SKÝRSLAN: Fyrsti sigur Fram á Lambhagavellinum í ár
Hvað réði úrslitum?
Fram voru miklu betra liðið flestallan leikinn. Keflavík átti nokkra góða kafla en allt kom fyrir ekki. Þeir náðu einu marki þegar það fór að líða undir lok leiks en fengu svo mark á sig í blálokin sem gulltryggði sigur Fram.
Bestu leikmenn
1. Vuk Oskar Dimitrijevic
Stórleikur hjá Vuk í dag, tvö mörk sem voru ekki af verri gerðinni.
2. Freyr Sigurðsson
Freyr stóð sig frábærlega og var mjög hættulegur flestsallan leikinn
Atvikið
Hægt að setja það á markið í lokin hjá Bjarna Pál sem tryggði sigurinn algjörlega fyrir Fram.
Hvað þýða úrslitin?
Fram situr eins og er í 3. sæti deildarinnar eftir tvær umferðir og eiga leik norður á Akureyri gegn Þór. Keflavík situr hins vegar í neðsta sæti deildarinnar með 0 stig og eiga leik gegn Breiðablik næst.
Vondur dagur
Varnarleikur Keflavíkur var ekki upp á marga fiska, það voru nokkur mistök hjá þeim sem leiddu næstum að mörkum.
Dómarinn - 7
Villi flottur í þessum leik. Ekkert mikið hægt að setja út á dómgæsluna




