Fotbolti.net
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Meistarakeppni karla
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
4 - 0
Vestri
Vestri
Nikolaj Andreas Hansen 18'1 - 0Nikolaj Andreas Hansen 44'2 - 0Valdimar Þór Ingimundarson 87'3 - 0Óskar Borgþórsson 92'4 - 0
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson

SKÝRSLAN: Betri á öllum sviðum

Hvað réði úrslitum?

Víkingur voru betri en Vestri á nær öllum ef ekki bara öllum sviðum í dag. Leikur sem var aldrei í neinni teljandi hættu og þetta Víkingslið er ógnarsterkt.

Bestu leikmenn

1. Nikolaj Hansen

Skoraði tvö mörk í leiknum og var alltaf ógn inni á teig Vestra. Óheppin að ná ekki þriðja markinu og verður spennandi að fylgjast með Niko Hansen í sumar en hann hefur átt frábært undurbúningstímabil.

2. Valdimar Þór Ingimundarson

Skoraði þriðja markið í dag og átti auk þess flotta spretti í leiknum. Átti frábæran sprett í fyrri hálfleik þar sem hálft Vestra liðið þurfti að brjóta á honum áður en hann loks féll. Verður spennandi að sjá hann í sumar.

Atvikið

Valdimar Þór virðist vera tekinn niður í seinni hálfleik innan teigs af Marvin Darra markverði Vestra. Flestir sem bjuggust við að bent yrði á punktin en svo var ekki og fékk Valdimar Þór gult spjald fyrir dýfu - Valdimar viðurkenndi svo eftir leik að þetta hafi ekki verið snerting og því góður dómur.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar eru Meistarar Meistaranna 2026.

Vondur dagur

Daniel Osafo-Badu sagði sjálfur eftir leik að hans lið væri svolítið á eftir áætlun í undirbúningi fyrir Íslandsmótið í sumar. Erfitt að taka einhverja staka menn út fyrir sviga hérna.

Dómarinn - 9

Dómarateymið komst virkilega vel frá sínu í dag. Negldu allar ákvarðanir að mínu mati. Ekki erfiðasti leikur sem þeir munu dæma í sumar en virkilega vel frá þessum leik komið.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.