Leik lokið!
Blikar hirða stigin þrjú!
95. mín
InnArnar Bjarki Gunnleifsson
ÚtÁgúst Orri Þorsteinsson
95. mín
Gísli Eyjólfs í frábæru færi!
Fær skoppandi bolta í teignum, ætlar sér að setja boltann framhjá Antoni Ara en hann nær hendi á boltann og varnarmenn Blika hreinsa frá!
90. mín
Sex mínútur í uppbót!
Fáum við dramatík?
90. mín
Rautt spjald
Jón Guðni Fjóluson
90. mín
Rautt á báða aðstoðarþjálfarana!
Dean Edward Martin
Ekki veit ég fyrir hvað, væntanlega mótmæli.89. mín
Skagamenn fá aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu. Jón Gísli kemur með slakan bolta sem er skallaður frá af fyrsta varnarmanni.
87. mín
Gult spjald
Rafael Máni Þrastarson
Rafael Máni fer í bókina eftir að hafa farið utan í Jónatan Guðna á sprettinum, Jónatan liggur eftir.84. mín
1587 manns á vellinum, toppmæting!
81. mín
InnAnton Logi Lúðvíksson
ÚtAndri Rafn Yeoman
Anton snýr aftur inn á völlinn eftir að hafa verið frá vegna meiðsla síðustu mánuði.
81. mín
InnKristinn Steindórsson
ÚtHöskuldur Gunnlaugsson
80. mín
InnRafael Máni Þrastarson
ÚtMarkús Páll Ellertsson
Skynsamlegt.
78. mín
Markús leikur sér að eldinum
Nýbúinn að fá gult spjald og brýtur af sér á miðjum velli. Blikar kalla eftir rauða spjaldinu en hann sleppur með tiltal. Að mínu mati rétt að hlífa Markúsi.
76. mín
SLÁIN!
Þvílíkt skot!
Haukur Andri lætur vaða rétt fyrir utan teig og boltinn í þverslána, þarna munaði litlu.
Haukur Andri lætur vaða rétt fyrir utan teig og boltinn í þverslána, þarna munaði litlu.
74. mín
Markús Páll fær gult fyrir mótmæli.
Skagamenn vilja vítaspyrnu!
Markús Páll Ellertsson
Markús Páll með þrumuskot að marki, en boltinn í Höskuld og Skagamenn kalla eftir vítaspyrnu. Ómögulegt að skera úr um það þrátt fyrir endursýningu en vissulega vítalykt af þessu!Markús Páll fær gult fyrir mótmæli.
73. mín
Viktor Jóns með hnitmiðaðan skalla sem Ásgeir Helgi kemst fyrir.
73. mín
Xg moli í boði Opta.
Breiðablik - ÍA
1.47 Xg - 1.21 Xg
Breiðablik - ÍA
1.47 Xg - 1.21 Xg
71. mín
Gult spjald
Ágúst Orri Þorsteinsson
Ágúst Orri fer nú í bókina fyrir að hafa gerst brotlegur í pressunni.67. mín
InnJónatan Guðni Arnarsson
ÚtKristófer Ingi Kristinsson
67. mín
InnArnór Gauti Jónsson
ÚtViktor Karl Einarsson
65. mín
Viktor Karl með þrumuskot sem fer framhjá marki Skagamanna.
64. mín
InnGísli Laxdal Unnarsson
ÚtÓmar Björn Stefánsson
64. mín
InnGabríel Snær Gunnarsson
ÚtGuðmundur Þórarinsson
Gabríel var að skrifa undir hjá Elfsborg í gær og fer hann út til Svíþjóðar síðar í sumar. Hann fer út á vinstri kant og Haukur Andri kemur inn á miðju.
63. mín
Gult spjald
Jón Gísli Eyland Gíslason
Jón Gísli Eyland fer í bókina góðu.54. mín
Viktor Jónsson með tilraun sem fer af varnarmanni og yfir mark Breiðabliks.
51. mín
Gísli Eyjólfs!!!
Gísli sleppur í gegn, klobbar Ásgeir Helga og tekur skotið en Anton Ari ver frábærlega. Gísli hársbreidd frá því að skora gegn gömlu félögunum.
51. mín

Fundað með fyrirliðum í hálfleik

50. mín
Sakaði Lárus um að kalla sig tussu
Það varð allt vitlaust undir lok fyrri hálfleiks. Valgeir Valgeirsson og Lárus Orri létu einhver orð falla við hvorn annan og Valgeir sakaði Lárus um að kalla sig tussu. Við það skarst Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Blika, inn í leikinn og lét Lárus heyra það.
Báðir þjálfarar fengu gult spjald að launum, sem og Rúnar Már Sigurjónsson, sem er meiddur, og er í liðsstjórn ÍA.
Hafliði Breiðfjörð er á vellinum og fangaði myndir af stympingunum.

Báðir þjálfarar fengu gult spjald að launum, sem og Rúnar Már Sigurjónsson, sem er meiddur, og er í liðsstjórn ÍA.
Hafliði Breiðfjörð er á vellinum og fangaði myndir af stympingunum.

47. mín
Blikar fá hornspyrnu, en Árni Marinó grípur boltann.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
45. mín
-auglýsing

Hálfleikur og þá er við hæfi að kynna sér framboð Framsóknar í Kópavogi en oddviti listans, Orri Hlöðversson, var á sínum tíma formaður bæði aðalstjórnar Breiðabliks og knattspyrnudeildar félagsins. Hér er áhugaverð grein um uppbyggingu íþróttamannvirkja í Kópavogi.
Framsókn

Jóhann Ingi búinn að sjá nóg og flautar til hálfleiks skömmu eftir stympingarnar. Breiðablik leiðir eftir mark Höskuldar Gunnlaugssonar úr vítaspyrnu.
45. mín
Rúnar Már, sem er meiddur og er á bekk Skagamanna, lætur einnig í sér heyra og fær gult spjald að launum.

Gult spjald
Rúnar Már S Sigurjónsson
+5Rúnar Már, sem er meiddur og er á bekk Skagamanna, lætur einnig í sér heyra og fær gult spjald að launum.

45. mín

Gult spjald
Ólafur Ingi Skúlason
+4
45. mín
Blikar fá ekki dæmda augljósa hendi. Lárus Orri, þjálfari Skagamanna, og Valgeir Valgeirs góla eitthvað á hvorn annan. Þá skerst Ólafur Ingi Skúlason inn í leikinn og lætur Lárus aðeins heyra það. Báðir þjálfararnir fara í svörtu bókina.

Hiti!
Lárus Orri Sigurðsson
+4Blikar fá ekki dæmda augljósa hendi. Lárus Orri, þjálfari Skagamanna, og Valgeir Valgeirs góla eitthvað á hvorn annan. Þá skerst Ólafur Ingi Skúlason inn í leikinn og lætur Lárus aðeins heyra það. Báðir þjálfararnir fara í svörtu bókina.

45. mín
Fjórum mínútum bætt við.
45. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað
Skagamenn fá aukaspyrnu rétt fyrir utan D-boga. Gummi Tóta lætur vaða en boltinn beint í varnarvegg Breiðabliks.
44. mín

Myndaveisla

40. mín
Skagamenn hársbreidd frá því að jafna!
Johannes Vall með fyrirgjöf á Ómar sem fellur við en nær einhvern veginn skoti sem fer í stöngina. Þaðan fer boltinn út í teiginn en Blikar hreinsa.
Þá kemur fyrirgjöf frá hinum kantinum og Markús Páll á skalla sem fer rétt yfir mark Blika.
Þá kemur fyrirgjöf frá hinum kantinum og Markús Páll á skalla sem fer rétt yfir mark Blika.
36. mín
Fyrirliðinn brýtur ísinn!
Höskuldur Gunnlaugsson
Árni Marinó í boltanum en það dugði ekki til!35. mín
Blikar fá vítaspyrnu!
Boltinn í hendina á Viktori Jónssyni í teignum eftir hornspyrnu Blika. Hárréttur dómur við fyrstu sýn.
**
Eftir að hafa séð endursýningu á atvikinu þá fer boiltinn í lærið á Viktori og þaðan í hendina á honum, samkvæmt reglubókinni er það ekki vítaspyrna.
**
Eftir að hafa séð endursýningu á atvikinu þá fer boiltinn í lærið á Viktori og þaðan í hendina á honum, samkvæmt reglubókinni er það ekki vítaspyrna.
35. mín
Ágúst Orri leikur listir sínar og sækir hornspyrnu.
32. mín
Blikar fá hornspyrnu, Óli Valur tekur. Boltinn yfir pakkann og aftur fyrir endalínu.
27. mín
Gummi Tóta liggur niðri í teig Skagamanna og fær aðhlynningu. Á meðan nýta bæði lið sér gluggann og funda með þjálfurunum.
25. mín

Gult spjald
Johannes Björn Vall
Vall fer í harkalega tæklingu á Valla og fær réttilega gult spjald.
21. mín
Gísli Eyjólfs með gott skot sem Anton Ari ver í hornspyrnu. Ekkert kemur úr hornspyrnu Skagamanna.
20. mín
Lárus Orri að vinna með áhugaverða múnderingu. Svartir Nike Air Max skór, víðar Carrhartt buxur, svört hettupeysa með gylltu letri á og svört húfa við, leyfir lokkunum aðeins að dansa. Dean Martin er að vana í stuttbuxum.

19. mín
Markús með rangstöðumark
Markús Páll fær boltann óvænt í teig Blika og klárar vel en er réttilega flaggaður rangstæður.
17. mín
Óli Valur með glæsilegan sprett, kominn í góða stöðu en tekur afleitt skot sem fer hátt yfir mark gestanna.
14. mín
Blikar keyra hratt upp, Ágúst Orri með góða sendingu á Óla Val sem tekur þunga snertingu og Skagamenn bægja hættunni frá.
11. mín
Blikar halda betur í boltann en Skagamenn þéttir. Hægara sagt en gert að brjóta þá á bak aftur.
8. mín
Nú fær Breiðablik hornspyrnu. Óli Valur tekur, Ívar Örn með skottilraun sem fer langt framhjá marki Skagamanna.
5. mín
Skagamenn fá fyrstu hornspyrnu leiksins. Gummi Tóta tekur en Ívar Örn skallar frá.
3. mín
Uppstilling liðanna
Breiðablik; 4-3-3
Anton Ari (m)
Valgeir - Ásgeir Helgi - Ívar Örn - Davíð Ingvars
Viktor Karl - Höskuldur (f) - Andri Rafn
Ágúst Orri - Kristófer Ingi - Óli Valur
ÍA; 4-4-2
Markús Páll - Viktor Jóns (f)
Haukur - Gummi Tóta - Gísli Eyjólfs - Ómar Björn
Vall - Böðvar - Baldvin - Jón Gísli
Árni Marinó (m)

1. mín
Þetta er farið af stað!
Blikar byrja gegn sólu og leika í átt að Fífunni.
Fyrir leik
Leikmenn ganga til vallar og uppskera mikið lófatak frá áhorfendum. Biðin styttist!
Fyrir leik
Breiðablik vs ÍA
— Kristalkúlan (@kristalkulan) April 17, 2026
Afar erfiður leikur að spá í fyrir fram en eitthvað segir mér að bæði lið skori hér í dag og það fleiri en 1. Því tökum við að bæði lið skora 2 mörk eða fleiri í blíðunni á Kópavogsvelli og fáum 3.15 í stuðul á það hjá Epic.https://t.co/OGHcG0eY6R
Fyrir leik
Hálftími í leik, Óli Skúla búinn að fara yfir byrjunarliðið með stuðningsmönnum og fólk farið að velja sér sæti í stúkunni.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi - Ein breyting hjá hvoru liði
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, gerir eina breytingu á liði sínu frá 1-1 jafntefli gegn Víkingi fyrir viku síðan. Þá stilltu Blikar upp í þriggja manna hafsentalínu en nú stilla þeir upp í fjögurra manna vörn með Ásgeir Helga og Ívar Örn í hafsentum.
Viktor Örn Margeirsson tekur sér sæti á bekknum og í hans stað kemur Viktor Karl Einarsson.
Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, gerir sömuleiðis eina breytingu á byrjunarliði sínu frá 3-3 jafntefli gegn Fram í fyrstu umferð.
Inn í liðið kemur Ómar Björn Stefánsson á kostnað Gísla Laxdal Unnarssonar sem tekur sér sæti á bekknum.
Þeir Rúnar Már Sigurjónsson og Steinar Þorsteinsson eru báðir utan hóps vegna smávægilegra meiðsla. Þeir voru jafnframt utan hóps gegn Fram síðastliðinn sunnudag.

Skagamenn að endurheimta lykilmenn
Steinar Þorsteinsson og Rúnar Már Sigurjónsson voru utan hóps gegn Fram í síðustu umferð. Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, sagði í viðtali eftir leik þá hafa verið að glíma við smávægileg meiðsli. Spurning hvort að þeir geta verið til taks í dag.
„Rúnar rétt missir af þessum leik, ég á alveg eins von á honum í næsta leik. Við verðum að sjá hvernig vikan verður.“
Þá styttist í endurkomu norska hafsentsins Erik Tobias Sandberg. Hann hefur verið frá í átta mánuði vegna taugavanda í annarri hendinni. Lárus Orri bjóst við að þrjár til fjórar vikur væru í þann norska.

Föstudagsfjör - Heil umferð í kvöld
Leikirnir eru að sjálfsögðu allir í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.
16:30 Valur-ÍBV (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:30 KR-Þór (Meistaravellir)
17:30 KA-Víkingur R. (Greifavöllurinn)
18:00 Fram-Keflavík (Lambhagavöllurinn)
18:00 Breiðablik-ÍA (Kópavogsvöllur)
20:00 Stjarnan-FH (Samsungvöllurinn)

Mikið af mörkum og mikill hiti
Nýjasti brekkusöngvari þjóðarinnar, Ágúst Þór Brynjarsson, spáir fjörugum leik á Kópavogsvelli.
Breiðablik 3 - 3 ÍA
Í minningunni er einhvern veginn alltaf fjör og læti þegar Skagamenn mæta í Smárann, mikið af mörkum og sennilega einhver hiti, eina sem ég veit er að Davíð Ingvars er að fara setja hann í þessum leik.

Gísli snýr aftur á Kópavogsvöll
Gísli Eyjólfsson snýr aftur á Kópavogsvöll í kvöld eftir rúmlega tveggja ára fjarveru eftir veru í Svíþjóð þar sem hann var keyptur til Halmstads frá Breiðabliki.
Gísli snýr á völlinn sem leikmaður ÍA en hann samdi á Skaganum fyrir áramót. Það hefur verið mikið rætt og ritað um að Breiðablik hafi ekki lagt kapp á að fá Gísla aftur heim.
„Mér líst vel á að fá Gísla á Kópavogsvöll. Við þurfum að leggja allt kapp á að stoppa hann, náttúrulega ótrúlega góður leikmaður og við þekkjum hann vel. Við þurfum að stoppa þá alla, en það verður gaman að mæta Gísla," sagði Anton Ari Einarsson, markvörður Breiðabliks í viðtali eftir leikinn gegn Víkingi í fyrstu umferð.

Markús Páll fór á kostum gegn uppeldisfélaginu
Markús Páll Ellertsson stimplaði sig rækilega inn í Bestu deildina og skoraði tvö mörk í 3-3 jafntefli ÍA gegn Fram í Úlfarsárdalnum síðastliðinn sunnudag. Viktor Jónsson kom sér jafnframt á blað fyrir Skagamenn.

Fyrir leik
Allt jafnt í stórleiknum í Víkinni
Breiðablik heimsótti Víkinga í opnunarleik Bestu deildarinnar fyrir sléttri viku síðan. Kristófer Ingi Kristinsson skoraði mark Breiðabliks snemma leiks. Gylfi Þór Sigurðsson jafnaði metin um miðbik síðari hálfleiks. Fleiri urðu mörkin ekki og enduðu leikar 1-1.

Fyrir leik
Kópavogsvöllur heilsar!
Heilir og sælir lesendur góðir, verið velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Kópavogsvelli þar sem Breiðablik mætir ÍA í 2. umferð Bestu deildarinnar.

föstudagur 17. apríl
16:30 Valur-ÍBV (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:30 KR-Þór (Meistaravellir)
17:30 KA-Víkingur R. (Greifavöllurinn)
18:00 Fram-Keflavík (Lambhagavöllurinn)
18:00 Breiðablik-ÍA (Kópavogsvöllur)
20:00 Stjarnan-FH (Samsungvöllurinn)

föstudagur 17. apríl
16:30 Valur-ÍBV (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:30 KR-Þór (Meistaravellir)
17:30 KA-Víkingur R. (Greifavöllurinn)
18:00 Fram-Keflavík (Lambhagavöllurinn)
18:00 Breiðablik-ÍA (Kópavogsvöllur)
20:00 Stjarnan-FH (Samsungvöllurinn)

Viðtöl og skýrsla væntanleg.