SKÝRSLAN: Fylkismenn flúðu snjóinn og kláruðu furðulegan fótboltaleik
Hvað réði úrslitum?
Mistök Milan Jelovac á 2 mínútu leiksins! KFA áttu eiginlega aldrei séns eftir það.
Bestu leikmenn
1. Bjarki Steinsen
Bjarki var mjög öflugur að keyra upp kantinn og KFA áttu lítinn séns í hann þegar hann fór afstað. Hann skilaði svo stoðsendingu í seinna marki Fylkis í leiknum.
2. Guðmundur Tyrfingsson
Skoraði seinna mark Fylkis og tryggði þeim sigurinn, hann var flottur á boltanum og KFA voru í veseni með hann.
Atvikið
Þegar Gunnar Oddur flautar leikinn af á Fylkisvelli útaf snjó og leikurinn var færður yfir í skessuna í Hafnafirði. Milan Jelovac gæti líka fengið þetta með mistökin sem hann gerir á 2.mínútu þegar hann missti boltann inn í markið eftir hornspyrnu.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkir fer áfram í 16.liða úrslit á meðan KFA menn eru úr leik í Mjólkurbikarnum í ár.
Vondur dagur
Milan Jelovac fær þetta fyrir þessi dýrkeyptu mistök á 2.mínútu leiksins þegar hann missir boltann inn eftir hornspyrnu frá Arnóri Breka.
Dómarinn - 10
Gunnar var virkilega góður að mínu mati, hann tekur ákvörðun að stöðva leikinn á Tekk vellinum og lætur færa leikinn útaf aðstæður voru ekki góðar. Hann hitti á alla dóma rétt og leikmenn kvörtuðu lítið sem ekkert yfir ákvörðununum hans í dag.


