SKÝRSLAN: Víkingar sigra í sjúklega jöfnum leik
Hvað réði úrslitum?
Eina sem réð úrslitum í dag voru mörkin, því liðin voru ótrúlega jöfn í þessum leik. Leikurinn var 1-1 í hálfleik og ekki var þá hægt að giska á hver myndi sigra þennan leik.
Bestu leikmenn
1. Jasmín Erla Ingadóttir
Átti mjög flottan leik í dag, var allt í öllu og hóf tímabilið á marki hjá nýja félaginu.
2. Freyja Stefánsdóttir
Skoraði fyrsta mark tímabilsins og var mjög flott í þessum leik.
Atvikið
Freyja var komin ein í gegn og er tekin niður og Jakobína sem tekur Freyju niður fær aðeins gult spjald sem er stórt spurningarmerki. Svo tekur Jasmín við boltanum en er svo dæmd rangstæð. Mjög skrítið atvik þarna á ferð.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingur fer í annað sæti og Stjarnan í níunda sæti. Það verða þó spilaðir þrír leikir á morgun sem eiga eftir að breyta töflunni.
Vondur dagur
Mér fannst Bridgette í markinu hjá Stjörnunni ekki eiga neinn frábæran leik í dag. Vörn Stjörnunnar var fín í heild sinni, en í báðum mörkunum var hún alveg í ruglinu. Elizabeth í marki Víkinga átti þó að gera betur í marki Stjörnunnar.
Dómarinn - 4
Brynjar og hans teymi voru alls ekki góð í dag að mínu mati. Stærsta atvikið var að sjálfsögðu þegar Freyja er tekin niður nánast komin ein í gegn og svo tekur Jasmín boltann og er ein gegn markvörð og svo er dæmd rangstaða á Jasmínu og aðeins gult á brotið á Freyju. Svo var verið að hægja töluvert á leiknum með að segja leikmönnum að taka innköst á réttum stað og svo var einn línuvörðurinn oft að giska á hvort liðið ættu innköst.




