PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
Lengjudeild karla
HK
LL 4
1
Grótta
Lengjudeild karla
Völsungur
LL 1
1
Leiknir R.
Besta kvenna
Valur
LL 2
1
Grind/Njarð
Besta kvenna
Þór/KA
LL 1
1
FH
Valur
2
1
Grind/Njarð
Arnfríður Auður Arnarsdóttir '15 1-0
1-1 Sophia Faith Romine '21
Ísabella Sara Tryggvadóttir '66 2-1
Maci Nicole Teater '93
25.04.2026  -  16:00
N1-völlurinn Hlíðarenda
Besta kvenna
Aðstæður: Sól, 10 stiga hiti og gola
Dómari: Hreinn Magnússon
Maður leiksins: Natasha Anasi
Byrjunarlið:
1. Tinna Brá Magnúsdóttir (m)
3. Sóley Edda Ingadóttir
4. Helga Rut Einarsdóttir
5. Bryndís Eiríksdóttir
6. Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir
7. Ísabella Sara Tryggvadóttir ('68)
8. Arnfríður Auður Arnarsdóttir
15. Hrafnhildur Salka Pálmadóttir ('46)
16. Margrét Brynja Kristinsdóttir ('79)
18. Málfríður Anna Eiríksdóttir (f)
28. Kolbrá Una Kristinsdóttir
- Meðalaldur 20 ár

Varamenn:
12. Esther Júlía Gustavsdóttir (m)
2. Sigrún Ísfold Valsdóttir
9. Sonja Björg Sigurðardóttir
13. Nadía Atladóttir ('68)
25. Glódís María Gunnarsdóttir
26. Ása Kristín Tryggvadóttir ('79)
32. Ágústa María Valtýsdóttir ('46)
34. Karítas Barkardóttir
77. Eyrún Vala Harðardóttir

Liðsstjórn:
Matthías Guðmundsson (Þ)
María Hjaltalín
Hallgrímur Heimisson
Helgi Freyr Þorsteinsson
Jónas Breki Kristinsson
Hilmar Andrew McShane
Eiríkur Raphael Elvy
Emil Alexander Larsen

Gul spjöld:
Hrafnhildur Salka Pálmadóttir ('34)
Jónas Breki Kristinsson ('82)

Rauð spjöld:
@fotboltinet Snæbjört Pálsdóttir
Skýrslan: Stálheppnar Valskonur rétt náðu að sigla sigrinum á nýliðunum heim
Hvað réði úrslitum?
Veistu ég ætla held ég bara að setja þetta á heppni. Það var eiginlega bara algjör heppni að Valur náði að sigra nýliðanna Grindavík/Njarðvík 2-1 á Hlíðarenda í dag. Nýliðarnir voru í raun betra liðið inn á vellinum og áttu mun fleiri færi. Kellet markmaður nýliðanna gaf þeim fyrsta markið á silfurfati með því að sparka boltanum í Arnfríði Auði. Ísabella Sara var síðan seig þegar hún komst óvænt ein í gegn og tryggði Valskonum sigurinn.
Bestu leikmenn
1. Natasha Anasi
Að öðrum ólöstum í liði Grindavíkur/Njarðvíkur þá var Natasha frábær í dag. Það sást að hún er reynslumesti leikmaður liðsins og miðlaði því vel til liðsins. Ellie Coffield átti einnig frábæra spretti inn á miðjunni ásamt Ásu og Rakel á köntunum.
2. Arnfríður Auður Arnarsdóttir
Hjá Val var Arnfríður Auður, Aufí klárlega ljósasti punkturinn. Hún pressaði vel á Kellet í markinu og uppskar með því fyrsta mark leiksins. Ísabella Sara gerði vel í markinu en annars var lítið að frétta hjá Val.
Atvikið
Ég veit hreinlega ekki hvaða atvik ég á að velja! Fyrsta markið? Seinna markið hjá Val sem kom þvert gegn gangi leiksins? Vítaspyrnu sem var sleppt í lokin? Eða beina rauða spjaldið sem Teater fær á síðustu mínútunni fyrir að toga í hárið á Kimberley? Allt ég vel allt!
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að Valur er eftir þessa fyrstu umferð í 2. sæti með þrjú stig og +1 í markatölu. Grindavík/Njarðvík hins vegar sitja í 8. sætinu með -1 í markatölu.
Vondur dagur
Kellet gerir hræðileg mistök í fyrsta markinu en var annars nokkuð solid! Verð síðan eiginlega að nefna Maci Nicole Teater sem átti góðan leik en tekur síðan þá fáránlegu ákvörðun að rífa í hárið á Kimberly á síðustu mínútu uppbótatíma. Uppskar fyrir það beint rautt spjald og væntanlega 2 leikja bann! Það er virkilega vont fyrir nýliðanna!
Dómarinn - 5
Þetta var svona bara þokkalegur leikur hjá dómarateyminu, hins vegar fannst mér þeir klárlega hafa átt að dæma vítaspyrnu undir lok leiksins þegar Kimberly fær boltann í hendina inn í teignum.
Byrjunarlið:
1. Lauren Kellett (m)
2. Ellie Coffield
5. Natasha Anasi
12. Hannah McLaughlin
15. Tinna Hrönn Einarsdóttir
17. Sophia Faith Romine
18. Ása Björg Einarsdóttir ('83)
19. Rakel Sigurðardóttir ('72)
22. Sigríður Emma F. Jónsdóttir (f)
24. Danai Kaldaridou
26. Maci Nicole Teater
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
3. Brynja Pálmadóttir
4. Rakel Rós Unnarsdóttir
6. Rut Sigurðardóttir
8. Katrín Lilja Ármannsdóttir
9. Lily Anna Farkas ('72)
11. Eydís María Waagfjörð
13. Lea Björt Kristjánsdóttir
16. Viktoría Sól Sævarsdóttir
23. Júlía Rán Bjarnadóttir ('83)

Liðsstjórn:
Gylfi Tryggvason (Þ)
Kamilla Ósk Jensdóttir
Armandas Leskys
Þorsteinn Magnússon
Lúðvík Már Matthíasson

Gul spjöld:
Natasha Anasi ('28)

Rauð spjöld:
Maci Nicole Teater ('93)