SKÝRSLAN: Íslandsmeistararnir hófu titilvörnina með sigri
Hvað réði úrslitum?
Breiðablik var bara mun sterkara liðið hér í dag og átti sigurinn fyllilega skilið
Bestu leikmenn
1. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
Hin unga og efnilega Ása, var að spila sinn 100. leik fyrir Breiðablik þrátt fyrir ungan aldur. Hún átti frábæra frammistöðu á miðjunni hjá Blikum og kórónaði hana með því að setja seinna mark Blika. Ótrúlega skemmtilegur, leikinn og hraðaur leikmaður sem verður gaman að fylgjast með í sumar.
2. Agla María Albertsdóttir
Agla María átti frábæran leik í dag. Átti báðar stoðsendingarnar og óheppin að ná ekki inn marki sjálf. Gaman að sjá þær Ásu spila saman, þau verða einhver mörkin í sumar sem þetta dúó koma að. Líf og Edith voru líka mjög öflugar.
Atvikið
Markið hjá Edith var algjörlega frábært, fær geggjaðan langan bolta frá Öglu Maríu, er komin ein í gegn og þrumar boltanum í samskeytin fjær. Verð síðan einnig að nefna skiptinguna undir lokin þegar Bryndís Arna Níelsdóttir kemur inn á, frábært fyrir hana og Blikana að hún fái mínútur og sé að að komast í gang. Maður var einhvern veginn ekki að búast við henni fyrr en í maí.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það einfaldlega að Breiðablik sigrar sinn fyrsta leik í Bestu deildinni og fær sín fyrstu þrjú stig.
Vondur dagur
Kayla Rollins í liði Þróttar átti ekki sinn besta dag. Hún virkaði voða týnd á kantinum í fyrri hálfleik, sat neðarlega og var lengi að koma sér ofar á völlinn þegar Þróttarar freistuðust í sókn. Var betri í seinni hálfleik en hún þarf að skila töluvert betri leik fyrir Þrótt í sumar.
Dómarinn - 8
Vel dæmt hjá Róberti og félögum og ég hef bara ekkert út á þá að setja.



