Fotbolti.net
Besta deildin
Brynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Besta kvenna
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 1
Stjarnan
Stjarnan
Freyja Stefánsdóttir 1'1 - 01 - 122' Ingibjörg Lúcía RagnarsdóttirJasmín Erla Ingadóttir 80'2 - 1
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
Ótrúlega jafn leikur hér í Hamingjunni þar sem Víkingar taka öll þrjú stigin úr þessum leik.

Viðtöl og skýrsla koma inn seinna í dag, takk fyrir mig og góða helgi!
91. mín
Jóhanna með skot sem fer rétt framhjá markinu.
90. mín
+4 til uppbótar
90. mín
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur R.
87. mín
InnAnika Jóna Jónsdóttir
ÚtÞórdís Hrönn Sigfúsdóttir
Víkingur R.
87. mín
InnHelena Ósk Hálfdánardóttir
ÚtFreyja Stefánsdóttir
Stjarnan
85. mín
InnSnædís María Jörundsdóttir
ÚtÞóra María Hjaltadóttir
Víkingur R.
84. mín
Gult spjald

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir

83. mín
Víkingar vinna hornspyrnu
Bridgette í markinu grípur þennan beint frá horninu
Víkingur R.
80. mín
Víkingur að komast yfir!

Jasmín Erla Ingadóttir (stoðsending: Jóhanna Elín Halldórsdóttir)

Jóhanna á hægri kanti kemur boltanum inn í teigin sem einhvern vegin finnur Jasmínu sem stendur beint fyrir framan markið og kemur boltanum inn í netið.
79. mín
Úlfa Dís með góða fyrirgjöf inn í teig sem stefnir beint á Birnu sem tekur skotið í fyrstu snertingu sem Elizabeth ver vel með að grípa.
76. mín
Víkingar komnir í flotta sókn. Bergdís kemur boltanum á Jóhönnu sem var að koma inn á. Jóhanna er komin í gott færi, en skýtur boltanum framhjá markinu.
Víkingur R.
75. mín
InnJóhanna Elín Halldórsdóttir
ÚtEmma Steinsen Jónsdóttir
Stjarnan
74. mín
InnJana Sól Valdimarsdóttir
ÚtIngibjörg Lúcía Ragnarsdóttir
73. mín
HVERNIG?!?
Víkingur kemst í svakalega hraðupphlaup þar sem 3 Víkings stelpur eru að hlaupa tað teig Stjörnuna og enginn Stjörnunleikmaður með þær. Fanney hleypur all leið upp og endar með að taka skotið ein gegn markvörð. Skotið endar í stöngina.
72. mín
Elizabeth með flotta vörslu eftir skot frá Fanney.
70. mín
Emma Steinsen meðe fyrirgjöf sem endar beint í fanginu á Bridgette.
Stjarnan
68. mín
InnFanney Lísa Jóhannesdóttir
ÚtHulda Hrund Arnarsdóttir
Víkingur R.
65. mín
InnDagný Rún Pétursdóttir
ÚtArna Ísold Stefánsdóttir
62. mín
Brynjar dómari er ekki sáttur við þjálfarteymi hjá báða liðina sem öskrá báðir á hvort annað og dómarana á fullu.
57. mín
Úlfa Dís reynir lága fyrirgjöf en boltinn endar beint í fangið á Elizabeth
53. mín
Stjarnan með svakalegt færi reftir að boltinn endar inn í teig Víkinga og Murielle reynir að ýta boltanum inn í mark, en skýtur framhjá markinu.
50. mín
Bergdís með aukaspyrnu sem fer í vegg Stjörnuna.
49. mín
Einar, þjálfari Víkings, horfir hér upp í fjölmiðlastúkunna til athuga hvort var eini sem fannst þetta ætti að hafa verið rautt.
Stjarnan
49. mín
Gult spjald

Jakobína Hjörvarsdóttir

48. mín
Jakobína tekur niður leikmann Stjörnuna sem var nánast komin ein gegn markamanni. Ég set spunringarmerki um hvort þetta hefði átt að vera rautt þarna! Sá alveg á Brynjari að hann þurfti að hugsa í smá áður en hann dró upp spjaldið.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Murielle sparkar leiknum aftur í gang.
45. mín
Þetta hefur verið mjög jafn fyrri hálfleikur og allt getur gerst í þeim seinni.
44. mín
Stjarnan fær hornspyrnu
Víkingar skalla boltanum í burtu.
Stjarnan
42. mín
Gult spjald

Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir

Ingibjörg með peysutog og fær fyrst gula spjald Bestu deildar í ár
39. mín
Lítið í gangi í leiknum þessa stundina. Boltin spilast á milli bæði lið en það er svona eina sem er í gangi.
29. mín
Geitin með myndir eftir mark Stjörnuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

28. mín
Arna Ísold með skot að löngu færi sem Bridgette léttilega með.
25. mín
Murielle fær góða sendingu upp og hún sér að Elizabeth stendur langt frá markinu og Murielle ákveður að taka skotið frá löngu færi. Elizabeth nær að ýta boltanum í burtu.
Stjarnan
22. mín
Stjarnan jafnar!

Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (stoðsending: Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir)

Markið kom alveg upp úr þurru. Úlfu með sendingu frá hægri kanti inn í teigin sem endar á Ingibjörgu. Ingibjörg á svo frekar laust skot á markið sem Elizabeth ætti að gera miklu betur í, en boltir endar framhjá henni og inn í markið.
19. mín
Víkingar fá hornspyrnu.

Stjarnan koma boltanum í burtu.
18. mín
Víkingar fá sprett upp að teignum sem endar með skoti frá Bergdísi sem fer í varnamann og Bridgette í markinu grípur svo boltann.
12. mín
Hafliði með frábærar myndir af fagninu!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
8. mín
Þóra María með skot sem fer í varnamann Víkings og Stjarnan eiga hornspyrnu.

Boltinn flýgjur yfir alla pakkan
Víkingur R.
1. mín
NÚ JÆJA!

Freyja Stefánsdóttir (stoðsending: Bergþóra Sól Ásmundsdóttir)

Þetta tók enga stunda og Freyja kemur Víkingum yfir á innan við mínútu. Bergþóra Sól með sendingu frá hægri kanti sem nær inn í tegiin beint á Freyju sem er ein beint fyrir framan markið. Freyja kemur þessum á milli lappirnar á Bridgette og Víkingar kmnir yfir.

Ég hélt að Freyja væri rangstæð í þessu marki en línuvörðurinn segir ekkert við því.
1. mín
Arna Ísold sparkar þessu í gang!
Fyrir leik
Arna Eiríks spáir í 1. umferð
Landsliðskonan Arna Eiríksdóttir fékk það verkefni að spá í leikina sem framundan eru.

Víkingur R. 3 - 1 Stjarnan
Ég held að Víkingur sé eitt af þeim liðum sem gæti verið í toppbaráttunni í ár ef allt smellur vel saman hjá þeim.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Dómarateymi
Aðaldómari leiksins er nafni minn Brynjar Þór Elvarsson. Með honum til aðstoðar eru Kristinn Freyr Victorsson og Guðmundur Kristinn Davíðsson. Fjórði dómari leiksins er Arnar Hólm Einarsson. Eftirlitsmaður leiksin frá KSÍ er Gunnar Helgason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Opnunardagur
Í dag er opnunardagur Bestu deildar kvenna. Það verða tveir leikir spilaðir í dag, báðir á sama tíma. Á sama tíma og þessi leikur er spilaður eru Íslandsmeistarar að bjóða Þróttara á Kópavogsvelli.

Föstudagur:
Víkingur R. - Stjarnan 19:15
Breiðablik - Þróttur 19:15

Laugardagur
Fram - ÍBV 13:00
Valur - Grindavík/Njarðvík 16:00
Þór/KA - FH 16:00

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Fótbolti.net spá Stjörnuna í 4. sæti
Stjarnan fer inn í nýtt tímabil í Bestu deildinni með ákveðna eftirvæntingu og von um gott sumar. Liðinu er spáð 4. sæti, sem setur þær í hóp þeirra liða sem eiga að vera í baráttunni rétt fyrir neðan toppinn, en hver veit ef hlutirnir smella fullkomlega? Nýr þjálfari er kominn til starfa sem gæti fært liðinu ferskleika og nýja nálgun, eitthvað sem Stjarnan þurfti mögulega. Undirbúningstímabilið hefur verið upp og niður, sem gerir það að verkum að erfitt er að lesa nákvæmlega hvar liðið stendur þegar mótið hefst. Hins vegar eru gæðin til staðar og þegar Stjarnan nær flugi hefur liðið sýnt að það getur keppt við þau bestu. Spurningin verður hversu fljótt nýjar áherslur skila sér inn á völlinn. Það eru orðin nokkur ár síðan Stjarnan sat á toppi íslenska kvennaboltans og margt hefur breyst síðan þá, bæði innan félagsins og í deildinni sjálfri. Draumurinn um að komast aftur á þann stað er vonandi til staðar.

Fyrir leik
Fótbolti.net spá Víking í 3. sæti
Víkingur fer inn í nýtt tímabil í Bestu deildinni með háar væntingar eftir mikinn uppgang síðustu ár. Liðinu er spáð 3. sæti en á undanförnum tímabilum hefur Víkingur byggt sig hratt upp, meðal annars með bikarmeistaratitli. Síðasta tímabil var þó áminning um að leiðin upp á topp er sjaldnast bein lína. Byrjunin var erfið og úrslitin ekki í takt við væntingar, sem leiddi til þjálfaraskipta snemma sumars. Sú breyting skilaði sér hins vegar í betri frammistöðu og liðið náði að rétta úr kútnum og enda í efri hlutanum. Víkingur er ekki lengur liðið sem kemur á óvart, heldur liðið sem ætlar sér að berjast um þann stóra. Spurningin er hvort þeim takist að ná stöðugleika frá fyrsta leik og forðast þær sveiflur sem settu strik í reikninginn í fyrra. Ef þær ná því og byggja ofan á þann grunn sem hefur verið lagður síðustu ár, gæti Víkingur verið raunverulegur kandídat í Íslandsmeistaratitilinn.

Fyrir leik
Komnar/farnar
Víkingur
Komnar
Helena Ósk Hálfdánardóttir frá Val
Jasmín Erla Ingadóttir frá Val
Grace McClellan frá Finnlandi
Elísa Birta Káradóttir frá HK
Þórhildur Þórhallsdóttir frá Fylki
Camilly Kristal Silva Da Rocha frá Þrótti
Hrafnhildur Hjaltalín frá Aftureldingu

Mynd: Víkingur R.


Farnar
Linda Líf Boama til Kristianstad
Gígja Valgerður Harðardóttir
Eva Ýr Helgadóttir hætt
Ashley Clark til Montpellier
Júlía Ruth Thasaphong til Grindavíkur/Njarðvíkur

Stjarnan
Komnar
Murielle Tiernan frá Fram
Telma Steindórsdóttir frá Fram
Jakobína Hjörvarsdóttir alfarið frá Breiðabliki (var á láni)

Farnar
Betsy Hassett hætt
Vera Varis
Esther Rós Arnarsdóttir
Henríetta Ágústsdóttir í HK (var á láni hjá Þór/KA)

Mynd: Stjarnan


Fyrir leik
Besta kvenna er að hefjast!
Góða kvöldið gott fólk og verið hjartanlega velkomin á þessa beinu textalýsingu frá Víkingsvellinum þar sem Víkingur tekur á móti Stjörnuna í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna.

Leikurinn hefst kl.19:15

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.