Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Besta karla
Víkingur R.
LL 3
2
Stjarnan
Besta karla
Valur
LL 3
0
FH
Besta karla
Þór
LL 1
0
Fram
Valur
3
0
FH
Adam Ægir Pálsson '9 1-0
Hörður Ingi Gunnarsson '14 2-0
Hólmar Örn Eyjólfsson '37 3-0
23.04.2026  -  19:15
N1-völlurinn Hlíðarenda
Besta karla
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Byrjunarlið:
18. Frederik Schram (m)
3. Hörður Ingi Gunnarsson
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson ('92)
14. Albin Skoglund ('66)
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
17. Lúkas Logi Heimisson
19. Dagur Orri Garðarsson ('53)
21. Jakob Franz Pálsson
22. Birkir Heimisson ('66)
23. Adam Ægir Pálsson ('92)
24. Myles A Veldman
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
25. Stefán Þór Ágústsson (m)
6. Bjarni Mark Duffield ('66)
11. Ingimar Torbjörnsson Stöle ('66)
13. Kristján Oddur Kristjánsson
20. Orri Sigurður Ómarsson
26. Emil Nönnu Sigurbjörnsson ('92)
27. Pétur Eiríksson
28. Samúel Kári Friðjónsson ('53)
66. Loki Kristjánsson ('92)

Liðsstjórn:
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Halldór Eyþórsson
Einar Óli Þorvarðarson
Örn Erlingsson
Chris Brazell
Kirian Elvira Acosta
Vignir Snær Stefánsson
Emil Alexander Larsen

Gul spjöld:
Birkir Heimisson ('49)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Valsarar sigra hér í kvöld. Sannfærandi sigur sem vannst í fyrri hálfleik, svo sigldu þeir þessu heim í seinni. Viðtöl og skýrsla væntanleg seinna í kvöld.
94. mín
FH-ingar fá horn, líkast til síðasta færi leiksins.
92. mín
Inn:Loki Kristjánsson (Valur) Út:Adam Ægir Pálsson (Valur)
Fyrsti leikur Loka sem er aðeins 15 ára gamall.
92. mín
Inn:Emil Nönnu Sigurbjörnsson (Valur) Út:Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
91. mín
Uppbótartíminn er að minnsta kosti fjórar mínútur
90. mín
Valsarar vilja víti Samúel Kári fellur inn í teig eftir samstuð við varmarmann. Alveg vítalykt af þessu en enginn neitt að missa sig yfir þessu vegna þess hver staðan er.
89. mín
Endalaus höfuðhögg og menn að bíða eftir að fá að koma aftur inn á. Fyrst var það Hörður Ingi, svo Adam Ægir, núna er það Úlfur. Lítið annað að gerast nema stuðningsmenn FH að týnast út.
86. mín
Hörður Ingi er að fá aðhlynningu eftir hornspyrnuna sem var áðan. Hann jafnar sig af þessu sýnist mér.
86. mín
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

86. mín
Inn:Viktor Nói Vidarsson (FH) Út:Arngrímur Bjartur Guðmundsson (FH)
85. mín
FH með hornspyrnu og Kjartan Kári lyftir boltanum á nær. Úlfur nær að sneiða boltann í áttina að marki en Schram sér við honum.
84. mín
Munaði litlu fyrir Val Kjartan Kári með fyrirgjöf sem fer einhvern vegin framhjá öllum og stefnir á fjærstöngina. Schram lætur boltann fara og það munar litlu að Gils nær til boltans, en hann fer líka framhjá honum og síðan aftur fyrir.
83. mín
Góð varsla hjá Jökli Langur bolti fram hjá Val, Grétar Snær nær skallanum en beint á Tryggva. Hann gefur svo boltan á Adam sem er kominn í gott færi inn í teig. Adam reynir skotið á fjær en Jökull sér við honum.
79. mín
Tómas Orri reynir skotið fyrir utan teig en þessi fer yfir.

FH-ingar mikið með boltann en frekar bitlausir.
75. mín
FH fær horn. Þeir þurfa að fara skora ef þeir ætla að búa til einhverja spennu.

Hornið hins vegar alveg skelfilegt og fer bara beint í hliðarnetið.
69. mín
Schram vel á verði Gils Gísla með skot fyrir utan teig í varnarmann, boltinn dettur svo fyrir Róbert Huga sem á fast skot á markið, en Schram er mættur og á ekki í miklum erfiðleikum með þetta.
67. mín
Enginn vissi um boltann Áhugaverð sókn hjá FH, boltinn skýst af mönnum hægri vinstri í alveg svona 20 sekúndur. Endar inn í teig þar sem hann fer af Valsara og aftur fyrir. FH fær horn, en það kemur ekkert úr því.
66. mín
Inn:Ingimar Torbjörnsson Stöle (Valur) Út:Albin Skoglund (Valur)
66. mín
Inn:Bjarni Mark Duffield (Valur) Út:Birkir Heimisson (Valur)
64. mín
Ekki svo galið Lúkas Logi með töluvert af plássi en þó frekar langt frá marki. Reynir bara skotið og þessi fer bara rétt framhjá stönginni.
63. mín
Tryggvi með horsnpyrnuna á nær en FH-ingar hreinsa. Eftir liggur svo Grétar Snær eftir eitthvað samstuð. Hann er samt fljótur að jafna sig.
62. mín
Valsarar koma upp í skyndisókn, langur bolti fram í átt að Tryggva en FH-ingar komast inn í sendinguna og hreinsa í horn.
58. mín
Inn:Úlfur Ágúst Björnsson (FH) Út:Kristján Flóki Finnbogason (FH)
58. mín
Inn:Gils Gíslason (FH) Út:Adolf Daði Birgisson (FH)
58. mín
Inn:Sverrir Páll Hjaltested (FH) Út:Kári Kristjánsson (FH)
55. mín
FH gefið gjöf sem þeir nýta ekki Hörður Ingi með hreinsun beint í Baldur Kára og FH vinnur boltann við vítateig Vals. Kjartan Kári keyrir þá inn á teig, Jakob Franz reynir að halda í við hann en rennur bara á rassinn. Kjartan tekur þá skotið en beint í varnarmann Vals.
53. mín
Inn:Samúel Kári Friðjónsson (Valur) Út:Dagur Orri Garðarsson (Valur)
Fyrsti leikur Samúels fyrir Val.
51. mín
Kjartan Kári tekur hornspyrnuna en Valsarar skalla frá.
50. mín
Baldur Kári með sendinguna fyrir sem Hólmar skallar frá, en beint á Kjartan Kára. Hann tekur þá skotið en það fer í varnarmann og FH fær horn.
49. mín Gult spjald: Birkir Heimisson (Valur)
Rífur Flóka groddaralega niður.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn!
46. mín
Inn:Ísak Óli Ólafsson (FH) Út:Tobias Carlsson (FH)
Ein breyting í hálfleik
45. mín
Helgi er með myndavélina
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

45. mín
XB

Það er kominn hálfleikur og þá er um að gera að kynna sér Build Back Better prógrammið hjá Einari Þorsteins og félögum í Framsókn í Reykjavík.

Hér er frábær grein um fyrirætlanir Einars og Framsóknar í Reykjavík varðandi lækkun fasteignagjalda.

Það munar um 800 milljónir

- Auglýsing -
45. mín
Hálfleikur
Valsarar með svakalega yfirburði í fyrri hálfleik 3-0 fyrir heimamönnum. FH-ingar þurfa að breyta miklu ef þeir eiga einhvern séns í seinni.
45. mín
Þvílík varsla!! +2
Hörður Ingi fær boltan úti hægra megin og hann fær bara að valsa upp kantinn óáreittur. Hann kemur svo með fastan bolta fyrir á nær þar sem Tryggvi er í dauðafæri, kemur boltanum á markið en Jökull ver rosalega vel!
45. mín
Uppbótartíminn er að minnsta kosti tvær mínútur
45. mín
Mikilvæg björgun! Skyndisókn hjá Val og Adam keyrir af stað með boltann. Hann leggur hann út til hægri á Tryggva sem kemur með stórhættulegan bolta fyrir teig en Carlsson er mættur á réttan stað og nær að hreinsa.
42. mín
Hörður í færi! Valsarar með aukaspyrnu nálægt hliðarlínunni. Tryggvi lyftir boltanum inn í teig en FH-ingar skalla frá. Ekki langt hins vegar þar sem Hörður nær til boltans og tekur skotið en framhjá.
42. mín Gult spjald: Baldur Kári Helgason (FH)
41. mín
Tryggvi með einn á einn stöðu gegn Carlsson, reynir að rykkja til hliðar og taka skotið fyrir utan teig en það fer framhjá.
37. mín MARK!
Hólmar Örn Eyjólfsson (Valur)
Stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson
3-0!! Einkennilegt mark eftir horn Valsarar taka hornið stutt á Tryggva sem lyftir svo boltanum inn í teig. Það eru þrír FH-ingar í kringum Hólmar en einhver vegin nær hann upp í boltann og skallar hann inn við nærstöngina.

Varnarmenn FH duttu eiginlega allir í kringum hann þegar þeir reyndu að komast í þennan skalla og Flóki hélt um andlitið. Hólmar hefur mögulega aðeins farið í hann.
35. mín
FH-ingar vilja víti! Bolti í gegn hjá FH og fyrst vilja Valsarar rangstöði sem þeir fá ekki. Boltinn berst svo út til vinstri á Kjartan Kára sem á skot í Hörð Inga. Mér sýnist boltinn fara alveg greinilega í hendina á Herði en spurning um náttúrulega stöðu og það allt.
34. mín
Veldman með hornspyrnuna fyrir Val á fjær en Róbert Hugi skallar frá. Valsarar halda boltanum og ná að koma boltanum tvisvar aftur fyrir en í bæði skiptin skallar FH frá.
30. mín
Valsarar í stuði
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Kjartan Kári með skotið fyrir utan teig en þessi flýgur hátt yfir.
27. mín
Sloppinn í gegn! Dagur Orri með einfalda sendingu í gegn á Tryggva sem er þá bara sloppinn einn gegn markmanni. Jökull gerir hins vegar vel í að koma út á móti og verja.

Vörn FH-inga var þarna bara eins og gatasigti.
26. mín
Vel varið! VH fær þá horn sem þeir taka stutt á Kjartan. Hann kemur svo boltanum inn í teig þar sem boltinn dettur fyrir Flóka sem á skot í stöng og Schram nær svo að stökkva á boltann.
26. mín
Kári í fínu færi FH-ingar ná fínum spilkafla og koma boltanum inn á Kára sem er í fínni stöðu inn á teig. Hann tekur skotið en beint í Hólmar.
24. mín
Valsarar vilja víti!! Adam Ægir er með boltann og hann ætlar að keyra inn á teig. Grétar hleyput bakvið hann og kemur aðeins við hann með höndunum en þarna fannst mér Adam láta sig bara detta.
20. mín
Virðist í lagi með Birki, hann er allavega kominn aftur inná.
17. mín
Birkir Heimisson liggur í grasinu og þarf aðhlynningu. Sá ekki alveg hvað kom fyrir þarna, en vonandi að hann getur haldið áfram leik.
14. mín MARK!
Hörður Ingi Gunnarsson (Valur)
Stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson
FRÁBÆR BYRJUN HJÁ VAL! Tryggvi með hornspyrnuna fyrir Valsara. Aftur kemur hann með háan bolta á fjærstöngina en núna aðeins nær markinu. Hörður er mættur á fjærstöngina og rís hærra en aðrir, nær svo að stanga boltanum inn af stuttu færi!
12. mín
Tryggvi með hornspyrnuna fyrir Val. Hann gefur háan bolta á fjærstöngina þar sem Lúkas Logi er aleinn. Hann reynir skotið í fyrsta en það fer hátt yfir.
9. mín MARK!
Adam Ægir Pálsson (Valur)
Stoðsending: Lúkas Logi Heimisson
Fast fyrir utan teig! Adam fær boltann þónokkrum metrum fyrir utan teig en það fer enginn FH-ingur í hann. Hann tekur þá þessa flugbraut í átt að teignum, lætur svo vaða rétt yfir utan teiginn. Fast skot niður í nærhornið!
8. mín
Mikið fram og til baka Þá koma FH-ingar strax upp hinumegin. Kjartan Kári með fyrirgjöfina á fjær þar sem Tómas Orri kemst í skotið, færið hins vegar þröngt og beint á Schram.
7. mín
Rétt yfir!! Lúkas Logi gerir mjög vel á vinstri kantinum, kemur boltanum upp kantinn á Veldman. Hann kemur svo með fastann bolta fyrir teiginn. Skoglund kemur í seina hlaupið og nær skotinu ofarlega í teignum en yfir markið.
3. mín
Uppstilling liðanna er eitthvað í þessa áttina Valur 4-4-2

Schram
Hörður - Hólmar - Jakob - Veldman
Adam - Skoglund - Birkir - Lúkas
Dagur - Tryggvi

FH 4-3-3
Jökull
Arngrímur - Grétar - Carlson - Baldur
Kári - Tómas - Róbert
Adolf - Flóki - Kjartan
2. mín
Þetta byrjar með látum! Þá eiga FH-ingar flott uppspil fram völlinn. Baldur Kárir rennir boltanum inn í teig á Tómas Orra sem kemur hlaupandi að boltanum. Hann tekur skotið en það framhjá úr góðu færi.
1. mín
ROSALEGT FÆRI EFTIR 30 SEK!!! FH-ingar með slaka sendingu úr vörninni og Valsarar vinna boltann. Þeir spila svo mjög flottann einna snertinga bolta og tæta í sig vörn FH. Lúkas rennir boltanum inn á Tryggva sem er einn gegn markmanni, hann reynir vippuna sem fer rétt yfir markið.
1. mín
Leikur hafinn
Vilhjálmur flautar og það eru FH-ingar sem hefja leik,
Fyrir leik
Leikmenn ganga út á völl og þá fer leikurinn alveg að hefjast!
Fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarliðin Hermann Hreiðarsson þjálfari Vals gerir eina breytingu á liði sínu sem vann gegn ÍBV 2-1 í síðustu umferð. Bjarni Mark Antonsson sest á bekkinn en inn fyrir hann kemur Birkir Heimisson. Þá er nýjasti Valsarinn Samúel Kári Friðjónsson á bekknum og tilbúinn að spila sinn fyrsta leik í rauðu.

Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH gerir tvær breytingar á sínu liði frá því að þeir töpuðu 3-2 fyrir Stjörnunni í síðustu umferð. Birkir Valur Jónsson og Ísak Óli Ólafsson setjast á bekkinn, en fyrir þá koma Arngrímur Bjartur Guðmundsson og hinn 16 ára gamli Róbert Hugi Sævarsson byrjar sinn fyrsta leik fyrir FH í Bestu deildinni.
Fyrir leik
Valur fær liðsstyrk Valsarar tóku upp veskið í vikunni og keyptu Samúel Kára frá Stjörnunni. Talað er um að það sé líklegt að hann spili sinn fyrsta leik fyrir Val í kvöld.
Fyrir leik
Dómarinn Vilhjálmur Alvar Þórarinsson verður með flautuna í þessum leik, en honum til aðstoðar verða Gylfi Már Sigurðsson og Ragnar Þór Bender. Gunnar Oddur Hafliðason verður fjórði dómari og Ólafur Ingi Guðmundsson er eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Spáin Þriðja umferðin fer af stað strax í kvöld og tók Sigurður Ragnar Eyjólfsson að sér það verkefni að spá í spilin. Siggi Raggi er að gera frábæra hluti sem þjálfari NSÍ Runavíkur þessa stundina og situr á toppnum í færeyska fótboltanum.
Fyrir leik
Hafnfirðingar án sigurs FH eins og Valur eru búnir að mæta ÍBV en, Hafnfirðingar gerðu jafntefli í Eyjum í fyrstu umferðinni. Í síðustu umferð var ferðalagið þeirra styttra þar sem þeir fóru að heimsækja Stjörnuna úr Garðabæ. FH var undir í baráttunni allan þann leik en voru samt á einhvern hátt með 2-2 stöðu þegar lítið var eftir. Þá skoraði Andri Rúnar Bjarnason fyrir Stjörnuna sigurmarkið og FH því aðeins með eitt stig eftir tvo leiki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Valsarar komu til baka síðast Tímabilið byrjaði ill hjá Val þar sem þeir töpuðu fyrir nýliðum Þórs í fyrstu umferð 2-1. Það leit út fyrir að ÍBV myndi bara bæta gráu ofan á svart þegar þeir komust svo 1-0 yfir í síðustu umferð. Valsarar komu hins vegar til baka og unnu leikinn 2-1. Því er Valur með þrjú stig eftir fyrstu tvær umferðirnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Besta deildin heilsar! Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Vals og FH í þriðju umfer Bestu deildar karla.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður spilaður á Hlíðarenda.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Jökull Andrésson (m)
4. Tobias Carlsson ('46)
6. Grétar Snær Gunnarsson (f)
7. Kjartan Kári Halldórsson
8. Kári Kristjánsson ('58)
9. Kristján Flóki Finnbogason ('58)
14. Adolf Daði Birgisson ('58)
23. Tómas Orri Róbertsson
37. Baldur Kári Helgason
38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson ('86)
40. Róbert Hugi Sævarsson
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
24. Daði Freyr Arnarsson (m)
2. Birkir Valur Jónsson
3. Kristján Snær Frostason
10. Sverrir Páll Hjaltested ('58)
22. Ísak Óli Ólafsson ('46)
32. Gils Gíslason ('58)
33. Úlfur Ágúst Björnsson ('58)
39. Benjamín Bæring Þórsson
66. Viktor Nói Vidarsson ('86)

Liðsstjórn:
Árni Freyr Guðnason (Þ)
Jóhannes Karl Guðjónsson (Þ)
Arnar Sigþórsson
Guðmundur Jón Viggósson
Benjamin Gordon Mackenzie
Númi Már Atlason
Kjartan Sturluson

Gul spjöld:
Baldur Kári Helgason ('42)

Rauð spjöld: