Nágrannar í samkeppni um Anderson - Fernandes á óskalista Bayern og PSG - Liverpool ætlar að endurbyggja hópinn
Í BEINNI
Mjólkurbikar karla
Fram
LL 2
4
Víkingur R.
Höttur
0
5
KA
0-1 Danijel Dejan Djuric '24 , víti
0-2 Birgir Baldvinsson '42
0-3 Sveinn Margeir Hauksson '61
0-4 Bjarki Fannar Helgason '80
0-5 Hallgrímur Mar Steingrímsson '90 , víti
04.04.2026  -  15:00
Rafey-völlurinn
Mjólkurbikar karla
Dómari: Hreinn Magnússon
Byrjunarlið:
1. Filip Kramarz (m)
3. Sæbjörn Guðlaugsson ('49)
6. Eyþór Magnússon
8. Kristófer Bjarki Hafþórsson (f)
9. Heiðar Logi Jónsson ('58)
10. Steinþór Hrímnir Aðalsteinsson ('58)
13. Dagur Logi Sigurðsson
15. Kristófer Máni Sigurðsson
16. Hilmir Hólm Gissurarson ('32)
17. Arnar Harri Guðmundsson
19. Helgi Magnús Gunnlaugsson
- Meðalaldur 20 ár

Varamenn:
12. Brynjar Smári Ísleifsson (m)
2. Sergi Valls Buiza ('32)
7. Pablo Ruiz Gea ('49)
11. Eyþór Atli Árnason ('58)
21. Anton Elís Jónsson
23. Bjarki Nóel Brynjarsson ('58)
25. Brynjar Felix Halldórsson
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Bruno Fonte Martins (Þ)
Todor Plamenov Hristov (Þ)
Ármann Davíðsson (Þ)
David Kucera

Gul spjöld:
Eyþór Magnússon ('17)
Arnar Harri Guðmundsson ('64)

Rauð spjöld:
@Hilmarjokull Hilmar Jökull Stefánsson
Skýrslan: Norðanmenn með kjarnafæðisslátrun fyrir austan
Hvað réði úrslitum?
KA voru meira og minna með boltan allan leikinn en þrátt fyrir það þá náði Höttur að halda aftur af gestunum vel framan af fyrri hálfleik. Þegar KA komust yfir með marki frá Danijel Djuric úr víti þá var í raun aldrei spurning um hvort liðið væri á leið áfram. Gæði KA fram á við voru sýnileg og lið sem getur sett Svein Margeir og Hallgrím Mar inn á í 2-0 ætti ekki að eiga í vandræðum með lið úr 2. deildinni.
Bestu leikmenn
1. Birgir Baldvinsson (KA)
Bakvörðurinn knái skoraði, lagði upp og fékk gult spjald fyrir að stöðva álitlega skyndisókn Hattar. Hann sá til þess að Höttur sótti meira upp vinstri kantinn, hvar hann var ekki, og mætti síðan galvaskur í sóknina þar sem hann skilaði líka sínu.
2. Diego Montiel (KA)
Diego spilaði glimrandi vel á vinstri kantinum og fiskaði vítið sem fyrsta markið kom úr. Hann fór trekk í trekk framhjá varnarmönnum Hattar og spilaði almennt mjög vel.
Atvikið
Brotið í fyrra vítinu og gula spjaldið á Arnar Harra. Eins og undirritaður kom aðeins inn á þá var varnarleikurinn ekki af dýrari gerðinni þegar Dagur Logi braut af sér og menn verða að passa sig þegar þeir mæta liðum sem eru hærra skrifuð að gefa ekki ódýr víti og mörk. Að því sögðu þá var gula spjaldið á Arnar Harra algjört kjaftæði og hreint ótrúlegt að þar hafi yfirhöfuð verið dæmt brot á hann. Fyrr má nú rota en dauðrota.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að KA eru komnir áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla árið 2026 en Höttur hefur lokið leik í þeirri keppni og getur sett einbeitinguna á 2. deildina og Fótbolti.net bikarinn.
Vondur dagur
Kannski ósanngjarnt að pikka einn út úr 0-5 tapi en Dagur Logi gerðist sekur um barnalegan varnarleik þegar hann sparkaði aftan í Montiel eftir að sá síðarnefndi komst framhjá Degi inn í teig. Vont að fyrsta mark KA hafi komið úr víti sem var óþarfa brot.
Dómarinn - 4
Þar sem 4 þýðir lélegur þá ætla ég að leyfa Hreini dómara að slefa þangað. Skrýtin lína og nokkrir vafasamir dómar þótt þeir hafi ekki haft áhrif á lokaúrslit leiksins. Svo er undirritaður ekki ennþá seldur á seinni víti KA. Betur má ef duga skal.
Byrjunarlið:
12. Ívar Arnbro Þórhallsson (m)
2. Birgir Baldvinsson (f)
3. Kári Gautason ('57)
7. Rodrigo Gomes Mateo ('57)
8. Jeppe Pedersen
14. Danijel Dejan Djuric
17. Samuel Karl Kroon
20. Diego Montiel
23. Markús Máni Pétursson
29. Jakob Snær Árnason ('46)
44. Valdimar Logi Sævarsson
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
25. Jóhann Mikael Ingólfsson (m)
9. Sveinn Margeir Hauksson ('46)
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson ('57)
18. Jakob Héðinn Róbertsson
26. Bjarki Fannar Helgason
30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
77. Ívar Logi Jóhannsson
88. Snorri Kristinsson ('57)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Hallgrímur Jónasson (Þ)
Egill Daði Angantýsson (Þ)
Nicklas Cleemann Rulle (Þ)
Halldór Hermann Jónsson
Tryggvi Björnsson
Aðalbjörn Hannesson

Gul spjöld:
Birgir Baldvinsson ('85)

Rauð spjöld: