Fotbolti.net
Viktor Ingi Valgarðsson
Mjólkurbikar karla
Miðgarður
Stjarnan
Stjarnan
2 - 1
Selfoss
Selfoss
Emil Atlason 47'1 - 0Emil Atlason 65'2 - 02 - 185' Einar Bjarki Einarsson
Dómari: Twana Khalid Ahmed

SKÝRSLAN: Stjarnan áfram í 16-liða úrslit

Hvað réði úrslitum?

Sterk innkoma í seinni hálfleikinn heimamanna skilar þeim sigri hér í dag. Virkilega góður leikur sem fór hér fram í Miðgarði á Páskadegi.

Bestu leikmenn

1. Emil Atlason

Frábær mörk og ef einhver hætta var þá var hann miðpunktur hennar í dag. Tók smá tíma að tengja við Birni Snæ en það kom snemma í seinni hálfleiknum

2. Arnór Elí Kjartansson

verð að gefa honum þetta annað sæti. Stóð sig virkilega vel og hefði auðveldlega getað farið verr ef ekki fyrir mikilvægar vörslur í dag.

Atvikið

Hornspyrna Selfoss sem þeir nýttu í lokinn með geggjuðu marki Einars Bjarka hefði getað hleypt leiknum í einhverja þvælu en Stjarnan gerði vel að sigla sigrinum heim

Hvað þýða úrslitin?

Bikarkeppni Selfoss er lokið þetta tímabilið en Stjarnan er komið í 16-liða úrslit.
Síðustu leikir 32-liða klárast á morgun en framundan hjá Stjörnunni er byrjun Bestu Deildarinnar sem hefst með leik gegn KA á Akureyri.

Vondur dagur

Ekkert vont við þennan Páskadag!
Kannski að góða veðrið úti hefði verið skemmtilegt til að spila í en Miðgarðurinn skilaði skemmtilegum leik.

Dómarinn - 6

Smá basl að halda leiknum í gangi en annars flott dómgæsla
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.