SKÝRSLAN: Afturelding mikið betra liðið
Hvað réði úrslitum?
Afturelding var mikið betri meirihluta af leiksins. Voru mjög öflugir og á tíma áttu ÍR-ingar ekki breik í þá. En þrátt fyrir að ÍR klóruðu aðeins bakkann var það ekki nóg.
Bestu leikmenn
1. Joacim Holtan
Joacim náði tveimur mörkum og náði næstum stoðsendingunni fyrir þriðja mark Aftureldingar.
2. Óðinn Bjarkason
Óðinn náði marki og stoðsendingu og var mjög kröftugur meðan hann var inná.
Atvikið
Það eru í raun tvö atvik sem standa upp úr fyrir mér, það er stoðsending Birkis og svo þegar honum var skipt útaf en þá stóðu allir aðdáendur Aftureldingar upp og klöppuðu fyrir frábæra frumraun í rauðu treyjunni.
Hvað þýða úrslitin?
Afturelding er komin í 32-liða úrslit og mæta þar Ýmismönnum sem sigruðu KFS hressilega 10-0.
Vondur dagur
Það var nú ekkert einhver sérstakur sem átti vondan dag. Auðvitað mjög svekkjandi fyrir ÍR að ná ekki að skora jöfnunarmark og henda þessu í framlengingu, en þeir mega alveg vera stoltir af sjálfum sér þar sem þeir börðust hrikalega.
Dómarinn - 6
Helgi átti fínan leik, sumar ákvarðanir var hægt að setja spurningamerki á.



