Fotbolti.net
Guðmundur Jónasson
Mjólkurbikar karla
tekk VÖLLURINN/Skessan
Leikurinn færður inn í Skessuna um miðjan fyrri hálfleik
Fylkir
Fylkir
2 - 0
KFA
KFA
Milan Jelovac (sjm) 2'1 - 0Guðmundur Tyrfingsson 32'2 - 0
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Leik lokið!
2-0 lokatölur
Fylkir vinnur þennan skrýtna leik 2-0! Skýrsla kemur inn innan skamms.
Fylkir
89. mín
InnHelber Josua Catano Catano
ÚtArnar Númi Gíslason
KFA
87. mín
Gult spjald

Patrekur Aron Grétarsson

Fyrir tæklingu á Guðmundi
KFA
84. mín
InnSævar Atli Sigurðarson
ÚtJavier Montserrat Munoz
Fylkir
77. mín
InnMáni Austmann Hilmarsson
ÚtBjarki Steinsen Arnarsson
Fylkir
77. mín
InnTheodór Ingi Óskarsson
ÚtBenedikt Daríus Garðarsson
Fylkir
70. mín
InnGuðfinnur Þór Leósson
ÚtEyþór Aron Wöhler
70. mín
Eggert inná
Sýnist Eggert koma inn fyrir Birki Inga en Eggert ekki inni hjá mér þannig get ekki gert þetta sem skiptingu
Fylkir
70. mín
InnMagnús Daði Ottesen
ÚtNikulás Val Gunnarsson
66. mín
Mjög gott færi!
KFA komnir í virkilega góða stöðu og boltanum er rennt út á Jawed sem er aleinn og skítur beint á Ólaf í marki Fylkis.
64. mín
KFA í skyndisókn, Javier fær boltann og sér að Ólafur Kristófer er framarlega og Javier reynir skot en það er ekki nógu gott og Ólafur nær boltanum
62. mín
Kemur bolti á fjær sem Eyþór Wöhler nær ekki að skalla og boltinn endar svo útaf og Fylkir fá hornspyrnu
57. mín
Bjarki fær boltann upp kantinn frá Benedikt og nær að koma boltanum á Eyþór Wöhler sem á skot í varnarmann
53. mín
Birkir Ingi eitthvað pirraður og tekur niður 2 Fylkismenn en sleppur við gult spjald en fær tiltal frá Gunnari
51. mín
Benedikt Daríus hleypur upp kantinn og kemur með boltann fyrir en boltinn fer yfir allann pakkann
49. mín
KFA vilja fá víti, Javier fellur við í baráttu við Hlyn Sævar en Gunnar Oddur segir nei og held ég sé sammála honum þar
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
KFA sparkar seinni hálfleiknum í gang
45. mín
2-0 í hálfleik
Fylkismenn miklu betri í þessum fyrri hálfleik og spennandi að sjá hvernig liðin koma út í seinni hálfleikinn
44. mín
KFA komast hér í sókn og kemur fyrirgjöf á Patrek Aron sem á skalla framhjá
40. mín
Arnar Númi kemur með fyrirgjöf sem Guðmundur skallar fyrir Benedikt Daríus sem á skot og Fylkir fá hornspyrnu
36. mín
Nenni Þór búinn að vera sprækur og á hér stungu sendingu sem Ólafur Kristófer nær að komast inní
34. mín
KFA að ógna aðeins núna og er að svara þessu marki Fylkis vel
Fylkir
32. mín
2-0!!

Guðmundur Tyrfingsson (stoðsending: Bjarki Steinsen Arnarsson)

Bjarki hleypur upp hægri kanntinn og kemur með góðan bolta fyrir sem Guðmundur Tyrfingsson klárar vel!
30. mín
Arnar Númi með skot fyrir utan teig sem Milan Jelovac ver. Fylkir að sækja mikið og KFA að verjast vel
Fylkir
25. mín
InnArnar Númi Gíslason
ÚtKári Sigfússon
Sýnist Kári vera farinn útaf í stað Arnars Núma
24. mín
Farið af stað aftur
Sýnist Fylkir hafa sett Arnar Núma inná en þarf bara finna út hver fór útaf áður en ég hendi því hér inn
24. mín
Liðin eru mætt!
Liðin eru mætt í Skessuna og eru byrjuð að hita aftur upp
24. mín
Bein útsending frá Skessunni
Livey sýnir það sem eftir lifir leiks beint frá Skessunni og má sjá útsendinguna hér að neðan:

24. mín
Búist við að leikurinn fari af stað aftur kl 15:30
Búist er við því að leikurinn haldi áfram um klukkan 15:30
24. mín
Leikurinn færður í Skessuna!
Leikurinn verður færður inn í Skessuna, hef ekki hugmynd hvenær leikurinn fer af stað aftur
24. mín
Leikurinn mögulega færður!
Leikurinn Mögulega færður í Skessuna
24. mín
Liðin eru farin inn!
Gunnar Oddur er búinn að flauta leikinn af sýnist mér! Allavega einhver pása gerð á leiknum og starfsfólkið er byrjað að moka
21. mín
Leikurinn stöðvaður
Gunnar Oddur kallar menn til sín og starfsmenn hlaupa á meðan inná og moka línurnar
20. mín
Ekki mjög mikið að gerast en Fylkir betri þessar fyrstu 20 mínútur, menn að renna og sjá ekki neinar línur. Það er hinsvegar fólk á fullu að moka hliðar línur og vítateig eins og þau geta.
KFA
10. mín
Gult spjald

Nenni Þór Guðmundsson

Sýndist Nenni Þór fá spjaldið en það var Patrekur Aron sem braut á leikmanninum. Nenni hlýtur að fá spjald fyrir kjaft
8. mín
Mjög erfiðar aðstæður
Mynd: Livey/Skjáskot

Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu og í opinni dagskrá á Livey.
6. mín
Fylkir í fínni sókn en Eyþór Wöhler brýtur klaufalega á sér
3. mín
Þriðja hornspyrna Fylkismanna eftir aðeins 3 mínútur
Fylkir
2. mín
Sjálfsmark!!

Milan Jelovac (sjm)

Sýnist þetta hafa verið sjálfsmark hjá markverðinum Milan Jelovac sem missti boltann inn eftir hornspyrnu frá Arnóri Breka
1. mín
Fylkir fá fyrstu hornspyrnuna eftir 20 sekúndur
1. mín
Þetta er farið af stað
Fylkismenn byrja með boltann
Fyrir leik
Liðin að labba inn á völlinn
Liðin eru að labba inná ennþá mikill snjór á vellinum en leikurinn mun allavega fara af stað!
Fyrir leik
Svona er staðan á vellinum í Árbænum
Mynd: Livey/Skjáskot

Fyrir leik
15 mínútna seinkun sirka
Sýnist leiknum vera seinkað um sirka 15 mínútur en við sjáum til. Liðin voru að klára hita og leikmenn að labba inn í hús
Fyrir leik
Snjór á vellinum
Verið að skafa snjó af vellinum, aðstæður eru ekkert frábærar sést lítið í línur og snjókoma. En það er verið að reyna græja völlinn svo línurnar sjáist betur
Fyrir leik
Breytingar á Byrjunarliði
Fylkir gerir 3 Breytingar á sínu liði frá sigrinum gegn KV
Guðfinnur Þór Leósson, Máni Austmann og Magnús Daði fá sér sæti á bekknum og inn í liðið fyrir þá koma Guðmundur Tyrfingsson, Eyþór Aron Wöhler og Nikulás Val Gunnarsson.

Engar breytingar eru á liði KFA en vekur athygli að þeir eru bara með 4 á bekknum en Eggert Gunnþór Jónsson er einn af þeim samkvæmt KSÍ

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Dómarar
Aðaldómari í dag er Gunnar Oddur Hafliðason
Aðstoðardómarar eru Egill Guðvarður Guðlaugsson og Nour Natan Ninir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leið liðanna í 32 liða úrslitin
Fylkir unnu KV 6-0 á heimavelli í fyrsta leik bikarsins þar sem að Theodór Ingi kom inná og setti þrennu! Verður spennandi að sjá hvort hann fái að byrja leikinn í dag.

KFA unnu Sindra 1-0 á heimavelli með marki frá Simon Maas á 54 mínútu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fylkir - KFA
Góðan dag og verið velkomin í þessa beinu textalýsingu á leik Fylkis og KFA í 32 liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Leikur hefst klukkan 14:00
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Svona eru 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins
Skírdagur (í dag):
14:00 Fylkir - KFA (tekkVöllurinn)

Föstudagurinn langi:
13:00 Afturelding - Ýmir (Malbikstöðin að Varmá)
14:00 Tindastóll - Njarðvík (Sauðárkróksvöllur)

Laugardagur:
12:00 ÍBV - Þróttur R. (Hásteinsvöllur)
14:00 Þór - FH (Boginn)
15:00 Höttur - KA (Rafey-völlurinn)
16:00 Kormákur/Hvöt - Breiðablik (Sauðárkróksvöllur)
17:00 Fram - Víkingur R. (Lambhagavöllurinn)

Páskadagur (Sunnudagur):
15:00 Árbær - Ægir (Domusnovavöllurinn)
15:00 Stjarnan - Selfoss (Miðgarður)

Annar í páskum (Mánudagur):
13:00 Grindavík - Keflavík (BIRTU-völlurinn)
13:00 Fjölnir - HK
13:00 ÍA - Haukar (Akraneshöllin)
14:00 Grótta - Álftanes (Vivaldivöllurinn)
16:00 KR - Valur (Meistaravellir)

Laugardagurinn 11. apríl:
16:00 Vestri - Leiknir R. (Kerecis-völlurinn)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.