Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
Besta deildin
Stjarnan
LL 3
2
FH
Besta deildin
Fram
LL 3
1
Keflavík
Besta deildin
Breiðablik
LL 1
0
ÍA
Besta deildin
KR
LL 5
2
Þór
Besta deildin
KA
LL 0
2
Víkingur R.
Breiðablik
1
0
ÍA
Höskuldur Gunnlaugsson '36 , víti 1-0
Dean Martin '90
Jón Guðni Fjóluson '90
17.04.2026  -  18:00
Kópavogsvöllur
Besta deildin
Aðstæður: Sól og blíða, toppaðstæður!
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Áhorfendur: 1587
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Ásgeir Helgi Orrason
5. Ívar Örn Árnason
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f) ('81)
8. Viktor Karl Einarsson ('67)
9. Óli Valur Ómarsson
15. Ágúst Orri Þorsteinsson ('95)
17. Valgeir Valgeirsson
18. Davíð Ingvarsson
23. Kristófer Ingi Kristinsson ('67)
30. Andri Rafn Yeoman ('81)
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
31. Jón Sölvi Símonarson (m)
6. Arnór Gauti Jónsson ('67)
10. Kristinn Steindórsson ('81)
13. Anton Logi Lúðvíksson ('81)
21. Viktor Örn Margeirsson
22. Jónatan Guðni Arnarsson ('67)
29. Gabríel Snær Hallsson
32. Kristinn Narfi Björgvinsson
33. Arnar Bjarki Gunnleifsson ('95)

Liðsstjórn:
Ólafur Ingi Skúlason (Þ)
Særún Jónsdóttir
Haraldur Björnsson
Helgi Jónas Guðfinnsson
Brynjar Dagur Sighvatsson
Dagur Elís Gíslason
Emil Pálsson
Jón Guðni Fjóluson

Gul spjöld:
Ólafur Ingi Skúlason ('45)
Ágúst Orri Þorsteinsson ('71)

Rauð spjöld:
Jón Guðni Fjóluson ('90)
@karisnorra Kári Snorrason
Skýrslan: Eina skot Blika á markið dugði til
Hvað réði úrslitum?
Hvernig Skagamenn skoruðu ekki mark er mér hulin ráðgáta. Skot í slá, stöng, risastórar vörslur frá Antoni Ara og fengu ekki vítaspyrnu þó að boltinn hafi farið í hendina á Höskuldi Gunnlaugssyni. Blikar ollu mér vonbrigðum. Þeir voru þokkalegir í fyrri hálfleik en ekki meira en það. Í seinni hálfleik voru Skagamenn með yfirhöndina en nýttu færin illa. Eina skot Blika á markið dugði til í dag.
Bestu leikmenn
1. Anton Ari Einarsson
Átti tvær stórar vörslur þar sem hann varði vel frá sínum gamla samherja, Gísla Eyjólfssyni.
2. Ívar Örn Árnason
Ekkert nafn sem öskrar á mig en Ívar á hrós skilið fyrir frammistöðu sína í dag.
Atvikið
Það ætlaði allt um koll að keyra undir lok fyrri hálfleiks. Valgeir Valgeirsson og Lárus Orri létu einhver orð falla við hvorn annan og samkvæmt sjónarvotti sakaði Valgeir Lárus Orra um að kalla sig tussu. „Kallaðiru mig fokking tussu?“ Heyrðist uppi í stúku. Við það fauk í Ólaf Inga Skúlason, þjálfara Blika, sem skarst í leikinn og lét Lárus heyra það. Þá fóru þó nokkur orð á milli manna og enduðu þjálfararnir með að fá báðir gult spjald. Í hálfleik voru þjálfararnir tveir og fyrirliðarnir báðir teknir á sitthvoran fundinn með Jóhanni Inga dómara.
Hvað þýða úrslitin?
Blikar sóttu sinn fyrsta sigur og eru með fjögur stig eftir fyrstu tvær umferðirnar. Skagamenn eru án sigurs, með eitt stig eftir fyrstu tvo leikina.
Vondur dagur
Gísli Eyjólfsson fór illa með færi sín og veit það best sjálfur. Hann var langt frá því að vera slakur í leiknum, þrátt fyrir að færanýtingin hafi verið það.
Dómarinn - 3
Vítadómur Breiðabliks er einfaldlega rangur. Boltinn fer í lærið á Viktori Jónssyni og þaðan í hendina. Samkvæmt reglubókinni er það ekki vítaspyrna. Það sem svíður kannski mest fyrir Skagamenn er að fá ekki vítaspyrnu er boltinn fór í hendina á Höskuldi Gunnlaugssyni í teig Blika. Mistök sem reyndist Skagamönnum dýr. Þá fannst mér línan jafnframt skrítin heilt yfir. Annars hef ég lítið út að setja hvernig dómararnir höndluðu hitann í boðvanginum enda ófær til að dæma um það þar sem ég heyrði lítið uppi í blaðamannaboxi. Fyrir ítarlegri greiningu á frammistöðu dómarakvartettsins í dag þá mæli ég með viðtalinu við Lárus Orra sem birtist eftir leik.
Byrjunarlið:
1. Árni Marinó Einarsson (m)
3. Johannes Vall
5. Baldvin Þór Berndsen
7. Haukur Andri Haraldsson
8. Guðmundur Þórarinsson ('64)
9. Viktor Jónsson (f)
11. Gísli Eyjólfsson
21. Böðvar Böðvarsson
22. Ómar Björn Stefánsson ('64)
25. Markús Páll Ellertsson ('80)
66. Jón Gísli Eyland Gíslason
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Logi Mar Hjaltested (m)
15. Gabríel Snær Gunnarsson ('64)
17. Gísli Laxdal Unnarsson ('64)
18. Rafael Máni Þrastarson ('80)
20. Ísak Máni Guðjónsson
27. Brynjar Óðinn Atlason
28. Daníel Michal Grzegorzsson
32. Jón Breki Guðmundsson
87. Styrmir Jóhann Ellertsson

Liðsstjórn:
Lárus Orri Sigurðsson (Þ)
Aron Ýmir Pétursson
Teitur Pétursson
Dean Martin
Dino Hodzic
Mario Majic
Rúnar Már S Sigurjónsson
Salvar Georgsson

Gul spjöld:
Johannes Vall ('25)
Rúnar Már S Sigurjónsson ('45)
Lárus Orri Sigurðsson ('45)
Jón Gísli Eyland Gíslason ('63)
Markús Páll Ellertsson ('74)
Rafael Máni Þrastarson ('87)

Rauð spjöld:
Dean Martin ('90)