á Selfoss Andri Fannar Stefánsson í Magna Dagur Ingi Valsson í Keflavík William Tonning til Svíþjóðar
0. mín
Djuric og Atanga byrja!
Byrjunarlið Þórs 1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f) 3. Birgir Ómar Hlynsson 5. Yann Emmanuel Affi 11. Isaac Atanga 15. Kristófer Kristjánsson 16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson 17. Fannar Daði Malmquist Gíslason 19. Ragnar Óli Ragnarsson 22. Ágúst Eðvald Hlynsson 25. Christian Greko Jakobsen 37. Sigfús Fannar Gunnarsson Byrjunarlið KA 13. Steinþór Már Auðunsson (m) 8. Jeppe Pedersen 10. Hallgrímur Mar Steingrímsson 14. Danijel Dejan Djuric 17. Samuel Kroon 23. Markús Máni Pétursson 27. Rodrigo Gomes Mateo 28. Hans Viktor Guðmundsson 29. Jakob Snær Árnason 30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson 77. Breki Hólm Baldursson
0. mín
Leikmannahóparnir klárir
Hægt að sjá þá hér til hliðar. Það vekur athygli að Atli Sigurjónsson er ekki með Þór, hann er að glíma við smávægileg meiðsli. Isaac Atanga er hins vegar mættur til landsins og verður með Þór í dag. U19 strakarnir, Sverrir Páll Ingason, Einar Freyr Halldórsson og Ásbjörn Líndal Arnarsson eru í Portúgal með U19 landsliðinu. Danijel Dejan Djuric er þá mættur í treyju númer 14 og verður með KA í dag.
0. mín
Lokaleikur undirbúningstímabilsins hjá Akureyrarliðunum
Úrslitaleikur Kjarnafæðimótsins í fótbolta fer fram í Boganum í kvöld klukkan 18:00 en um er að ræða síðasta leik liðanna á undirbúningstímabilinu. Eftir þennan leik tekur við leikur í Mjólkurbikarnum og svo 1. umferðin í Bestu deildinni. Knattspyrnudómarafélag Norðurlands hefur veg og vanda af mótinu líkt og undanfarin ár og munu selja inn á leikinn en aðgangseyrir er 1000 kr. og rennur allur ágóði til Kvennaathvarfsins á Akureyri. Þórsarar eru ríkjandi meistarar eftir sigur á KA í úrslitaleik í fyrra. Sjö ár á undan hafði KA unnið mótið. Sömu lið mætast í úrslitum í ár og eru bæði lið í lokaundirbúningi sínum fyrir Bestu deildina sem senn fer að hefjast. Hægt verður að kaupa hamborgara og drykki í Hamri frá klukkan 17:00 og eru allir hvattir til að mæta snemma þar sem búist er við margmenni á leikinn. Þeir sem eiga ekki heimangengt í Bogann geta fylgst með leiknum í beinni útsendingu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.