Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Besta karla
Víkingur R.
46' 1
1
Stjarnan
Besta karla
Valur
50' 3
0
FH
Besta karla
Þór
LL 1
0
Fram
Þór
1
0
Fram
Sebastian Heimvik Haugland '49 1-0
23.04.2026  -  17:00
VÍS völlurinn
Besta karla
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f)
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
5. Yann Emmanuel Affi
7. Atli Sigurjónsson ('63)
8. Einar Freyr Halldórsson ('89)
9. Sebastian Heimvik Haugland ('63)
11. Isaac Atanga ('63)
15. Kristófer Kristjánsson
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
18. Sverrir Páll Ingason
25. Christian Greko Jakobsen ('81)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
28. Franko Lalic (m)
4. Hermann Helgi Rúnarsson
10. Aron Ingi Magnússon ('81)
17. Fannar Daði Malmquist Gíslason
22. Ágúst Eðvald Hlynsson ('63)
23. Ingimar Arnar Kristjánsson ('63)
30. Peter Ingi Helgason
31. Kristófer Kató Friðriksson ('89)
37. Sigfús Fannar Gunnarsson ('63)

Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Arnar Geir Halldórsson
Halldór Mar Einarsson
Stefán Ingi Jóhannsson
Eiður Benedikt Eiríksson

Gul spjöld:
Isaac Atanga ('61)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þórsarar fara með sigur af hólmi Stórsókn frá Fram á löngum köflum en ekkert kom markið hjá gestunum. Fyrsti heimasigur Þórs í efstu deild frá 2014 staðreynd!
95. mín
Rangstaða dæmd á Fram. Mínúta eftir.
94. mín
Fram á horn.

Vuk skallar framhjá.
92. mín
Framarar eiga skot eftir hornið en Þórsarar hreinsa.
92. mín
Sigurjón í dauðafæri Hittir boltann ekki frábærlega og Aron ver í horn.
91. mín
Fimm mínútur í uppbót
90. mín Gult spjald: Ægir Jarl Jónasson (Fram)
Brýtur á Ingimar á vallarhelmingi Fram.
90. mín
Framarar að vinna Xg bardagann nokkuð sannfærandi.

Þór - 0.20 Xg - 1.77 Xg - Fram
89. mín
Inn:Kristófer Kató Friðriksson (Þór ) Út:Einar Freyr Halldórsson (Þór )
88. mín
Aron Birkir rís hæst í teignum og handsamar boltann.

Sigurjón reynir að sparka í boltann en fer í Aron sem þarf aðhlynningu. Þórsarar vilja spjald.

Frábærlegs gert hjá Aroni að handsama þennan bolta.
86. mín
Fred með fyrirgjöf sem Kennie kemst í en skallar yfir mark Þórsara.
85. mín
Framarar liggja á heimamönnum. Þórsarar gert vel með því að vinna aukaspyrnur og drepa með því sóknir gestanna.
83. mín
Aron Birkir! Sýndist það vera Vuk sem átti hörkuskot en Aron Birkir varði frábærlega! Vel gert hjá fyrirliðanum.

Eftir að hafa séð þetta aftur þá var þetta Fred sem átti skotið og varslan var mögnuð!
82. mín
Kristófer Konráðs með skot úr D-boganum í varnarmann.
81. mín
Inn:Aron Ingi Magnússon (Þór ) Út:Christian Greko Jakobsen (Þór )
80. mín
Kennie aftur með skot sem fer í varnarmann, Þórsarar ná ekki að sækja hratt.

Framarar með marga framarlega núna.
79. mín
Inn:Kristófer Konráðsson (Fram) Út:Kyle McLagan (Fram)
78. mín
Kennie með skot fyrir utan teig sem fer í varnarmann.
77. mín
Flott skyndisókn hjá Þór eftir aukaspyrnu Fram og Einar á frábær sendingu sem Ingimar nær ekki að taka við inn á teignum. Þarna var séns fyrir Þór.
74. mín
Hættulegur bolti frá Fred sem Aron Birkir kemur aftur fyrir.

Þórsarar ná svo að hreinsa eftir þriðja hornið.
74. mín
Fram fær hornspyrnu.

Og svo aðra.

Gestirnir leita að jöfnunarmarki.
70. mín
Þjarma að heimamönnum Framarar lágu á Þórsurum í vel rúmlega mínútu. Kyle átti skot sem fór í Affi og hann þarf aðhlynningu.
65. mín
Fimm breytingar Bæði lið búin með þrjár skiptingar.
64. mín
Inn:Israel Garcia (Fram) Út:Atli Þór Jónasson (Fram)
64. mín
Inn:Jakob Byström (Fram) Út:Þorri Stefán Þorbjörnsson (Fram)
63. mín
Inn:Sigfús Fannar Gunnarsson (Þór ) Út:Sebastian Heimvik Haugland (Þór )
63. mín
Inn:Ingimar Arnar Kristjánsson (Þór ) Út:Atli Sigurjónsson (Þór )
63. mín
Inn:Ágúst Eðvald Hlynsson (Þór ) Út:Isaac Atanga (Þór )
62. mín
Áður en Haraldur Einar getur spyrnt í boltann fær Haugland tiltal fyrir kíting inn á teignum. Svo er rangstaða dæmd á Fram.
61. mín Gult spjald: Isaac Atanga (Þór )
Grípur í Framarann og fær verðskuldað gult.
59. mín
Önnur álitleg skyndisókn hjá Þór en fyrirgjöf Atanga endar í höndum Viktors Freys.
58. mín
Vuk með skot fyrir utan teig sem fer framhjá fjærstönginni á marki Þórs.
57. mín Gult spjald: Kyle McLagan (Fram)
Braut á Atanga á sprettinum.
57. mín
Góð skyndisókn hjá Þór sem endar á hægri fótar skoti frá Atla Sigurjóns sem Viktor Freyr sér við.
54. mín
Önnur góð fyrirgjöf frá hægri sem Atli Þór kemst í en hann skallar boltann yfir mark Þórs.
54. mín
Hættulegur bolti frá Fred en enginn nær til boltans og næsta fyrirgjöf endar í höndum Arons Birkis.
52. mín
Framarar þjörmuðu að Þórsurum í byrjun hálfleiks en heimamenn nýttu sína fyrstu sókn í seinni og eru komnir yfir.
49. mín MARK!
Sebastian Heimvik Haugland (Þór )
Stoðsending: Christian Greko Jakobsen
Þórsarar komnir yfir! Þrumuskot við vítateigslínuna sem Sebastian þrumar í fjærhornið. Fyrsta mark norska framherjans fyrir Þór og fyrsta markið á nýja Þórsvellinum. Stórglæsilegt mark.
46. mín
Inn:Fred Saraiva (Fram) Út:Freyr Sigurðsson (Fram)
46. mín
Vuk strax í fínu færi í blábyrjun seinni hálfleiks en boltinn fer yfir mark Þórs.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Tölfræði fyrri hálfleiks (frá Sýn Sport) Með boltann: 49,8% - 50,2%
Marktilraunir: 3-8
Skot á mark: 1-1
Hornspyrnur: 2-4
Heppnaðar sendingar: 167-156
45. mín
XB

Í hálfleik skulum við kynna okkur áherslur Framsóknar á Akureyri þar sem oddvitinn Sunna Hlín leiðir öflugan lista flokksins.

Hér er frábær grein um löngu tímabæra uppbyggingu íþróttamannvirkja á Akureyri eftir Sunnu og Sverre Jakobsson sem er í þriðja sæti listans.

Spörum okkur ekki til óbóta
45. mín
Hálfleikur
Fram var í fyrirgjafarstöðu en Gunnar Freyr flautaði til hálfleiks. Allt jafnt í hléi.
45. mín
Ægir Jarl i fínu færi, tilraun hans fer af varnarmanni og aftur fyrir. Ægir er svekktur með sjálfan sig þarna.
44. mín
Freyr með skot yfir mark Þórs, það heyrðist hljóð eins og einhver hefði aðeins farið í Framarann en ekkert dæmt.
43. mín
Sverrir Páll með skemmtilega takta út við hliðarlínu, leysir vel úr pressunni og Þórsarar ná að halda sókninni áfram.
40. mín
Ægir Jarl gerir vel og stendur af sér tvær tæklingar, en hann fær ekkert fyrir það því hann er stöðvaður inn á vítateig Þórs.
38. mín
Mjög smekklegt uppspil hjá Þórsurum en komust ekki lengra en á síðasta þriðjung.

Heimamenn verið líklegri eftir fína byrjun Framara.
34. mín
Greko með fyrirgjöf á fjær og Haugland er dæmdur brotlegur fyrir mjög litlar sakir. Einhver óánægjuköll frá Þórsbekknum í kjölfarið.
32. mín
Framarar ná að hreyfa boltann vel frá hægri til vinstri en Vuk nær ekki góðri fyrirgjöf og Þórsarar hreinsa.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Simon Tibbling fær aðvörun frá Gunnari dómara.
29. mín
Hætta! Sebastian Haugland með tilraun eftir horn Þórsara, skotið af varnarmanni og rétt framhjá.

Ekkert kom svo úr horninu sem fylgdi á eftir.
26. mín
Isaac Atanga með tilraun, reynir að skrúfa boltann í fjær en skotið er rétt yfir mark Fram.
25. mín
Flott hröð sókn hjá Þór og Atli á skot út D-boganum. Viktor Freyr nær ekki að halda boltanum, Atanga ræðst á frákastið en er dæmdur brotlegur.
23. mín
Framarar vilja víti Hornspyrnan tekin, flikkuð áfram og svo á Ægir held ég tilraun sem fer af varnarmanni,Yann Affi, og aftur fyrir. Framarar vilja fá hendi-víti en fá hornspyrnu. Ómögulegt fyrir mig að sjá.
23. mín
Framarar fá hornspyrnu, aðeins klaufalegur skalli aftur fyrir frá Þórsurum.
21. mín
Fram fær aukaspyrnu á hægri kantinum sínum.

Spyrnan frá Haraldi beint í hendur Arons Birkis.
19. mín
Þórsarar að vinna sig inn í leikinn, hafa verið ofan á síðustu mínútur.
17. mín
Atli Þór skallar fyrirgjöf Einars í burtu og Ásbjörn er svo dæmdur brotlegur þegar hann náði ekki til boltans í fínu færi.
16. mín
Sigurjón brýtur á Sverri Páli og Þór færi aukaspyrnu. Atli og Einar standa yfir boltanum úti á hægri kantinum.
13. mín
Kristófer Kristjáns þurfti að fá aðhlynningu áðan og Siggi þjálfari Þórs var allt annað en sáttur hversu langur tími þurfti að líða áður en Kristófer var hleypt aftur inn á.
13. mín
Dauðafæri Atli Þór með skalla framhjá úr góðu færi, Þórsarar heppnir þarna. Frábær sending frá Tibbling.
10. mín
Atli Sigurjóns tekur Zidane snúning á eigin vallarhelmingi og vinnur aukaspyrnu.
8. mín
Þorri reynir langskot sem fer í varnarmann Þórs. Þórsarar ekki átt alvöru sókn til þessa.

Fram spilar með smá golu í fyrri hálfleiknum en á móti sólinni.
5. mín
Vuk fellur við inn á Þórsteignum, ekkert á þetta.

Ég endurtek, völlurinn er mjög blautur, eiginlega of blautur.
3. mín
Ægir Jarl Jónasson með skot framhjá, Framarar sækja í byrjun.

Völlurinn er mjög blautur.
1. mín
Leikur hafinn
Þór byrjar með boltann Einar sparkar þessu af stað. Þór sækir í átt að Boganum.
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völlinn Þórsarar í hvítu og rauðu og Fram í bláu og hvítu. Fyrsti heimaleikur Þórs síðan 2014 er að hefjast.
Fyrir leik
Líklegar uppstillingar Þór:
Aron Birkir
Kristófer - Affi - Ásbjörn - Sverrir
Einar - Bjarni
Atli - Greko - Atanga
Haugland


Fram:
Viktor
Kennie - Kyle - Sigurjón - Þorri - Haraldur
Tibbling - Ægir - Freyr
Atli - Vuk
Fyrir leik
Stúkan að fyllast Korter í leik og stúkan er að fyllast.
Fyrir leik
Upphitun í gangi
Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Fyrir leik
Þrjár breytingar hjá heimamönnum og ein hjá gestunum Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, gerir þrjár breytingar frá tapinu gegn KR í síðustu umferð. Ragnar Óli Ragnarsson er ekki með í dag og þeir Ágúst Eðvald Hlynsson og Sigfús Fannar Gunnasson taka sér sæti á bekknum. Inn í liðið koma þeir Isaac Atanga, Sverrir Páll Ingason (2008) og Bjarni Guðjón Brynjólfsson. Peter Ingi Helgason kemur inn á bekkinn. Þrír leikmenn fæddir 2008 byrja hjá Þór. Búast má við því að Ásbjörn Líndal spili í hjarta varnarinnar hjá Þór í fjarveru Ragnars Óla.

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, gerir eina breytingar á sínu liði frá sigrinum gegn Keflavík í síðustu umferð. Ægir Jarl Jónasson kemur inn í liði fyrir Israel Garcia sem tekur sér sæti á bekknum. Jakob Byström snýr aftur eftir leikbann og er á bekknum.
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Isaac Atanga byrjar hjá Þór
Fyrir leik
Glampandi sól á pallinum við Hamar Þórsarar ætla að koma saman og hita upp á pallinum fyrir utan félagsheimilið, Hamar, 90 mínútum fyrir leik. Þegar þetta er skrifað, 100 mínútum fyrir leik, er fólk farið að tínast á svæðið.

Geddi Ara er búinn að koma færandi hendi með gómsætan hamborgara og ískalt pax ,allt eins og það á að vera.
Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke
Fyrir leik
Gengi liðanna í byrjun móts Þór er með þrjú stig eftir tvo útileiki í fyrstu umferðunum. Þórsarar unnu 1-2 sigur á Val en töpuðum 2-5 gegn KR síðasta föstudag.

Fram er með fjögur stig eftir tvo heimaleiki. Framarar komu til baka og náðu jafntefli gegn ÍA og unnu svo Keflavík síðasta föstudag.

Framarinn Vuk Oskar Dimitrijevic skoraði tvennu gegn Keflavík og var sterkasti leikmaður umferðarinnar. Ingimar Arnar Kristjánsson hefur komið vel inn í lið Þórs í fyrstu leikjunum; hefur komið að þremur mörkum á 37 spiluðum mínútum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vuk var öflugur gegn Keflavík
Fyrir leik
Þriðja liðið Gunnar Freyr Róbertsson er með flautuna í dag og honum til aðstoðar eru þeir Þórður Arnar Árnason og Jovan Subic. Bergvin Fannar Gunnarsson er fjórði dómari og Vilhelm Adolfsson er eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Freyr dómari
Fyrir leik
Siggi Raggi spáir útisigri Þór 1 - 2 Fram
Fram er með betra lið en Þór. En það er pottþétt erfitt að fara norður og ná í öll 3 stigin. Ég held þó að gæði leikmanna Fram muni samt hafa yfirhöndina og þeir vinna þennan leik 1-2 en það verður ekki létt.
Fyrir leik
Gleðilegt sumar frá nýjum Þórsvelli! Það er komið að fyrsta leik Þórs á nýjum heimavelli, VÍS vellinum, á Akureyri. Menn hafa unnið hörðum höndum síðustu daga til að standsetja völlinn og hann er tilbúinn fyrir leikinn gegn Fram.

Síðasta sumar spilaði Þór og Þór/KA inni í Boganum en liðin munu spila heimaleiki sína utandyra á glænýju gervigrasi í sumar.

Leikurinn hefst klukkan 17:00 og er liður í 3. umferð Bestu deildarinnar.

Mynd: Ármann Hinrik
Byrjunarlið:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson ('64)
5. Kyle McLagan ('79)
8. Haraldur Einar Ásgrímsson
12. Simon Tibbling
17. Atli Þór Jónasson ('64)
18. Ægir Jarl Jónasson
19. Kennie Chopart (f)
25. Freyr Sigurðsson ('46)
26. Sigurjón Rúnarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Sigurjón Daði Harðarson
7. Kristófer Konráðsson ('79)
10. Fred Saraiva ('46)
14. Bjarni Páll Linnet Runólfsson
15. Jakob Byström ('64)
16. Israel Garcia ('64)
23. Már Ægisson

Liðsstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ)
Helgi Sigurðsson
Magnús Þorsteinsson
Einar Haraldsson
Sævar Halldórsson
Guðmundur Gígjar Sigurbjörnsson
Kristján Finnbogi Finnbogason

Gul spjöld:
Kyle McLagan ('57)
Ægir Jarl Jónasson ('90)

Rauð spjöld: