Fotbolti.net
@fotboltinetViktor Ingi Valgarðsson
Mjólkurbikar karla
JÁVERK-völlurinn
Selfoss
Selfoss
7 - 1
Augnablik
Augnablik
Aron Fannar Birgisson 5'1 - 0Viðar Örn Kjartansson (víti) 13'2 - 0Daði Kolviður Einarsson 31'3 - 0Viðar Örn Kjartansson 41'4 - 0Viðar Örn Kjartansson 45'5 - 05 - 157' Maríus WarénElías Karl Heiðarsson 75'6 - 1Aron Darri Auðunsson 89'7 - 1

SKÝRSLAN: Selfoss áfram og þrenna frá VÖK

Hvað réði úrslitum?

Fyrri hálfleiks frammistaða Selfyssinga var virkilega góð og örugg. 5-0 í hálfleik og Viðar Örn með þrennu. Augnablik mæti þó betur til leiks í seinni en það var aldrei spurning hvort liðið færi með sigurinn og farmiðann í 32-liða úrslit

Bestu leikmenn

1. Viðar Örn Kjartansson

Getum ekki horft framhjá hans leik í dag. Þurfti þó ekki að hafa mikið fyrir sinni þrennu en spilaði feikilega vel og auðveldaði sóknarleik liðsins mjög.

2. Daði Kolviður Einarsson

Fyrirliðinn stóð fyrir sínu í dag. Hægri bakvörður í fyrri en hafsent í seinni. Skoraði gott mark og hélt mönnum á tánum í 90mín. Flott frammistaða.

Atvikið

Það er ekki daglegt brauð að skora þrennu í einum hálfleik en það leit svo sannarlega út fyrir það hjá VÖK í kvöld.

Hvað þýða úrslitin?

Þessi úrslit þýða það að Selfoss fer í Garðabæinn og mætir Stjörnunni í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Bikarganga Augnabliks er lokið þetta árið en næsta umferð fer fram um næstu helgi.

Vondur dagur

Fyrri hálfleiksbrekkan með vindinn í andlitinu sem Augnablik lendir í var alltof brött. Ef Elvar Orri leikmaður Selfoss er illa meiddur eins og virtist í fyrstu væri það ekki gott því hann hefur verið kröftugur í framlínunni með Viðari á undirbúningstímabilinu og eflaust með fínasta hlutverk fyrir komandi tímabil.

Dómarinn - 8

Einhver köll voru frá leikmönnum Augnabliks um að vítadómurinn væri "soft" en ekkert hægt að setja útá dómgæsluna í kuldanum í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.