Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
Besta karla
Stjarnan
LL 2
4
Valur
Besta karla
Víkingur R.
LL 4
0
ÍA
Besta karla
Breiðablik
LL 4
0
Þór
Besta karla
KR
LL 4
2
FH
Besta karla
Fram
LL 5
1
ÍBV
Víkingur R.
4
0
ÍA
Elías Már Ómarsson '55 1-0
Valdimar Þór Ingimundarson '62 2-0
Viktor Örlygur Andrason '85 3-0
Elías Már Ómarsson '89 4-0
27.04.2026  -  19:15
Víkingsvöllur
Besta karla
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
6. Gunnar Vatnhamar (f)
9. Helgi Guðjónsson
11. Daníel Hafsteinsson ('73)
15. Róbert Orri Þorkelsson
19. Óskar Borgþórsson ('86)
20. Tarik Ibrahimagic
22. Karl Friðleifur Gunnarsson ('86)
25. Valdimar Þór Ingimundarson ('86)
28. Elías Már Ómarsson
69. Ármann Ingi Finnbogason ('67)
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
29. Aron Snær Friðriksson (m)
7. Erlingur Agnarsson ('73)
8. Viktor Örlygur Andrason ('67)
14. Jóhannes Kristinn Bjarnason ('86)
21. Aron Elís Þrándarson
23. Nikolaj Hansen ('86)
24. Davíð Örn Atlason ('86)
31. Þorri Ingólfsson
40. Gestur Alexander Ó. Hafþórsson

Liðsstjórn:
Sölvi Ottesen (Þ)
Kári Sveinsson
Viktor Bjarki Arnarsson
Þórir Ingvarsson
Hajrudin Cardaklija
Rúnar Pálmarsson
Aron Baldvin Þórðarson
Daníel Darri Arnarsson

Gul spjöld:
Valdimar Þór Ingimundarson ('52)
Jóhannes Kristinn Bjarnason ('88)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Sigurður Hjörtur flautar af! Viðtöl og skýrsla innan skamms.
92. mín
Víkingar fá horn. Viktor Örlygur setur spyrnuna beint í hendurnar á Árna Marinó.
90. mín
Elli á FM sýnir okkur 3 mínútur í uppbót.
89. mín MARK!
Elías Már Ómarsson (Víkingur R.)
Þetta er orðin sýning hjá Elíasi! Fær boltann fyrir framan markið og slúttar vel.

Vond úrslit fyrir Skagamenn.
88. mín Gult spjald: Jóhannes Kristinn Bjarnason (Víkingur R.)
88. mín
Ingvar að verja enn og aftur! Gabríel Snær fær boltann í góððri stöðu hægra megin, keyrir á Róbert og lætur vaða, boltinn aðeins í Robba og gerir Ingvari því erfiðara fyrir að verja en hann blakar þessu í horn.
86. mín
Inn:Davíð Örn Atlason (Víkingur R.) Út:Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
86. mín
Inn:Nikolaj Hansen (Víkingur R.) Út:Óskar Borgþórsson (Víkingur R.)
86. mín
Inn:Jóhannes Kristinn Bjarnason (Víkingur R.) Út:Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.)
85. mín MARK!
Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.)
Viktor að klára leikinn með gullfallegu marki! Boltanum er potað eftir fyrirgjöf út á teiginn til Viktors sem tekur við honum og hamrar boltann svo upp í samskeytin nær.

Geggjað mark og game over.
84. mín
Jón Gísli með hættulegan bolta fyrir en Gunnar sem fyrr réttur maður á réttum stað og hreinsar í innkast.
81. mín
Inn:Styrmir Jóhann Ellertsson (ÍA) Út:Guðmundur Þórarinsson (ÍA)
81. mín
Inn:Rafael Máni Þrastarson (ÍA) Út:Viktor Jónsson (ÍA)
79. mín
Víkingar fá enn eina hornspyrnuna. Óskar Bogga með takta úti vinstra megin og boltinn af Jóni Gísla og í horn.

Helgi tekur hana núna þar sem Danni er farinn af velli og boltinn er skallaður útfyrir teiginn á Tarik sem lætur vaða en yfir markið.
77. mín
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

76. mín
Ekkert verður úr þessari hornspyrnu Víkinga.

Skagamenn ekki beint líklegir um þessar mundir.
76. mín Gult spjald: Lárus Orri Sigurðsson (ÍA)
Gult á bekkinn, sýnist það vera Lárus Orri frekar en einhver annar.
75. mín
Dauðafæri! Skagamenn í veseni í uppspilinu, Baldvin Berndsen sendir beint á Helga sem þræðir boltann í gegnum hjarta varnarinnar á Elías Má sem snýr með boltann inná teignum og reynir að setja boltann framhjá Árna sem ver og boltinn í horn.
73. mín
Inn:Gabríel Snær Gunnarsson (ÍA) Út:Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
73. mín
Inn:Erlingur Agnarsson (Víkingur R.) Út:Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)
70. mín
INGVAR AÐ VERJA! Mikil hætta á teig Víkinga uppúr hornspyrnunni, Ingvar þarf að verja og Skagamenn heimta víti, hrikalega erfitt að sjá nákvæmlega hvað gerist í þessari þvögu á teignum.
69. mín
Stórhætta við mark Víkinga! Ómar með góðan sprett upp vinstra megin en finnur ekki liðsfélaga í teignum, Gísli og Viktor báðir klárir.

Víkingar setja boltann í horn.
67. mín
Inn:Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.) Út:Ármann Ingi Finnbogason (Víkingur R.)
Skagamaðurinn í liði Víkinga fer af velli.
63. mín
Hafliði hættir ekki að dæla inn gæða myndum!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

62. mín MARK!
Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
Stoðsending: Elías Már Ómarsson
VAAAAÁÁÁ ELÍAS OG VALDIMAR! Danni Hafsteins sendir Elías í góða stöðu vinstra megin, Elías með sturlaða sendingu í hlaupalínu Valdimars og þurfti að lyfta boltanum til þess að koma boltanum þangað, Valdimar lét það ekki trufla sig og hamraði boltann í netið í loftinu, sturlað mark!
60. mín
DANÍEL MEÐ NEGLU AF 30 METRUNUM! Elías Már keyrði inn á teiginn, reyndi að fara framhjá Baldvini sem potaði boltanum burt og hann rúllar svona skemmtilega að Daníel sem er að koma á ferðinni og hann bombar á markið en Árni ver og Skagamenn hreinsa hættunni í horn.

Hornspyrnan tekin stutt milli Danna og Helga sem endar með fyrirgjöf Danna á kollinn á Kalla sem skallar framhjá.

Víkingar stórhættulegir um þessar mundir!
58. mín
Danni reynir sendingu í gegnum hjarta varnar Skagamanna á Valdimar sem var í góðu hlaupi en boltinn rataði í hendurnar á Árna í markinu.
57. mín
Helgi brýtur á Gísla við hornfánann og Skagamenn fá aukaspyrnu sem er nánast eins og hornspyrna en ekkert verður úr því.
55. mín MARK!
Elías Már Ómarsson (Víkingur R.)
ELÍAS POTAR BOLTANUM INN AF LÍNUNNI EFTIR DARRAÐADANS Í TEIGNUM! Hornspyrnan frá Danna hættuleg, Árni slær hana út í teiginn og mætir svo boltanum sjálfur, ég sé ekki hver kemur boltanum framhjá Árna en einhvernveginn fer boltinn í pakkann, byrjar að skoppa og Elías potar honum inn af mjög stuttu færi.
54. mín
Árni Marinó! Fyrirgjöf frá vinstri, Karl Friðleifur rís manna hæst og skallar í hornið en Árni skutlar sér og ver vel, boltinn í hornspyrnu.

Helgi tók spyrnuna og Árni blakar henni í horn hinumegin sem Danni fer þá og tekur.
52. mín Gult spjald: Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
Valdimar fær gult fyrir að stimpla Hauk vel á miðsvæðinu í baráttu við Hauk og Gumma Tóta.
51. mín
Líf í þessu! Óskar finnur Danna Hafsteins á D-boganum, sem tekur vel á móti boltanum og í fínu færi smellir honum innanfótar fast en framhjá fer boltinn.
50. mín
INGVAR JÓNSSON! Skagamenn vinna boltann á miðjum vellinum, Viktor Jóns snöggur að senda til hægri á Gísla sem keyrir á Helga, neglir boltanum í svæðið milli markmanns og varnar þar sem Markús Páll er fyrstur á boltann og kemur honum á markið en Ingvar með frábæra markvörslu.

Þarna áttu gestirnir að komast yfir!
49. mín
Skari Bogga! Fær boltann út til vinstri, fer inn á völlinn og framhjá Jóni Gísla á hægri fótinn í gott skotfæri við teiginn, lætur vaða en Árni ver vel.
47. mín
Skagamenn fá horn! Gísli keyrði upp hægri kantinn, sendi fyrir og Gunnar hreinsaði í horn.

Spyrnan frá Gumma er skölluð frá af Helga Guðjóns.
46. mín
Haukur setur seinni í gang! Engar breytingar á liðunum, let's go.
45. mín
Myndasyrpa Hafliða úr fyrri!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
XB

Hæ, vissir þú að þegar Einar í Framsókn var borgarstjóri var lyft grettistaki í uppbyggingu fyrir fótbolta í Reykjavík?
Framsókn í Reykjavík vill halda þeirri mikilvægu uppbyggingu áfram!

XB


- Auglýsing -
45. mín
Hálfleikur
Lítið að frétta í fyrri þannig séð, tökum kaffi og kleinu!
45. mín
+1 Sýnir Elli á FM með skiltinu góða.
45. mín
Enn eitt horn Víkinga! Óskar Borgþórs reynir skot með vinstri sem fer í Jón Gísla og afturfyrir.

Danni tekur stutt á Helga sem tekur afleita fyrirgjöf í innkast.
43. mín
SKAGAMENN HEIMTA VÍTI! Gísli Laxdal með hættulegan bolta fyrir markið, Gunnar hendir sér í tæklingu til að blokka þetta og fær boltann í handlegginn sem hann notar til að styðja sig við grasið og Skagamenn tryllast, það er hinsvegar ekki hægt að dæma víti á þetta samkvæmt reglubókinni og Sigurður Hjörtur þarf að stöðva leikinn vegna mótmæla Skagamanna og útskýra aðeins fyrir Viktori Jóns fyrirliða.
38. mín
ELÍAS MÁR! Tarik vinnur boltann af Hauki á miðjunni, sendir boltann til hægri á Ármann sem keyrir inn á teiginn, sendir fyrir á Valda sem tekur snertinug en boltinn fellur fyrir Elías Má inná teignum sem lætur vaða en beint á Árna í markinu sem gerir hrikalega vel í að grípa þetta af stutu færi.
36. mín
Gísli Laxdal aftur! Skagamenn að sækja í sig veðrið, Ómar Björn keyrir að teignum vinstra megin, sendir þvert yfir til Gísla sem tekur við boltanum í fínu færi og lætur vaða en Ingvar ver.

Skagamenn verða að fara betur með þessi færi...
35. mín
Sláin! Gummi með hornspyrnuna, boltinn skallaður á D-bogann þar sem Gísli Laxdal hamrar í slánna og yfir, þetta var færi og Skagamenn nálægt því að komast yfir.
34. mín
Skagamenn hættulegir! Haukur vinnur boltann á miðjunni, sendir á Gumma sem keyrir af stað, finnur Markús til vinstri sem keyrir inn á teiginn, sendir fyrir og Gunnar kemst í boltann, boltinn dettur á Gísla sem hamrar í Róbert Orra og í horn, Skagamenn heimta þó víti, vilja meina að boltinn hafi farið í hönd Róberts.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
Ármann Ingi sprækur úti hægra megin, fær brot núna úti hægra megin.

Danni og Helgi standa yfir boltanum, Danni sendir fyrir og boltinn í einhvern pakka áður en Skagamenn hreinsa.
28. mín Gult spjald: Böðvar Böðvarsson (ÍA)
Kristalkúlan var ekki lengi að lenda! Böddi fær gult fyrir brot á miðjum vellinum.
25. mín
Víkingar fá hornspyrnu! Daníel Hafsteins tekur þessa að venju en Viktor Jóns aleinn í markteignum skallar frá.
23. mín
Leikurinn einkennist af hörku og þreyfingum, bæði lið að djöflast og berjast en minna um opnanir og færi.

Hljómar svona svolítið eins og Sölvi Geir gegn Lárusi Orra.
18. mín
Skagamenn fá horn! Gummi Tóta tekur þessa spyrnu og Róbert Orri skallar frá.
17. mín
Guðmundur Zidane Þórarinsson! Tók einn snúning á miðjum vellinum og svo er brotið á honum.
16. mín
Markús Páll með tilraun! Fær boltann til vinstri, keyrir inn á völlinn og lætur vaða en boltinn yfir.
12. mín
Danni með stórhættulega spyrnu! En Skagamenn skalla boltann burt af marklínunni, þetta var hálfgert skot og Víkingar þéttu vel inn á markið.
11. mín
Kalli með baneitraðan bolta! Lekur í gegnum pakkann og Jón Gísli setur í hornspyrnu, þarna var hætta í teig gestanna.
10. mín
Árni í smá vandræðum! Með hrikalega sendingu inn á miðjuna beint á Danna sem lætur vaða en boltinn í Baldvin og í fangið á Árna.
9. mín
Heimamenn komast upp völlinn vinstra megin, boltanum komið á Danna fyrir framan teiginn og hann lætur vaða en boltinn í Johannes Vall.
7. mín
Skagamenn pressa vel og Víkingar lenda í vandræðum í uppspilinu, vindurinn að hafa smá áhrif.
4. mín
Fyrsta tilraunin! Föst fyrirgjöf frá Helga frá vinstri og Elías setur hausinn í þetta en yfir markið.

Leikurinn byrjar af hraða og krafti, ég heyri vel í Deano fyrir neðan mig.
1. mín
Lið Skagamanna: Árni;
Jón Gísli, Baldvin, Böddi, Vall;
Gísli Lax, Haukur, Gummi, Ómar;
Viktor, Markús
1. mín
Lið Víkinga: Ingvar;
Kalli, Gunnar, Róbert, Helgi;
Tarik, Danni;
Ármann, Valdi, Óskar;
Elías Már
1. mín
Leikur hafinn
Danni Hafsteins setur þetta af stað!
Fyrir leik
Liðin eru mætt út á völl! Bogi Berndsen tekur liðsmynd Skagamanna og Höddi Macland liðsmynd Víkinga þar rétt á eftir.

Heimamenn munu byrja með boltann og spila á móti vindinum í fyrri hálfleik.
Kristalkúlan hefur talað!
Fyrir leik
Liðin eru komin út að hita! Það er ekki beint veðurblíða í Víkinni í dag, það dropar á glerið hjá mér og sæmilegur vindur á markið nær félagsheimilinu.

Það er ekkert skrýtið að það séu enn mörg laus sæti í stúkunni, ólíkt síðustu tveimur heimaleikjum Víkinga þar sem allt var orðið frátekið og stappað hálftíma í leik ef ekki meira!
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár! Gylfi Sig og Gísli Eyjólfs fjarverandi vegna meiðsla.

Lestu byrjunarliðsfréttina.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Stefán Þór Pálsson spáir í spilin: Víkingur 2-0 ÍA
Spái því að leikurinn verði jafn framan af en Víkingarnir klára þetta í seinni hálfleik.
Mynd: ÍR

Spámaðurinn skoraði tvö og lagði upp tvö í mögnuðum sigri ÍR á Aftureldingu á föstudaginn.
Þess má til gamans geta að Stefán Þór var leikmaður Víkinga 2015-2017, það má því segja að hann hafi verið ákveðið upphaf þessarar vegferðar Víkinga síðustu ár.
Fyrir leik
Gylfi fór meiddur af velli gegn Stjörnunni. Mér þykir ansi ólíklegt miðað við meiðslin að Gylfi verði með hér í dag, en varamaðurinn sem kom inn á fyrir Gylfa var ekki lélegri leikmaður en Daníel Hafsteinsson, ekki hræðileg skipting það!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi gengur svekktur af velli.
Fyrir leik
Upphaf tímabilsins: Víkingar hafa farið vel af stað með sín 7 stig eftir fyrstu þrjá leikina, jafntefli við Blika, sigur gegn KA og sigur gegn Stjörnunni.

Skagamenn hafa hinsvegar ekki farið jafn vel af stað og vonir stóðu til, misstu forystu niður í jafntefli gegn Fram, töpuðu þrátt fyrir fína frammistöðu gegn Blikum og misstu forystu niður í jafntefli gegn KA.

Frammistöður Skagamanna ekki slæmar en stigasöfnun vond.
Fyrir leik
Þriðja liðið: Sigurður Hjörtur fær það hlutverk að flauta þennan leik, með honum að norðan kemur Patrik Freyr Guðmundsson sem AD1 og þá tekur Kristján Már Ólafs sér stöðu sem AD2.

Fjórði dómari en Elli á FM, sem dæmdi auðvitað ÍA - Víking leikinn fræga undir lok tímabilsins 2024.

Oddur Helgi verður þá með blokkina á lofti að taka út störf dómaranna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Kvöldið kæru lesendur! Og verið velkomin í þráðbeina textalýsingu frá leik Víkings og ÍA.

mánudagur 27. apríl

Besta karla
17:30 Fram-ÍBV (Lambhagavöllurinn)
18:00 KR-FH (Meistaravellir)
19:15 Breiðablik-Þór (Kópavogsvöllur)
19:15 Víkingur R.-ÍA (Víkingsvöllur)
19:15 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
Byrjunarlið:
1. Árni Marinó Einarsson (m)
3. Johannes Vall
5. Baldvin Þór Berndsen
7. Haukur Andri Haraldsson
8. Guðmundur Þórarinsson ('81)
9. Viktor Jónsson (f) ('81)
17. Gísli Laxdal Unnarsson ('73)
21. Böðvar Böðvarsson
22. Ómar Björn Stefánsson
25. Markús Páll Ellertsson
66. Jón Gísli Eyland Gíslason
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
12. Logi Mar Hjaltested (m)
13. Erik Tobias Sandberg
15. Gabríel Snær Gunnarsson ('73)
18. Rafael Máni Þrastarson ('81)
20. Ísak Máni Guðjónsson
26. Matthías Daði Gunnarsson
27. Brynjar Óðinn Atlason
28. Daníel Michal Grzegorzsson
87. Styrmir Jóhann Ellertsson ('81)

Liðsstjórn:
Lárus Orri Sigurðsson (Þ)
Aron Ýmir Pétursson
Teitur Pétursson
Dean Martin
Dino Hodzic
Mario Majic
Rúnar Már S Sigurjónsson
Salvar Georgsson

Gul spjöld:
Böðvar Böðvarsson ('28)
Lárus Orri Sigurðsson ('76)

Rauð spjöld: