Fotbolti.net
Anton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Meistarakeppni kvenna
Kópavogsvöllur
LEIK FRESTAÐ
Breiðablik
Breiðablik
0 - 0
FH
FH
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
FLAUTAÐ AF - Leiknum frestað um sólarhring
Gunnar Freyr hefur tekið ákvörðun um að flauta leikinn af en stefnt er á að spila hann klukkan 14:00 á morgun. Stefnt er að því að byrja á 8. mínútu. Spilað verður á Kópavogsvelli.

Takk fyrir samfylgdina í dag. Heyrumst á morgun.
8. mín
Leikmenn FH bjuggu til snjókarl
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
8. mín
Staðan endurmetin eftir 15 mínútur
Ætla að reyna halda leik áfram en það er bara bæta í ofankomu á Höfuðborgarsvæðinu.
8. mín
Leikurinn flautaður af
Gunnar ræðir við fyrirliðanna og tekur ákvörðun um að fresta leiknum.

Ekki annað hægt.
5. mín
Guðni lætur Gunnar heyra það
Ekki mikill fótbolti í þessu og Guðni lýsir óánægju sinni með að leikurinn hafi verið flautaður á.
1. mín
Hrafnhildur Ása í færi
Fær boltann og á gott skot en Steinunn ver

Undirritaður á ekki til orð yfir þessari ákvörðun að flauta leikinn á, mikil vanvirðing.
1. mín
Fyrir leik
Myndir frá Hafliða Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Frestun um korter
Mynd: RÚV/Skjáskot

Stefnt er að leikurinn hefjist 14:15.
Fyrir leik
Þungar aðstæður á Kópavogsvelli
Mynd: RÚV/Skjáskot

Guðni Eiríksson, þjálfari FH sagði i viðtali við RÚV nú rétt í þessu að það sé eins gott að enginn lekmaður meiðist en það er mikil snjókoma á höfuðborgarsvæðinu. Hann er allt annað en sáttur með aðstæður.

Verið er að meta aðstæður.

   02.04.2026 14:05
Guðni segir aðstæður á Kópavogsvelli óboðlegar: Þetta er bara galið
Fyrir leik
Þessi leikur öskrar á mörk, bæði lið hata ekkert að sækja og á þvi verður engin breyting í dag. Yfir 4,5 mörk er á stuðlinum 2 á Epic, yfir 4 fyrir þá sem eru ekki alveg jafn kaldir er a 1,7
Fyrir leik
Styrktarleikur fyrir unga fótboltastelpu sem berst við krabbamein
Leikurinn er styrktarleikur fyrir Kolfinnu Rán Færseth, fótboltastelpu fæddri árið 2013 sem hefur verið að berjast við krabbamein.

Aðgangseyri er 2000 krónur og rennur allur ágóði af leiknum óskiptur til Kolfinnu. Hægt er að nálgast miða á Stubbi.

„Með leiknum vilja félögin sýna samstöðu og leggja sitt af mörkum til að styðja Kolfinnu Rán og fjölskyldu hennar,“ segir í tilkynningu.

Kolfinna hefur lokið 16 lyfjameðferðum og á tvær eftir. Í desember síðastliðnum fór hún til Svíþjóðar í aðgerð þar sem lærleggurinn var fjarlægður alveg upp í mjaðmakúlu og settur íhlutur í staðinn. Jafnframt þurfti að taka tvo af stóru vöðvunum framan á lærinu og framundan er því mikil endurhæfing bara við að læra að ganga aftur.

Reikningur Kolfinnu:
0702-15-190113
Kt.190113-2210
Fyrir leik
FH
Komnar
Mackenzie Smtih frá Fram
Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir frá Haukum
Nia Christopher frá Bandaríkjunum
Helena Errington frá Bandaríkjunum

Farnar
Thelma Karen Pálmadóttir í Häcken
Arna Eiríksdóttir í Vålerenga
Elísa Lana Sigurjónsdóttir til Kristianstad
Maya Hansen
Macy Elizabeth Enneking
Margrét Brynja Kristinsdóttir í Val
Valgerður Ósk Valsdóttir í Hauka
Harpa Helgadóttir í Fram (lán)
Fyrir leik
Breiðablik
Komnar
Bryndís Arna Níelsdóttir frá Svíþjóð
Taylor Kane frá Bandaríkjunum
Elísa Viðarsdóttir frá Val
Katelyn Duong frá Bandaríkjunum
Mikaela Nótt Pétursdóttir frá FHL
Olga Ingibjörg Einarsdóttir frá Fram (var á láni)

Farnar
Andrea Rut Bjarnadóttir til Anderlecht
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir til Parma
Birta Georgsdóttir til Genoa
Heiða Ragney Viðarsdóttir til Eskilstuna
Heiðdís Lillýardóttir hætt
Jakobína Hjörvarsdóttir alfarið í Stjörnuna (var á láni)
Katherine Devine
Katrín Ásbjörnsdóttir hætt
Kyla Elizabeth Burns
Samantha Smith til Boston Legacy
Sara Svanhildur Jóhannsdóttir alfarið í Fram (var á láni)
Kristín Magdalena Barboza í Fram (var á láni hjá Haukum)
Berglind Björg Þorvaldsdóttir ólétt

Mynd: Breiðablik
Fyrir leik
Skírdagur
Góðan dag kæru lesendur. Verið hjartanlega velkominn í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Kópavogsvelli þar sem leikur meistara meistaranna fer fram.
Ríkjandi Íslandsmeistarar Breiðabliks mæta ríkjandi bikarmeisturum FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.